Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.04.1998, Side 16

Læknablaðið - 15.04.1998, Side 16
284 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 ásamt leiðum til úrbóta. Lögð var áhersla á aukna hreyfingu og minni neyslu fitu og sykurs í fæði. Veittar voru sérhæfðar leiðbeiningar eft- ir óskum og metnum þörfum hvers og eins. Við lögðum áherslu á að meta heildaráhættu hvers og eins, líta á hvern áhættuþátt í samhengi við hina og reyna að breyta lífsstíl fólks til lengri tíma (12-15). Frá flestum sem mældust með kólesteról yfir 7,0, voru með slagæðasjúkdóm eða rnikla aðra áhættu var sent blóð í LDL (low density lipo- protein) kólesteról- og HDL- (high density lipoprotein) mælingu á rannsóknarstofu Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri. Ekki voru mældir þríglíseríðar vegna þess að þátttakendur komu yfirleitt ekki fastandi í mæl- inguna. Allir greiddu komugjald fyrir viðtal og mælingu á Heilsugæslustöðinni, auk rannsókn- argjalds ef blóðsýni var sent á rannsóknarstofu. Við úrvinnslu var þátttakendum skipt í fimm hópa og stuðst við niðurstöður samráðshóps á vegum landlæknis 1995 (5). Hópur 1: Einstaklingar með tvo eða fleiri áhættuþætti og kólesteról yfir 6,0. Hópur 2: Einstaklingar með einn áhættuþátt og kólesteról yfir 7,0. Hópur 3: Einstaklingar með einn áhættuþátt og kólesteról undir 7,0 og með tvo áhættuþætti og kólesteról undir 6,0. Hópur 4: Einstaklingar án áhættuþátta en kól- esteról yfir 6,0. Hópur5: Einstaklingar án áhættuþátta og kól- esteról undir 6,0. Áhættuþættir voru skilgreindir á eftirfarandi hátt: 1. Lyfjameðferð vegna háþrýstings og/eða end- urteknar mælingar yfir 160 í efri mörk eða yfir 90 í neðri mörk. 2. Reykingar nú og/eða meira en 10 pakkaára reykingasaga. 3. Sykursýki. 4. Þyngdarstuðull yfir 37,0 fyrir karla og yfir 39,0 fyrir konur. 5. Fyrstu gráðu ættingi (foreldri eða systkini) hafði fengið slagæðasjúkdóm fyrir 50 ára aldur. Þátttakendur í hópi 5 voru ekki athugaðir nánar, en í ágúst 1996 var sent út dreifibréf til hópa 1-4, alls 84 einstaklinga, og þeim boðið upp á aðra mælingu og eftirlit. Þrír einstakling- ar sem þegar voru á blóðfitulækkandi lyfja- meðferð voru strax undanskildir úr rannsókn- inni þar sem þeir höfðu fengið margendurtekna hvatningu til heilbrigðari lifnaðarhátta. Á tímabilinu október til desember 1996 komu þátttakendur aftur, sumir eftir eina áminningu símleiðis. Alls mættu 68, 37 karlar og 31 kona eða 80%. Af þeim 16 sem ekki mættu voru langflestir eða 11 úr hópi 3. I seinna viðtalinu var mældur blóðþrýsting- ur, mælt kólesteról og þátttakendur vigtaðir. Spurt var um breytingar á lífsstíl síðustu sex til sjö mánuði eða frá því að fyrra viðtal fór fram. Skráð var breyting á neyslu fitu og sykurs, hreyfingu, lyfjameðferð, reykingavenjum og hvort aðstæður hefðu breyst að öðru leyti. Tölfræðilegar niðurstöður fengust með t- prófi og voru unnar í forritinu Statistika. Niðurstöður Niðurstöður mælinga á hæð, þyngd, blóð- þrýstingi og kólesteróli eftir skiptingu í hópa sjást í töflu I. í töflu II sjást meðaltöl sömu mælinga fyrir konur og karla og þau borin saman við lands- tölur ásamt reykingum. Meðalkólesteról karla og kvenna mældist lægra en landsmeðaltalið en Tafla I. Meðalhœð, þyngd, þyngdarstuðull, hlóðþrýstingur og kólesteról Öxfirðinga í aldurshópmun 35-65 ára eftir kyni og áhœttuhópum. Hópur Fjöldi Hæö Þyngd Þyngdar- stuöull Slagbils- þrýstingur Hlébils- þrýstingur Kólesteról 1 Karlar 8 176,8 94,9 30,4 129 83 6,8 Konur 5 165,2 95,6 34,9 140 87 8,0 2 Karlar 7 178,7 83,9 26,2 129 81 7,3 Konur 4 163,3 69,8 26,2 130 80 8,1 3 Karlar 24 178,6 82,5 25,9 126 76 5,6 Konur 20 163,8 77,1 28,7 129 78 5,4 4 Karlar 9 179,9 80,1 24,7 122 79 7,1 Konu 7 168,3 80,0 28,2 121 73 7,3 5 Karlar 21 180,0 85,6 26,4 120 74 5,1 Konur 21 165,2 73,1 26,8 114 72 4,8

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.