Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 12

Læknablaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 12
280 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 Table I. Savings, calculated in ISK per month. Recommendation accepted Effects last one day Effects last three days Antibiotics stopped 28,804 86,412 Change from iv to po 22,006 66,018 Change in dose 15,536 46,608 Change because of culture results 3,458 10,374 Total savings 69,804 209,412 iv = intravenous po = per os hafi annars vegar varað í einungis einn sólar- hring (70.000 kr.) og hins vegar hafi þær haft áhrif í þrjá sólarhringa (210.000 kr.). Sparnað- ur gæti því numið frá 840.000 til 2,5 milljóna króna á ári. Einnig sýnir taflan tölur fengnar á sama hátt en flokkaðar eftir eðli þeirra breyt- inga sem gerðar voru. Varnandi meðferð: A deild 12-G var 23 sjúklingum gefin varnandi meðferð fyrir skurð- aðgerð í mars 1996. I einu tilfelli (4%) var meðferðin samhljóma leiðbeiningum í lyfja- lista Landspítalans frá 1996 (9) en í 22 tilfell- um (96%) var misræmi þar á milli. Mismunur kostnaðar varnandi meðferðar sem gefin var og samþykktrar nam 14.282,65 krónum á mánuði eða 171.392 krónum á ári. Umræða Hér hefur verið lýst framkvæmd og kostnað- aráhrifum sýklalyfjaeftirlits á Landspítalanum um tveggja mánaða skeið. Eftirlitinu var vel tekið af starfsfólki deilda og sýndu bæði lækn- ar og hjúkrunarfræðingar því áhuga og velvilja. Líklegt er að framkvæmd eftirlitsins hafi skipt miklu máli en læknir og lyfjafræðingur gengu daglega á deildir, auk þess sem ráðleggingar um breytingar á sýklalyfjameðferð voru skrif- legar en einnig ræddar við aðstoðarlækna og stundum beint við sérfræðing. Lögð var áhersla á að um ráðleggingar væri að ræða en ekki fyr- irmæli. I samræmi við það var breyting á með- ferð oft einungis gerð eftir að tilmæli um breyt- ingar höfðu verið rædd við og samþykkt af sér- fræðingi. Hlutfall ráðlegginga var mun hærra á deild- um 12-G og 11 -E en á deildum 11 -A og 11 -B, sem eru almennar lyflækningadeildir, og skýrist það væntanlega af sviði sérfræðinga sem þar starfa, vandamálum sjúklinganna og eðli sýklalyfjameðferðarinnar. Eftirlitinu var ekki beitt um helgar en ekki er ólíklegt að hlut- fall ráðlegginga hefði jafnvel verið hærra hefði svo verið. Fylgt var yfir 90% ráðlegginga á deildunt 12-G, 11-A og 11-B en 80% á deild 11 -E. Skýr- ingar á lægri fylgni við ráðleggingar á deild 11 - E tengjast líklega að hluta því að mánuðirnir tveir sem rannsóknin stóð voru fyrstu mánuð- irnir sem eftirliti var beitt á deildinni, en það hafði þá verið í gangi um nokkurra mánaða skeið á hinum deildunum. Athugun á fyrri hluta árs 1997 sýndi að á deild 11-E var fylgt 98% tilmæla um breytingar á sýklalyfjameðferð. Einnig eru sjúklingar með blóðsjúkdóma oft mjög veikir, varnir þeirra verulega skertar og sýklalyfjameðferð í allföstum skorðum. Algengustu ráðleggingar um breytingar fólu í sér tilmæli um að hætta sýklalyfjameðferð eða minnka skammta. Oftast var mælt með að stöðva meðferð þegar ræktanir voru neikvæðar eftir 24-48 klukkustundir og/eða annar sjúk- dómur en sýkingin staðfestur eða talinn líkleg- asta orsök einkenna sjúklings. Athyglisvert er að einungis í 5% tilvika ráðlegginga urn breyt- ingar á meðferð var meginhvatinn að tilmælun- um kostnaðarlækkun sem breytingin hefði í för með sér. Flestar breytingatillögur leiddu hins vegar til lægri kostnaðar við sýklalyfjameð- ferð. Rétt er þó að taka fram að alloft þegar ráðlögð var minnkun skammta með tilliti til sjúkdóms og hvernig sjúklingur hafði svarað upphafsmeðferð var sparnaðarsjónarmið einnig haft í huga. Sýnt var fram á sparnað á bilinu 70-210.000 krónur á mánuði í tengslum við sýklalyfjaeftir- lit á deildunum fjórum. Mestur sparnaður tengdist tilmælum sem fólu í sér stöðvun sýkla- lyfjameðferðar og breytingu á meðferð frá stungulyfi í inntöku (tafla I). Sérfræðingur í smitsjúkdómum sinnti sýklalyfjaeftirliti og vinnu tengdu því í tvær til þrjár stundir á dag. Sparnaður í kjölfar breytingartillögu sem var fylgt, var reiknaður í einn dag og þrjá daga, en áhrifin geta varað lengur og verður sparnaður þá mun meiri. Aðrir höfundar hafa reiknað sparnað í tengslum við sýklalyfjaeftirlit með því að gera ráð fyrir að áhrif breytingatillagna, sem fylgt er, vari í fimm sólarhringa og telja það frekar varlega áætlun (10). Breytingar á fjölda dagskammta (defined daily dose, DDD) og heildarsýklalyfjakostnaði á deildum 12-G og 11-A (tafla II) (upplýsingar fengnar úr gögnum apóteks Landspítalans) styðja sparn- aðarútreikninga okkar í tengslum við sýkla- lyfjaeftirlitið. Þar kemur fram að fjöldi dag- skammta og sýklalyfjakostnaður lækkaði á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.