Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 50

Læknablaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 50
316 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 Helsta vandamál við meðhöndlun sjúklinga með staðbundið krabbamein í blöðruhálskirtli er að spá fyrir hvaða sjúklingur sé líklegur til þess að fá skæðan sjúkdóm og þarfnast því meðhöndlunar á frumstigi. Flestar rannsóknir hafa sýnt fram á að stökkbreytingar í krabbameinsbæligeninu p53 eru frekar sjaldgæfar í blöðruhálskirtilskrabbameini og mikilvægi þeirra í æxlismynduninni er ekki þekkt. Markmið rannsóknarinnar var að kanna tíðni og mikilvægi stökkbreytinga í p53 í blöðruhálskirtils- krabbameinum. Efniviður og aðferðir: Alls greindust 152 ein- staklingar með krabbamein í blöðruhálskirtli á tveggja ára tímabili (1983-1984). DNA úr æxlum til stökkbreytigreiningar voru til úr 111 einstakling- um. Tengsl stökkbreytinga við Gleason gráðun og stig við greiningu ásamt lifun sjúklinganna var at- huguð. Fjölþátta Cox greining var notuð við mat á mikilvægi p53 stökkbreytinga með tilliti til lifunar. Niðurstöður: Af 111 einstaklingum sem greind- ust með krabbamein í blöðruhálskirtli yfir tveggja ára tímabil voru 13 (11,7%) með stökkbreytingu í p53. Þeir höfðu styttri lifun samanborið við þá sem ekki höfðu genabreytinguna. I ljós kom að þennan mun má skýra með því að æxlin með p53 stökk- breytingu voru í öllum tilfellum langt gengin (há stig og gráða) og í fjölþátta Cox greiningunni tapaði p53 sjálfstæðu spágildi Alyktanir: Stökkbreytingar í p53 geninu eru fremur sjaldgæfar og verða seint í myndunarferli krabbameina í blöðruhálskirtli og koma því ekki að notum við greiningu æxlisins á frumstigi. E-50. Nýblöðrur á þvagrás. Nýjung á ís- landi Eiríkur Jónsson, Guðmundur Geirsson, Geir Olafsson Frá þvagfœraskurðdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur Inngangur: Hefðbundin þvagveita (urinary diversion) eftir brottnám þvagblöðru er ileal con- duit (bricker blaðra). Þá er þvagi veitt um görn á kviðvegg og sett stómía. Krafa sjúklinga um bætta líkamsímynd og lífsgæði hefur leitt til annarra úrræða þar sem ný þvagblaðra er búin til úr görn og saumuð á þvagrás og þvagloka nýtt áfram við þvag- stjórnun. Sjúklingar sem hafa nýrnabilun (kreatínín >250 pmól/l), krabbamein við blöðruhálsinn, alvar- legan garnasjúkdóm eða eru ófærir um að fram- kvæma hreina sjálftæmingu (ef þörf krefur) ættu ekki að fá nýblöðru. Langtíma aukakvillar við ný- blöðrur umfram hefðbundna þvagveitu eru helstir: næturþvagleki (um 20%), nýblöðru-þvagrásar- þrengsli (10%) og nýblaðra getur sprungið við yfir- þenslu (1-2%). Efniviður og aðferðir: Alls hafa fjórir karlmenn fengið nýblöðru á síðustu 12 mánuðum á þvagfæra- skurðdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Þrír höfðu staðbundið krabbamein í þvagblöðru og einn svæs- inn interstitial cystitis. Niðurstöður: 1 öllum tilvikum voru 40 cm af dausgörn (ileum) notaðir við gerð nýblaðranna og sjö þvagleiðarar saumaðir þannig að bakflæði yrði ekki. Einn sjúklinganna hafði efri þvagleiðara- þrengsli öðrum megin sem lagfærð voru við aðgerðina. Hjá öðrum opnaðist skurður á fimmta degi en að öðru leyti var lega áfallalaus. Blóðgjafir 0-4 einingar, aðgerðartími 5-8 klukkustundir og legutími 14-21dagur. Þeir tveir sem hafa eftirlits- tíma lengur en þrjá mánuði hafa góðan dag-kont- ínens 0-1 bindi og eru þurrir á nætur með því að vakna einu til tvisvar. Þeir tæma blöðruna án þess að þurfa að nota þvagleggi. Alyktanir: Öllum sjúklingum, án ofannefndra frávísana sem standa frammi fyrir brottnámi þvag- blöðru. ætti að bjóða upp á gerð nýblöðru. E-51. Breytingar á nýgengi framhand- leggsbrota í Malmö, Svíþjóð Brynjólfur Jónsson', Urban Bengnér, Inga Red- lund-Johnell2, Olof JohnelF Frá 'Sjúkrahúsi Akraness, 2bœklunardeild liáskóla- sjúkrahússins í Mahnö, Svíþjóð Inngangur: Við samanburð á tíðni framhand- leggsbrota í Malmö milli sjötta og níunda áratugs þessarar aldar kom í ljós aukning á nýgengi fram- handleggsbrota. Markmið þessarar athugunar var að fylgja sama þýði eftir með tilliti til breytinga á nýgenginu. Efniviður og aðferðir: Safnað var gögnum um öll brot á framhandlegg árið 1991 á röntgendeild- inni í Malmö. Allar myndir voru skoðaðar en brot vegna krabbameins og gömul brot útilokuð. Ný- gengið var reiknað og borið saman við nýgengið eins og það hefur verið birt áður fyrir árin 1953- 1957 og 1980-1981. Niðurstöður: Hjá karlmönnum var 40-70% aukning á nýgengi brota í aldurshópunum 10-19 ára og 50-69 ára, miðað við tölur frá níunda ára- tugnum. Miðað við tölur frá sjötta áratugnum jókst nýgengið 1,8-6 sinnum í öllum aldurshópum nema hjá körlum sem voru 70 ára og eldri. Hjá konum fannst 40-55% minnkun á nýgenginu í aldurshópum 30-69 ára við samanburð milli ár- anna 1980-1981 og 1991-1992. Hins vegar sýndi samanburður við árin 1953-1957 engar marktækar breytingar á nýgengi nema 2,5-3,4 falda aukningu í aldurshópum yfir 70 ára. Meðaltal frostdaga á ári á tímabilinu var 82,6 á árunum 1953-1957, 107 árin 1980-1981 og 46,5 árin 1991-1992. Umræða: Hin sýnilega aukning á tíðni fram- handleggsbrota í Malmö virðist hafa stöðvast ef borin eru saman tímabilin 1991-1992 og 1980-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.