Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.1998, Page 48

Læknablaðið - 15.04.1998, Page 48
314 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 greinum og sjúkdómum. Ljóst er að sjúklingar eru samvinnufúsir við eftirlit af þessu tagi og jafnframt virðist tíðni sýkinga vera vel innan eðlilegra marka á deildinni. E-44. TRAM flipa-aðgerð hjá konum með lægra miðlínuör á kviðvegg. Kynn- ing tveggja sjúkratilfella Jóhanii R. Guðmundsson', Sigurður E. Þorvalds- sonRafn A. Ragnarsson' Frá 'lýtalœkningadeild Landspítalans, 'skurðlœkn- ingadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur Endursköpun brjósts með eigin vef í kjölfar brottnáms gefur jafnan eðlilegra brjóst en endur- sköpun með sílíkon gervibrjóst eða vefþenslupoka. Á Islandi hefur aðallega verið notast við TRAM flipa (transverse rectus abdominis myocutaneous flap) sem getur annað hvort verið fluttur sem frýr llipi, tengdur við æðar í holhönd eða sem stilkaður flipi á magálsvöðva. I báðum tilvikum er óhindrað blóðflæði yfir miðlínu nauðsynlegt til að tryggja blóðflæði til alls flipans. Miðlínuör hefur því verið frábending fyrir þessa aðgerð. Með áveituaðgerð, það er smáæðatengingu á milli flipahelminganna, hefur fundist lausn á þessu vandamáli sem skýrt verður með tveimur nýlegum sjúkratilfellum. E-45. Reðurgroppuinnspýtingar við getuleysi. Framskyggn rannsókn á 97 sjúklingum Guðmundur Vikar Einarsson Frá þvagfœraskurðdeild Landspítalans Inngangur: Getuleysi karla eykst stöðugt eftir 50 ára aldur. Með nýjurn meðferðum hefur vanda- málið komið meira upp á yfirborðið. I 12 ár hafa verið notaðar lyfjainnspýtingar, fyrst með papaver- íni en síðustu árin prostaglandin E|. Erfitt er að meta árangur en helst er að nota þann mælikvarða hvort sjúklingar séu ánægðir. Efniviður og aðferðir: Fylgst var með 97 karl- mönnum sem lærðu að sprauta sig sjálfir í reður- groppu (corpus cavernosum) með prostaglandin El (Caverject®). Rannsóknin tók rúm þrjú ár. Skráður var aldur sjúklings og reynt að gera sér grein fyrir orsök getuleysisins og hvort sjúklingur hefði notað papaveríni áður. Þegar sjúklingnum var kennt að sprauta sig var um leið skoðað hvort reðurinn tútn- aði. Skráð var hversu mikið magn sjúklingurinn þurfti að nota og hvort ánægja væri með risið. Leit- ast var eftir því að ftnna hvort einhver merki sí- stöðu (priapismus) hefðu átt sér stað. Aukaverkan- ir voru skráðar. Niðurstöður: Aldur sjúklinganna dreifðist frá 35 til 85 ára aldurs og þar af voru 68 á aldrinum 51-70 ára. Algengustu orsakirnar virtust vera slagæða- þrengingar en aðrar orsakir voru færri og af ýmsum toga, svo sem sálrænar (10), taugasjúkdómar (5), sykursýki (4), Mb. Peyronies (3) og fleiri. Flestir notuðu fyrst 5 pg í byrjun en stærsti hlutinn jók það síðan í 10 pg en sumir þurftu 20 pg. Af 70 sjúk- lingum voru 57 ánægðir með árangurinn, fimm sæmilega, þrír ef til vill ánægðir og fimm voru óánægðir. Þeir sem voru óánægðir kvörtuðu um skort á sáðláti (1), of langa reðurstöðu (1), dýrt lyf (2), yfirlið vegna hræðslu við nálar (1), verk (1) og boginn reður (1). Einn fékk fimm til sex klukku- tíma reðurstöðu sem var lokið þegar hann kom á sjúkrahúsið til skoðunar. Tuttugu og sjö sjúklingar komu ekki í eftirlit og er ekki vitað um árangur þess hóps. Ályktun: Erfitt er að gefa hlutlægt mat við meðferðir vegna getuleysis. Þó virðist samkvæmt ofangreindum niðurstöðum að prostaglandin E1 sé áhrifaríkt lyf þegar sjúklingurinn fær góða kennslu í upphafi. Til þess að forðast aukaverkanir virðist mikilvægt að byrja með litla skammta, sérstaklega hjá þeim sem hafa gott slagæðakerfi. Með tilliti til þess hversu margir voru ánægðir með árangurinn þá er fyllsta ástæða til að halda áfram notkun reðurgroppuinnspýtinga. E-46. Frainskyggn rannsókn á reður- prótesu með dælu Guðmundur Vikar Einarsson, Gitðjón Haraldsson Frá þvagfœraskurðdeild Landspítalans Inngangur: Getuleysi karla er algengt eftir 50 ára aldur. 1 mörg ár hafa reðurprótesur verið notað- ar en reðurgroppuinnspýtingar (cavernous) hafa dregið nokkuð úr notkun þeirra. Undanfarin ár hef- ur notkun reðurprótesu með dælu aukist. Á Land- spítalanum höfum við í nokkur ár sett inn slíkar prótesur. Við ákváðum í upphafi að skrá og fylgjast með árangri þessara meðferða. Efniviður og aðferðir: í rannsókinni voru 15 sjúklingar sem höfðu reynt aðrar aðferðir til hjálp- ar getuleysinu. svo sem testósterón, reðurgroppu- innspýtingar, annaðhvort með prostaglandin E1 eða papaveríni, og reðurrisdælur (vacuum constrictions devices) með teygju. Skráður var aldur sjúklings, fyrri meðferðir, tegund og lengd prótesu, lengd reðurs, aukaverkanir í aðgerð, sýklalyf fyrir, í og eftir aðgerð, undirbúningur fyrir aðgerð, lengd sjúkrahúsdvalar, aukaverkanir eftir aðgerð og fylgst með hvort hann væri ánægður með prótesuna Niðurstöður: Fiestir sjúklinganna voru á aldrin- um 61-70 ára (9) en enginn var eldri en 71 árs. Flestir þeirra höfðu slagæðaþrengingar (ather- osclerosis), en tveir höfðu fengið geislameðferð við blöðruhálskirtilskrabbameini, einn var með helftar- lömun eftir mænuskaða og annar sykursýki. Flestir höfðu reynt að nota bæði reðurinnspýtingar og

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.