Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.1998, Page 11

Læknablaðið - 15.04.1998, Page 11
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 279 ferð með stungulyfi í meðferð með töflum en þau eru; sjúkdómsgreining samrýmanleg með- ferð í inntöku, meltingarfæri sjúklings starfa eðlilega, sjúklingur er hitalaus, sjúkdómsein- kenni í rénum eða horfin og fjöldi hvítfrumna að færast í eðlilegt horf. Aœtlun sparnaðar: Sparnaður á mánuði var fundinn með því að leggja saman allar breyt- ingar á kostnaði sem hlutust af fyrstu ráðlegg- ingu um breytingu sem var fylgt og deila í með tveimur. Þar sem fylgst var með öllum sjúk- lingum meðan á sýklalyfjameðferð stóð voru iðulega ráðlagðar fleiri en ein breyting á með- ferð hvers sjúklings og stundum fleiri en tvær. Hins vegar var nýr kostnaður í tengslum við fleiri en eina breytingu á sýklalyfjameðferð hvers sjúklings ekki reiknaður, heldur aðeins við þá fyrstu sem gerð var í hverju tilfelli. Varnandi sýklalyfjameðferð: Könnuð var varnandi meðferð við skurðaðgerðir í mars 1996, það er fylgni við samþykktar leiðbein- ingar í lyfjalista Landspítalans 1996 (9) og reiknaður mismunur á kostnaði milli varnandi meðferðar sem gefin var og samþykktrar varn- andi meðferðar. Lyfjalisti Landspítalans er bæklingur gefinn út af apóteki spítalans og er ætlaður læknum til aðstoðar við lyfjaávísanir og öðru starfsfólki til upplýsinga um lyf. Leið- beiningar um sýklalyfjameðferð, meðal annars varnandi meðferð fyrir skurðaðgerðir, voru unnar af sérfræðingum í smitsjúkdómum á Landspítalanum og Sjúkrahúsi Reykjavíkur og samþykktar af yfirlækni handlækningadeildar Landspítalans. Allar leiðbeiningar um lyfja- meðferð í lyfjalistanum eru samþykktar af lyfjanefnd Landspítalans. Niðurstöður Fylgni við ráðleggingar: Eitthundrað og fimmtíu sjúklingar voru meðhöndlaðir með sýklalyfjum í janúar og febrúar 1996 á fyrr- greindum fjórum deildum. Sjötíu og fimm pró- sent sýkinga urðu utan spítala en fjórðungur innan. Mynd 1 sýnir hvernig sjúklingarnir dreifðust á deildirnar. Einnig sýnir hún fjölda og hlutfall ráðlegginga um breytingu á sýkla- lyfjameðferð á hverri deild og fjölda tilfella og hlutfall þar sem ráðleggingum var fylgt. Hlut- fall ráðlegginga um breytingu á sýklalyfjameð- ferð var hæst á deildum 12-G (74%) og 11-E (65%) en mun lægra á deildum 11-A (33%) og 11-B (32%). Fylgt var 80-100% tilmæla (mynd D- Eðli breytingartillagna: Algengustu tilmæli um breytingu á meðferð fólu í sér stöðvun meðferðar (33%), breytingu á skömmtum (31 %) og breytingu úr stungulyfi í meðferð um munn (19%). í 17% tilvika var ráðlagt að skipta um sýklalyf. Astæður þessa voru rækt- unarniðurstöður (11%), kostnaður (5%) og annað (1%). Sparnaður við eftirlit: I töflu I sést lág- markssparnaður á mánuði sé gert ráð fyrir að áhrif breytingartillagna um sýklalyfjameðferð Figure 1. Number of patients, recommendations and recommendations accepted in wards 12-G, 11-A, 11-B and 11-E.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.