Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.04.1998, Qupperneq 35

Læknablaðið - 15.04.1998, Qupperneq 35
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 301 krabbameinsæxlum. Annars vegar er um að ræða DCC aðferð, sem hefur verið notuð á Rannsókna- stofu HI í meinafræði frá 1982 og hins vegar mótefnalitun á vaxinnsteyptum æxlisvef á vefja- sneiðum (IHC). Efniviður og aðferðir: Efniviður voru brjósta- krabbamein sem bárust á tímabilinu frá nóvember 1996 til desember 1997. Þegar mögulegt reyndist var tekinn vefur til hefðbundinnar DCC ákvörðunar á viðtökum fyrir estrógeni og prógesteróni og jafn- framt var framkvæmd mótefnalitun á vefja- sneiðum. Niðurstöður: Alls voru æxlin 92 og reyndist unnt að meta hormónaviðtakamagn við vefjalitun í öllum tilvikum en ekki tókst að ákvarða með DCC aðferð magn estrógenviðtaka í tveimur æxlum og heldur ekki prógesterónviðtaka í sjö æxlum. Gott samræmi kom fram í rannsókninni milli aðferðanna tveggja. Betra samræmi fékkst fram í ákvörðun estrógenviðtaka, eða 94%, en í ákvörðun pró- gesterónviðtaka 80%. Spágildisútreikningar sýndu að næmi DCC aðferðarinnar miðað við IHC aðferð var 96% fyrir estrógeni en 76% fyrir prógesteróni, en sérhæfni reyndist 95% fyrir estrógeni og 93% fyrir pró- gesteróni. Næmi IHC aðferðar miðað við DCC mælingar reyndist 99% fyrir estrógeni en 95% fyr- ir prógesteróni og sérhæfni reyndist 86% fyrir estrógeni en 68% fyrir prógesteróni. Af mælingun- um reyndust 8,6% vera með andstæðum niður- stöðum, þar af voru 12 ákvarðanir prógesterónvið- taka neikvæðir í DCC aðferð en jákvæðir í IHC aðferð. Alyktanir: Við mælum með að mótefnalitunin leysi af hólmi DCC aðferðina við ákvörðun horm- ónaviðtaka í brjóstakrabbameinum. E-14. Sýnitaka úr brjósti með ABBI tæki Þorvaldur Jónsson', Höskuldur Kristvinsson2 Frá 'skurðlœkningadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, 2handlœkningadeild Landspítalans Kembileit að krabbameini með röntgenmynda- töku hefur talsvert breytt forsendum fyrir töku skurðsýna úr meinsemdum í brjóstum kvenna vegna þess að myndataka greinir oft grunsamlegar meinsemdir sem eru ekki þreifanlegar. Til þessa hefur þurft að fjarlægja slíkar meinsemdir með fleygskurði í svæfingu eftir að svæðið hefur verið merkt við röntgenrannsókn, og oft þarf að taka röntgenmynd af sýni á eftir til þess að staðfesta að breytingin hafi verið fjarlægð. A síðasta ári var tekið í notkun hérlendis ABBI tæki (Advanced Breast Biopsy Instrument) þar sem brjóstmynda- og skurðsýnitökutæki er sameinað í eitt. Þessi tækni gerir kleift að framkvæma sýni- tökuaðgerð á óþreifanlegu brjóstameini á markviss- ari hátt en fyrr og framkvæma aðgerð í staðdeyf- ingu. Sýnitaka með ABBI hefur verið framkvæmd með sömu ábendingum og gilda fyrir fleygskurð, það er brjóstamein sem ekki þreifist við klíníska skoðun en er grunsamlegt fyrir illkynja sjúkdóm, annaðhvort á röntgenmynd eða frumusýni, en frumusýni hefur þó ekki verið óyggjandi fyrir krabbamein. Til þessa hefur í 17 tilfellum verið reynt að fram- kvæma aðgerð í ABBI tæki, hjá 11 konum vegna örkalkana í brjósti en hjá sex vegna hnúts. Aðgerð var ekki möguleg hjá fimm konum. Hjá einni sást meinsemd ekki við myndatöku, hjá annarri var meinsemd illa staðsett í brjóstinu, en hjá þremur var brjóst of lítið til þess að hægt væri að beita tæk- inu. Þessar konur fóru í hefðbundinn fleygskurð. ABBI sýnitaka var þannig framkvæmd hjá 12 kon- um. Grófnálarsýni var tekið hjá einni, en kjarnabor- un framkvæmd hjá 11. Allar aðgerðir leiddu til end- anlegrar greiningar. Ein kona fékk fylgikvilla í formi blóðgúls sem tæmdur var með ástungu. Vefjarannsókn sýndi góðkynja mein hjá átta konum og var frekari aðgerða ekki þörf hjá þeim. Illkynja mein fannst hjá fjórum konum og var síðan framkvæmd hjá þeim hefðbundin skurðaðgerð í samræmi við vefja- greiningu. Sýnt verður myndband um notkun ABBI tækis. E-15. Nýjung í kransæðaaðgerðum. Sjúkratilfelli Tóinas Kristjánsson, Bjarni Torfason Frá hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítalans Undanfarin misseri hefur rult sér til rúms ný teg- und kransæðaskurðaðgerða. Þetta er byltingar- kennd breyting á hefðbundnu aðgerðinni. Aðgerðin er framkvæmd í gegnum lítinn brjóstholsskurð, þó bringubeinsskurður (sternotomy) komi einnig til greina. Vinstri innri brjóstslagæð (LIMA) er notuð til tengingar á LAD handan æðaþrengslanna. Teng- ingin er saumuð á sláandi hjarta. Komist er hjá því að lama hjartað og nota hjartalungnavél. Þessi nýjung hentar best sjúkiingum með sjúk- dóm, einangraðan við nærlægt (proximal) LAD. Kostir umfram hefðbundna aðgerð eru minni al- menn bólguviðbrögð þar sem komist er hjá notkun hjartalungnavélar. Þetta þýðir minni verki og styttri legutíma, auk þess sem sjúklingar komast fyrr til vinnu.Um er að ræða kærkominn valkost sem aðal- lega mun nýtast sjúklingum sem nú eiga aðeins völ á kransæðablásningu (PTCA) eða lyfjameðferð. Einnig kemur þessi nýja meðferð til greina sam- tvinnuð við PTCA hjá mjög mikið veikum sjúk- lingum. Til að lýsa þessu nánar verður sjúkratilfelli kynnt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.