Læknablaðið - 15.12.1997, Blaðsíða 46
830
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
gekkst undir gallkögun vegna gallsteina árið
1994. Aðgerðin gekk vel og vefjagreining sýndi
langvarandi gallblöðrubólgu og steina. Sjúk-
lingur hafði langa sögu um gallkveisu eftir fitu-
ríkar máltíðir. Verkirnir voru staðsettir undir
bringspölum og leiddu aftur í bak og síðar allan
kviðinn. Sjúkdómssaga var um hægðatregðu
en engin önnur einkenni voru fyrir hendi. Om-
skoðun af galli, lifur og brisi sýndi steina í
gallblöðru en rannsóknin var eðlileg að öðru
leyti. Sjúklingur hafði sögu um háþrýsting og
kransæðasjúkdóm og kransæðahjáveituaðgerð
1992.
Þrátt fyrir gallkögun löguðust einkenni
sjúklings ekki. Staðsetning verkjanna varð
nokkuð önnur, eða nálægt miðjum kviði. Mat-
arlyst minnkaði og bera fór á niðurgangi. Ein-
kenni þessi fóru stöðugt versnandi. Sjúklingur
var lagður inn um það bil mánuði eftir upphaf-
legu aðgerðina. Við komu reyndist sjúklingur
hafa dreifða verki í kviðarholi og auma fyrir-
ferð í stungustað við nafla. Bráðabirgðagrein-
ing var innklemmdur naflahaull. í aðgerð var
fjarlægður þéttur hnútur og vefjagreining sýndi
að um var að ræða meinvarp frá kirtilkrabba-
meini. Svipuð fyrirferð reyndist vera í stungu-
stað við bringspalir. Tölvusneiðmynd sýndi
ífarandi krabbamein í briskirtli. Astand sjúk-
lings versnaði hratt, hnútarnir stækkuðu hratt
með miklum verkjum. Sjúklingur dó fjórum
mánuðum eftir greiningu briskrabbameinsins.
Umræða
Fylgikvillar koma í stunguör eftir kaganir
eins og önnur ör. Þegar þar finnst fyrirferð eru
helstu möguleikarnir blæðing, sýking, kviðslit
og einnig meinvörp. Blæðing er auðvitað í
tengslum við aðgerð. Sýking getur komið fram
eftir útskrift einkum vegna þess að legutími
eftir þessar aðgerðir er svo skammur. Kviðslit
getur birst seint eða fljótlega eftir aðgerð eins
og kviðslit í hefðbundnum aðgerðarörum.
Meinvörp koma að líkindum í ljós næstu mán-
uði eftir aðgerð enda er talið að sárið mengist
við aðgerðina. Ekki er enn vitað hvort þessi ör
eru sérlega útsett fyrir meinvörp eftir að þau
eru gróin.
Ýmsar tilgátur eru uppi um orsakir mein-
varpanna. Stungið hefur verið upp á ýmsum
orsökum þess að meinvörp setjast að í kögun-
arörum. Fyrst ber að gæta þess að við aðgerð-
ina á sér stað nokkurt tog og tilfæringar með
vefi mengaða krabbameinsfrumum, tækin
mengast af krabbameinsfrumum og einnig er í
sumum tilfellum vefurinn sjálfur, mengaður
krabbameinsfrumum, dreginn út um kögunar-
gatið. Allt hefur þetta verið talið geta valdið
meinvörpum (1). Samkvæmt persónulegum
upplýsingum frá Cuschieri getur koldíoxíð
(CO-,) sem notað er til að blása upp kviðinn við
aðgerðina einnig verið mjög mengað krabba-
meinsfrumum. í rottutilraun hefur einnig verið
sýnt fram á að koldíoxíð örvar æxlisvöxt (2).
I kögunaraðgerðum er ekki mögulegt að
þreifa innri líffæri vegna eðlis aðgerðarinnar,
ómun er gott tæki til leitar að briskirtilskrabba-
nreini en er ekki óskeikul og ef æxlin eru lítil er
mjög erfitt eða ómögulegt að greina æxlin (3).
Þetta eykur ljóslega hættuna á að missa af áður
óþekktum æxlum í kögunum.
Meinvörpum í stunguörum eftir gallkögum
hefur ekki verið lýst í þrernur stórum uppgjör-
um á gallkögunum oftast vegna gallblöðru-
krabbameins (4-6). Meinvarpi frá huldu bris-
krabbameini hefur áður verið lýst (7).
Upplýsingar um meinvörp í skurðsárum
voru af skornum skammti þrátt fyrir tölvuleit.
Að okkar mati er sjaldgæft að meinvörp setjist
í skurðsár/ör við opnar aðgerðir. Það gerist þó
stöku sinnum þegar um mikinn æxlisvöxt er að
ræða en sjaldan ef æxli er lítið.
HEIMILDIR
1. Nduka CC, Monson JR. Menzies-Gow N. Darzi A. Ab-
dominal wall metastases following laparoscopy. Br J Surg
1994; 81: 648-52.
2. Jacobi CA, Sabat R, Böltm B. Zieren HU, Volk HD.
Muller JM. Pneumoperitoncum with CO, stimulates ma-
lignant tumor growth. Proceedings of Congress of the
European Association for Endoscopic Surgery; Trond-
heim. Norway, 1996 (abstract no 135).
3. Hagen-Ansert, Sandra L. Textbook of Diagnostic Ultra-
sonography. 3rd ed. St. Louis: CV Mosby, 1989: 264-8.
4. Cuschieri A. Dubois F, Mouiel J, Mouret P. Becker H.
Buess G, et al. The European experience with laparo-
scopic cholecystectomy. Am J Surg 1991; 161: 385-7.
5. Berci G. Sackier JM. The Los Angeles experience with
laparoscopic cholecystectomy. Am J Surg 1991; 161:
382-4.
6. Southern Surgeons Club. A prospective analysis of 1518
laparoscopiccholecystectomies. N Engl J Med 1991; 324:
1073-8.
7. Siriwardena A, Samarji WN. Cutaneous tumour seeding
from a previously undiagnosed pancreatic carcinoma af-
ter laparoscopic cholecystectomy. Ann R Coll Surg Engl
1993; 75: 199-200.