Læknablaðið - 15.12.1997, Blaðsíða 60
844
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra
Tel nauðsynlegt að stofnanirnar stækki
Fjárlög, þjónusta á sjúkrahúsum
án innlagnar, sparnaður, hag-
ræðing, niðurskurður, forgangs-
röðun, stefnumótun, sameining,
framleiðni, stjórnun, kjaramál -
allt eru þetta viðamikil mál sem
hafa verið til umræðu þegar heil-
brigðiskerfið er annars vegar.
Ingibjörg Pálmadóttir hefur verið
heilbrigðisráðherra í tvö og hálft
ár og var hún fengin til að ræða
nokkra af þessum málaflokkum í
viðtali við Læknablaðið. Hún er
fyrst innt eftir þróun á göngu-
deildarþjónustu hérlendis sem
verið hefur með nokkru öðru móti
en víða erlendis:
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra. Myndin
er tekin er ráðherra ávarpaði aðalfund Læknafélags
íslands í september síðastliðnum. Ljósm.: bþ
„Pjónusta á dag- og göngu-
deildum hefur aukist mjög í
heilbrigðiskerfinu á síðustu ár-
um og gegnir sífellt veigameira
hlutverki í þjónustunni. Sé litið
til nágrannalanda okkar þá hafa
þessar breytingar gengið heldur
hægar hér en við höfum verið í
fararbroddi með að taka í notk-
un nýja þekkingu og tækni sem
hefur ýtt undir þessa þróun.
Margir ganga svo langt að tala
um að á þessum áratugi sé að
verða bylting í heilbrigðisþjón-
ustunni með tæknibreytingum,
nýrri þekkingu og nýjum lyfj-
um, enda er það staðreynd að
við erum stöðugt að sækja fram í
meðhöndlun erfiðra sjúkdóma,
árangursríkari og fljótvirkari
lækningum, minni aukaverkun-
um og ekki síst í meðhöndlun á
vandamálum sem við vorum
jafnvel ráðþrota gagnvart fyrir
fáum árum síðan. Þannig er al-
menningur að fá meiri og betri
þjónustu en áður á flestum svið-
um.“
Helgunarálag
„Það liggur fyrir að þarfir
sjúkrahúsanna eru mismunandi
eftir sérgreinum og því er ljóst
að læknar standa mismunandi
að vígi, sérstaklega að því er
varðar möguleika á stofu-
rekstri. Ég tel mjög mikilvægt
að sjúkrahúsin eigi ávallt trygg-
an aðgang að færustu sérfræð-
ingum og því verði að vinna að
því í samráði við samtök lækna
að gera það áhugaverðara fyrir
lækna að helga sig starfi á
sjúkrahúsunum. Pví fylgja að
öllum líkindum frekari breyt-
ingar á starfsemi sjúkrahús-
anna. Breyting sem þessi kann
að taka einhvern tíma en ég tel
mjög mikilvægt að samstaða ná-
ist um að fara þessa leið því með
henni á að vera unnt að tryggja
enn betur öryggi þjónustunnar
en jafnframt tel ég að sá einka-
rekstur sem birst hefur í stofu-
rekstri lækna hafi að flestu leyti
verið jákvæður fyrir heilbrigðis-
þjónustuna í heild. Sá hluti
þessa máls sem varðar kjara-
málin er vissulega viðkvæmur
en ég tel faglegu rökin einnig
vega mjög þungt.“
Má búast við að breytingar
verði á fjárlagaramma sjúkra-
húsa á næstu árum, til dæmis í
þá veru að fjármagn fylgi sjúk-
lingi?