Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1998, Síða 44

Læknablaðið - 15.04.1998, Síða 44
310 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 arskurðdeildar 1990 á einmenningstölvur í DOS umhverfi. Arið 1992 var breytt yfir í Windows um- hverfi og notað FileMaker Pro fyrir biðlista og gagnageymsla flutt á miðlæga tölvu. Frá þeim tíma upphófst skipulögð tölvuþróun sjúkraskrárinnar með notkun uppskrifta (templates) fyrir öll blöð/ hluta sjúkraskrárinnar svo og öll vottorð Trygg- ingastofnunar ríksisins. Arið 1996 kom fram þörf á samtengingu mismunandi hluta sjúkraskrárinnar, tengingu við þjóðskrá, auk þess að undirbúa þurfti nýja sjúkdóms- og aðgerðarkóða. Þar sem sjúkra- skrárkerfi Gagnalindar fyrir heilsugæslu, SAGA, gat mögulega uppfyllt þær þarfir sem leitað var eft- ir, var kerfi bæklunarskurðdeildar steypt í SÖGU kerfið og virkni þess könnuð með sérstöku rann- sóknarverkefni í sjúkrahúsumhverfi. Efniviður og aðferðir: Þann 1. janúar 1997 hófst umbreyting allra blaða bæklunarskurðdeildar yfir í SÖGU kerfið. Þann 1. júní var nýja kerfið tekið til notkunar og reynt til 31. desember. Upphaf skráningar byrjar með innlagningarbeiðni og stofn- un biðlista og lýkur með læknabréfi og skráningu í legudeildarkerfi spítalans. Innlagningarbeiðni er tengd þjóðskrá, ICD-10, NOMESCO kóðum og Sérlyfjaskránni. Þegar innlagnardagur er settur stofnast vikuáætlun og þegar aðgerðardagur er val- inn stofnast aðgerðaráætlun og sjúklingur fer út af biðlista.Við stofnun sjúkraskrár flytjast nöfn og kóðar á sjálfvirkan hátt frá innlagningarbeiðni. Sjúkrasaga, heilsufarssaga, félagssaga, skoðun og samantekt er óbreytt. Við stofnun aðgerðarlýsingar þarf að setja texta í mat fyrir aðgerð og sérstakar at- hugasemdir; flettitakkar auðvelda fimm staðlaðar aðgerðarlýsingar. Að meðferð lokinni er stofnuð út- skriftarnóta, þar sem fram kemur gangur eftir aðgerð og fyrirhuguð meðferð eftir útskrift. Við stofnun læknabréfs er tilbúin sjúkdómsgreining, aðgerðarheiti, mat fyrir aðgerð, sérstakar athuga- semdir og útskriftarnóta. Ef ekki finnst aðgerðar- heiti er tekin sjúkrasaga í stað mats fyrir aðgerð. Niðurstöður: Markmið tilraunakeyrslunnar tókst en það var að samtengja alla þætti sjúkra- skrárinnar í eina möppu með rétta kennitölu, sjúk- dóms- og aðgerðarkóða. Auk þess náðist að upp- fylla eitt af þjónustumarkmiðum Landspítalans sem er að sjúkraskrá, læknabréfi og skráningu sjúklings skuli ljúka innan tveggja vikna frá því að meðferð lýkur. Þessi liður styttist að meðaltali um þrjá til sex mánuði miðað við áður. Með tilliti til þess að göngudeildarhlutinn hefur reynst vel á geðdeildinni og aðrir hlutar, þar á meðal lyfja- og ungbarnaeftir- lit ásamt skráningu á rannsóknarsvörum, hafa reynst vel í heilsugæsluumhverfi, má yfirfæra kerf- ið á allar deildir spítalans með minniháttar breyt- ingu. Framtíðarsamskipti við heilsugæslu ættu því að vera vandalítil. E-34. Bylting í tölvuvæddri slysaskrán- ingu Brynjólfur Mogensen', Baldur Johnsen2, Einar Hjaltason', Erna Einarsdóttir', Hildur Helgadótt- ir', Jón Baldursson' Frá slysa- og bráðasviði og 'upplýsingasviði Sjúkrahúss Reykjavíkur Inngangur: Slys eru mjög algeng á íslandi og má búast við því að um 60 þúsund manns slasist á hverju ári. Mikil persónuleg og félagsleg vandamál eru algeng í kjölfar slysa. Árlegur slysakostnaður þjóðarinnar mælist vart undir 20 milljörðum króna. Forsendan fyrir skynsamlegu forvarnarstarfi er þekking, sem fæst með nákvæmri slysaskráningu. Þannig er hægt að beita markvissum forvarnarað- gerðum, sem miða að því að fækka og fyrirbyggja framtíðarslys. Efniviður og aðferðir: Á slysa- og bráðamót- töku Sjúkrahúss Reykjavíkur var tekið í notkun 1. janúar 1997 fullkomnasta tölvuvædda slysaskrán- ingarkerfið sem völ er á. Um er að ræða norrænu slysa-, óhappa- og ofbeldisskráninguna. Þar er meðal annars leitast við að svara grundvallarspurn- ingum sem eru: „Hvað var viðkomandi að gera þegar slysið átti sér stað?“, „Hvar átti slysið sér stað?“, „Við hvaða aðstæður átti slysið sér stað?“ og „Hvers vegna átti slysið sér stað?“ eða „Hver var orsök slyssins?". Allar upplýsingar eru skráðar í tölvu við komu hins slasaða. Á auðveldan hátt er hægt að fá tölulegar og myndrænar upplýsingar um nánast allt sem hefur verið skráð. Verður greint nánar frá ofbeldi, umferðar-, barna- og frítímaslys- um. Á sama tíma hefur verið þróuð tölvuvædd bráðasjúkraskrá, sem mun auðvelda mikið störf lækna, hjúkrunarfræðinga og ritara. Vinnuferlið og þróunarvinnan hefur lagt miklar auka byrðar á starfsfólk slysa- og bráðamóttökunnar, sem von- andi fer að sjá fyrir endann á. Ályktanir: Við vonumst til að með bestu mögu- legri tölvuvæddri slysaskráningu og bráðasjúkra- skrá getum við tekið púlsinn á því sem er að gerast. Rannsóknarmöguleikarnir eru nánast ómældir. Við eigum að geta veitt strax upplýsingar til forvarn- araðila í því skyni að grípa í taumana, fækka og fyr- irbyggja framtíðarslys. Við vonumst til að þjóðin eigi eftir að njóta góðs af. E-35. Magakrabbamein á íslandi. Hvar stöndum við nú? Eitt hundrað níutíu og þrjár aðgerðir á Landspítalanum og Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri á ár- unum 1980-1995 Skúli Gunnlaugsson', Auður Smith', Shree Datye2, Margrét Oddsdóttir', Jónas Hallgrímsson', Jónas Magnússon' Frá 'handlœkningadeild Landspítalans, 'handlœkn-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.