Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1998, Síða 41

Læknablaðið - 15.04.1998, Síða 41
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 307 E-26. Samanburður á notkun sevóflúr- ans, mídazólams og própófóls við inn- leiðslu og svæfingu vegna 82 dagdeild- araðgerða Gísli Vigfússon Frá Domus Medica Inngangur: Dagdeildarsvæfingar (outpatient anaesthesia) við aðgerðir eiga vaxandi vinsældunt að fagna. Kostir þeina eru minni kostnaður fyrir heilbrigðiskerfið, styttri legutími og minni sýking- arhætta. Á síðustu árum hafa komið á markaðinn bæði innöndunarlyf og innleiðslulyf sem sameina þá kosti að vera skjótvirk, stuttvirk og valda færri aukaverkunum en eldri lyf. Borin voru saman inn- leiðsla svæfingar, viðhald svæfingar, vöknun, dvöl á gæsluskála, aukaverkanir og útskriftartími við notkun mídazólams, sevóflúrans og própófóls. Efniviður og aðferðir: Sjúklingum var skipt í þrjá hópa. Allir hóparnir voru meðhöndlaðir fyrir svæfingu með verkja- og ógleðistílum, einnig fengu þeir mídazólam 5 mg og fentanýl í æð. I hópi I (29) var svæfing innleidd með própófóli 2 mg/kg og svæfingu viðhaldið með súrefni/glaðlofti og sevóflúrani 1,5-3%. í hópi II (26) var innleitt með sevóflúrani 8% og svæfingu síðan viðhaldið á sama hátt og hópi I. í hópi III (27) var svæfing innleidd með própófóli og síðan viðhaldið með súr- efni/glaðlofti og própófóli eftir þörfum. I öllum hópum var notaður kokmaski (larynxmask) og hringrásarkerfi með C02-eyði. í hópi II var tími þar til augnlokaviðbrögð hurfu og kokmaski var rétt staðsettur skráður. I öllum hópum var tími frá síðustu gjöf lyfs þar til sjúklingur var vaknaður skráður. Einnig tími frá aðgerð til útskriftar og fylgikvillar svæfingar. Borinn var saman kostnaður milli hópa. Niðurstöður: Meðalaldur sjúklinga var um 30 ár og meðalaðgerðartími um 60 mín. Meðaltími í hópi II þar til augnlokaviðbrögð hurfu og kokmaski var staðsettur var ein og tvær mínútur. Fjórir sjúkling- ar í hópi II hóstuðu og hjá tveimur þeirra kom til blóðþrýstingsfalls við innleiðslu. 1 hópi I og III var innleiðsla vandræðalaus. Meðaltími þar til gjöf lyfs var hætt og þar til sjúklingur svaraði kalli var sjö mínútur í hóp II, 7,5 mínútur í hópi I og 14 mínútur í hópi III. I hópi I höfðu 28% ógleði, 33% í hópi III og 42% í hópi II. Meðaltími fram að útskrift var svipaður í öllum hópunum eða um 100 mínútur. Kostnaður á tímaeiningu reyndist 25% lægri í hópi II en í hinum hópunum. Ályktanir: Allar aðferðir reyndust vel við dagdeildarsvæfingar. Aukaverkanir bæði við innleiðslu svæfingar og eftir svæfingu reyndust mun meiri í hópi II borið saman við hópa I og III. E-27. Mat á horfuni sjúklinga sem leggj- ast inn á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur með APACHE II stigun Einar Örn Einarsson, Kristinn Sigvaldason, Niels Chr. Nielsen Frá svœfinga- og gjörgœsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur Inngangur: Á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur leggjast inn um 600 sjúklingar árlega. Ástand þessara sjúklinga við innlögn er misjafnt og þörf fyrir meðferð mismikil. Vitneskja um ástand og horfur sjúklinga sem leggjast inn á gjörgæslu- deildir hérlendis er af skornum skammti og al- mennt er lítið vitað um árangur meðferðar. APACHE er kerfi sem þróað hefur verið til að meta ástand sjúklinga við innlögn. Það byggir á stigagjöf fyrir meðvitund (GCS), aldur, langvinna sjúkdóma og ástand sjúklings samkvæmt rannsóknarniður- stöðum og lífsmörkum fyrsta sólarhring á gjör- gæslu. Út frá APACHE stigun er hægt að reikna út horfur sjúklinga. Þetta kerfi hefur náð mikilli út- breiðslu og er víða notað til að bera saman gjör- gæsludeildir með tilliti tii álags og hvort árangur meðferðar sé sambærilegur milli stofnana. Athugun á horfum sjúklinga með tilliti til APACHE II stig- unar hefur ekki áður verið framkvæmd á íslandi og því ekki vitað hvort kerfið hæfi íslenskum aðstæðum. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna horfur sjúklinga sem innritast á gjörgæsludeild með tilliti til APACHE II stigunar. Einnig var kannað hvort horfur sjúklinga hafi breyst á tímabilinu eða hvort framfarir í meðferð hafi skilað sér í bættum horfum. Efniviður og aðferðir: Flestir sjúklingar eldri en 16 ára sem lögðust inn á gjörgæsludeild SHR árin 1994-1997 hafa fengið APACHE II stigun. Könnuð voru afdrif þessara sjúklinga. Reiknuð var fylgni APACHE II stigunar og dánarhlutfalls. Fundið var út meðaltal APACHE stigunar hvers árs og athugað hvort breytingar hafi orðið á. Skráður var legutími sjúklinga og tími í öndunarvél. Á árunum 1994-1997 lögðust 2.262 sjúklingar Niðurstöður: Ár Fjöld innlagna Meðal- legutími Fjöldi í öndunarvél Meðal- tími í vél Dánar- hlutfall APACHE- II stis 1994 545 4 208 4,1 8,8 11.9 1995 563 3,6 197 4 9,2 11,7 1996 597 3,4 225 4,1 8,2 10,3 1997 557 3,7 215 5,6 7,5 ii inn á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Flestir 1996 eða 597 sjúklingar og fæstir 1994 eða 545 sjúklingar. APACHE stig var skráð fyrir 1.892
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.