Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.1997, Side 29

Læknablaðið - 15.12.1997, Side 29
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 815 Table V. Estimaled number of imtreated positives in 1995. Individuals Positives in region Estimated number of positives Area of origin not tested according to table II (%) among those not tested Western Europe 13 (0) 0 Eastern Europe 64 (50) 32 Africa 9 (68) 6 Asia 53 (58) 31 South/Mid America 15 (13) 2 North America 28 (4) 1 Oceania 14 (15) 2 Total estimated untested positives 196 74 Number of untreated positives (table IV) 105 Estimated total number of untreated positives 179 strax viö komu eða síðar, venjulega innan fimm ára. Á fyrstu búskaparárunum býr inn- flytjandinn oft þröngt og við fátækt auk þess sem hann nýtur engra sjúkratrygginga fyrst í stað og er ófróður um eða jafnvel smeykur við kerfið. Hann getur jafnvel verið ósmitaður við komu en tekið berklabakteríuna frá öðrum eft- ir flutninginn. Það getur gerst bæði hérlendis og á heimsóknum til upprunalandsins. Há tíðni turnana á berklaprófi hjá börnum innflytjenda bendir til að berklabakteríur berist þar um í meiri mæli en hjá infæddum (12,13). Frá og með 1997-1998 verða börn innflytjenda berkla- prófuð samkvæmt nýlegum tillögum (14). Til að geta öðlast dvalar- og atvinnuleyfi er nú krafist almennrar heilbrigðisskoðunar og berklarannsókn á að vera hluti af þessari skoð- un. Hvernig er staðið að þessari berklaskoðun í dag? Nokkur misbrestur virðist vera á að allir fari í berklapróf og að jákvæðir séu meðhöndl- aðir. Læknar virðast annað hvort ekki hafa skýrar reglur um það hvaða rannsóknir skuli fara fram eða þá að þeir kjósa að fara ekki eftir þeim. Vottorðin eru ekki stöðluð og stundum er ekkert á þeim nema undirskrift læknis. Eins og fram kemur að ofan fengu um það bil 153 Mantoux-jákvæðir einstaklingar dvalar- leyfi á landinu árið 1995. Þar af fékk 51 ein- staklingur fulla meðferð með ísóníasíði og voru flestir þeirra enn hér á landi tveimur árum síðar. Eftir standa um það bil 102 einstakling- ar. Helmingur þeirra átti ennþá lögheimili á fslandi 1. ágúst 1997 (53 einstaklingar). Af þeim sem ekki voru berklaprófaðir áttu um tveir þriðju enn lögheimili á íslandi 1997. Úr þeim hópi var áætlað að um 74 væru já- kvæðir (tafla IV). Ef tveir þriðju þeirra eru enn á íslandi eru það um 50 einstaklingar. Innan við 20% innflytjendanna voru yfir 35 ára aldri við komu til landsins. Því má gróflega áætla að um 100 nýir íslendingar á ári séu berklasmitað- ir og að af þeim hefði átt að meðhöndla um 80. Úr þeim hópi getum við átt von á nokkrum berklatilfellum á næstu árum eftir að þeir setja bú (15-17). Notum við rétt þau tækifæri sem gefast til að greina og meðhöndla þessa ein- staklinga? Samkvæmt ofangreindu má gera ráð fyrir að aðeins þriðjungur af þeim sem eru undir 35 ára og setjast hér að til lengri tíma fái fyrirbyggj- andi meðferð. Hér er því unnt að gera bragar- bót. Berklasmitun má greina með einfaldri og ódýrri rannsókn sem er Mantoux-próf. Jákvætt próf afmarkar áhættuhópinn. Að gera kröfu um berklaskoðun hjá innflytjendum er góð læknisfræði sem vænleg er til árangurs fyrir sjúklinginn. Hvað þýðingu kann það að hafa í framtíð- inni ef um 100 berklasmitanir eru ómeðhöndl- aðar árlega? Það er ekki verjandi að með- höndla allar berklasmitanir, meðal annars vegna vaxandi hættu á ísóníasíð lifrarbólgu með hækkandi aldri (eldri en 35 ára). Samt er hægt að gera betur en við gerum nú. I sumum tilfellum var ástæða aðgerðaleysis sú að óvissa ríkti um búsetuáform, í öðrum tilvikum var ekki unnt að sjá neina frambærilega ástæðu fyrir því að ísóníasíð meðferð var ekki gefin. Fyrirbyggjandi lyfjameðferð með ísóníasíði hefur sýnt sig að draga verulega úr fjölda berklatilfella hjá smituðum sem ekki hafa veikst (11,18-21). Meðferðin er einföld og ör- ugg sé henni beitt rétt. Vissulega getur sex til níu mánaða lyfjameðferð við einkennalausri smitun reynt á þolrifin bæði hjá sjúklingi og lækni. Okkar reynsla er þó sú að eftir samtöl og

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.