Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1998, Síða 46

Læknablaðið - 15.04.1998, Síða 46
312 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 E-38. Vefjahitameðferð með leysigeisla í heilbrigðri lifur svína. Ahrif blóðflæðis á stærð vefjaskemmdar og útlit í óm- skoðun Páll Helgi Möller', Pétur Hannesson2, Unne Sten- ram’, Kjell Ivarsson’, Johan Olserud’, Karl-Cöran Tranberg’ Frá 'handlœkningadeild Landspítalans, ’röntgen- deild Sjúkrahúss Reykjavíkur, ’handlcekninga- og meinafrœðideild Háskólasjúkrahússins í Lundi, Svíþjóö Inngangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvaða áhrif blóðflæði hefur á stærð vefja- skemmdar og útlit ómskoðunar eftir vefjahitameð- ferð með leysigeisla. Efniviður og aðferðir: Svín voru meðhöndluð með vefjahitameðferð með leysigeisla (markhita- stig 43°C) með eða án blóðflæðis til lifrar (afköst leysigeisla 3W) eða með blóðflæði til lifrar (afköst leysigeisla 5W). Vefjahitameðferð með leysigeisla var framkvæmd með Nd:YAG leysi og hitastigs- stýrðri endurgjöf. Omskoðun var framkvæmd að meðferð lokinni. Stærð vefjaskemmdar var metin með smásjárskoðun og ónæmisvefjafræðilegri aðferð með brómódeoxýúrídíni til að meta lífvæn- leika frumnanna. Niðurstöður: Omríkar breytingar sáust þegar lokað var fyrir blóðflæðið eða þegar kolun átti sér stað. Ef kolun átti sér ekki stað eða þegar ekki var lokað fyrir blóðflæðið sáust ómsnauðar breytingar. Mesta breidd vefjaskemmdar án blóðflæðis var 21,4±0,9 (means±SEM) mm sem var tvisvar sinn- um stærra en við óskert blóðflæði (p<0,01). Með því að auka afköst leysigeislans úr 3 í 5 W við óskert blóðflæði, átti sér stað mikil kolun og lítils- háttar stækkun vefjaskemmdar. Þegar skoðað var meðaltal vefjaskemmdar, spáði ómskoðun við lok- að blóðflæði réttilega fyrir um stærð hennar en áætlaði hana stærri við óskert blóðflæði. Om- skoðun gat ekki spáð fyrir um stærð vefjaskemmd- ar í einstökum rannsóknum. Alyktanir: Blóðflæði hefur veruleg áhrif á stærð vefjaskemmdar í lifur við vefjahitameðferð með leysigeisla og hefur áhrif á útlit vefjaskemmdar við ómskoðun. Ómskoðun eftir vefjahitameðferð með leysigeisla er ekki fullnægjanleg aðferð til að segja lil um stærð vefjaskemmdar. E-39. „Mini-laparoscopy“ Anna Gunnarsdóttir, Margrét Oddsdóttir, Jónas Magnússon Frá handlœkningadeild Landspítalans Kviðsjáraðgerðir eru í sífelldri þróun. Bæði eru æ fleiri aðgerðir framkvæmanlegar um kviðsjá og einnig eru tækin og tæknin í örri þróun. „Mini-la- paroscopy" eru kviðsjáraðgerðir með mun minni áhöldum en hefðbundið er. Helsti kostur þessara áhalda eru minni skurðir en helsti ókosturinn er að enn eru áhöldin nokkuð frumstæð. Nú í vetur voru gerðar á handlækningadeild Landspítalans tvær gallkaganir þar sem reynd voru 2,5 mm áhöld í stað 5-10 mm áhalda sem venjulega eru notuð. Aðgerðirnar gengu vel. Sýndar verða myndir úr aðgerðunum. Þá verða notkunarmöguleikar ásamt kostum og göllum ræddir. Fínlegri áhöld eru án efa það sem koma skal í kviðsjáraðgerðum þar sem þróunin er í þá átt að gera fleiri og stærri aðgerðir með minni inngripum. E-40. Gallsteinn í kviðslitssekk. Fylgi- kvilli eftir gallkögun Guðrún Aspelund', Páll Helgi Möller', Margrét Oddsdóttir', Helgi J. Isaksson2, Jónas Magnússon' Frá 'handlœkningadeild Landspítalans, ’Rann- sóknastofu Háskólans í meinafrœði Sextíu og sjö ára karlmaður fór í gallkögun 1997. Hafði haft einkenni um endurtekin gallsteinaköst og ómskoðun sýndi I cm stóran stein og þykk- veggja gallblöðru. I aðgerðinni kom gat á gall- blöðruna og hún tæmdist af galli. Sjúklingur út- skrifaðist á þriðja degi eftir aðgerð. Við eftirlit 10 dögum eftir aðgerð kvartaði sjúk- lingur yfir óþægindum um neðanverðan kvið, vinstri nára og pung. Við skoðun sást mar í nára og pung vinstra megin og kviðslit í vinstri nára. Óm- skoðun og sneiðmynd sýndi vökva, líklega gamalt blóð, umhverfis kólf (funiculus spermaticus) sem teygði sig niður í pung og endaði í vel afmörkuðum sekk sem innihélt um 1 cm stóran stein að útliti eins og gallsteinn. Mánuði eftir gallkögunina kom sjúklingur til viðgerðar á kviðslitinu. 1 aðgerð kom í ljós þykknaður kviðslitssekkur, sem innihélt fitu en einnig brúnleitan vökva og tvo steina, um 0,5-1 cm í þvermál. Vefjagreining sýndi kviðslitsvef með ósérhæfðri bráðri og langvinnri bólgu. Innihald sekksins reyndist vera kalkað fitudrep og gall- steinn. Við gallkögun er algengt að gat komi á gall- blöðru þannig að gall og steinar fari út í kviðarhol. Mælt er með að skolað sé vel og sogað ef gat kem- ur á gallblöðru í aðgerð og reynt að ná út öllum steinum. Einnig að gallblöðru sé fylgt eftir kviðsjá þegar hún er tekin út í gegnum kviðvegg, nota poka og stækka skurð eða soga innihald úr gallblöðru ef hún er þanin eða með stóra steina.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.