Læknablaðið - 15.12.1997, Blaðsíða 72
854
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
Lyfjamál 61
Frá Heilbrigðis- og tryggingamála
ráðuneytinu og landlækni
Breytt tilhögun á af-
greiðslu og meðhöndlun
lyfja sem ekki hafa markaðs-
leyfi á Islandi.
Um áramótin verður tekin
upp breytt meðhöndlun og af-
greiðsla á lyfjum sem ekki hafa
markaðsleyfi á íslandi (óskráð).
Nýtt eyðublað verður tekið í
notkun og verður fáanlegt hjá
Lyfjanefnd ríkisins og ráðu-
neyti.
Helstu nýjungar eru
* „Undanþágulisti“: Lyfja-
nefnd ríkisins mun útbúa
„undanþágulista" yfir lyf sem
nefndin heimilar að séu af-
greidd án sérstakrar umfjöll-
unar nefndarinnar. Á listan-
um verða lyf sem oft hefur
verið beðið um, eins og önnur
lyfjaform og styrkleikar lyfja
sem þegar hafa markaðsleyfi,
ýmis forskriftarlyf eða lyf sem
ljóst er að verði ekki skráð en
löng reynsla er fyrir notkun á.
„Undanþágulistinn“ verður í
lyfjaverðskrá. Lyfjaverðs-
nefnd samþykkir verð. Heil-
brigðis- og tryggingaráðu-
neytið í samráði við Trygg-
ingastofnun ríkisins ákveður
greiðsluþátttöku almanna-
trygginga.
* Lyfseðill/pöntun: Undan-
þágueyðublað mun gilda sem
pöntun /lyfseðill sem er af-
greidd/afgreiddur í heildsölu /
lyfjabúð. Eyðublaðið er í
þríriti, frumrit fyrir Lyfja-
nefnd ríkisins, eitt afrit fyrir
lyfjabúð og eitt afrit fyrir inn-
flytjanda.
* Afgreiðsla til sjúklinga: Um-
sóknin gildir sem lyfseðill.
Sjúklingur fer með undan-
þáguna í lyfjabúð og sé lyfið á
„undanþágulista“ má af-
greiða það. Ef umrætt lyf er
ekki að finna á „undanþágu-
lista“ sendir lyfjabúðin um-
sóknina til Lyfjanefndar rík-
isins til afgreiðslu. Læknir
getur að sjálfsögðu gengið úr
skugga um hvort lyfið er á
„undanþágulistanum“ og
sparað sjúklingi þá óþarfa
aukaferð í apótek ef lyfið er
ekki á listanum.
* Afgreiðsla til sjúkrahúss/
stofnunar/læknis til notkunar
á stofu: Sé um að ræða lyf sem
ætluð eru til notkunar á
sjúkrahúss/stofnun, eða á
stofu lækna/tannlækna/ dýra-
lækna, gildir eyðublaðið sem
pöntun til heildsölu. Ef lyfið
er ekki að finna á „undan-
þágulista“ sendir umsækjandi
eða innflytjandi umsóknina
til Lyfjanefndar ríkisins til af-
greiðslu.
* Greiðsluþátttaka: Almenna
reglan um greiðsluþátttöku
almannatrygginga í lyfja-
kostnaði er sú að Trygginga-
stofnun ríkisins tekur ekki
þátt í kostnaði lyfja sem ekki
hafa markaðsleyfi á íslandi.
Til hagræðingar mun hins
vegar Heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytið í sam-
ráði við TR ákveða greiðslu-
þátttöku í lyfjum sem eru á
„undanþágulistanum“. Óski
læknir eftir því að Trygginga-
stofnun ríkisins taki þátt í
kostnaði lyfs sem ekki er á
„undanþágulistanum" þá
verður að sækja um það sér-
staklega til Tryggingastofn-
unar ríkisins á sama hátt og
sótt er um lyfjakort. Eyðu-
blaðið verður ekki notað til
að sækja um greiðsluþátt-
töku.
* Hver undirritar umsókn:
Læknir / tannlæknir / dýra-
læknir undirritar undanþágu-
umsókn í öllum tilvikum.