Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1998, Síða 62

Læknablaðið - 15.04.1998, Síða 62
328 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 / Forvarnir á Islandi gegn blindu vegna sykursýki verða öðrum fyrirmynd Einar Stefánsson og Friðbert Jónasson eru meðal þeirra augn- lækna sem sinna leysimeðferð vegna augnsjúkdóma. Ljósm.: -jt- Forvarnir á íslandi við augnsjiikdómum sem leitt geta til blindu hjá sjúklingum með sykursýki hafa vakið athygli erlendis og hefur meðal annars verið vakin athygli á þeim í greinum og fréttum í tímarit- um um augnlækningar. Þannig segir í frétt í Eye World að for- ysta Islendinga í þessum efn- um geti komið fleirum á það spor að uppræta nánast blindu mcðal sykursjúkra. Augnlæknarnir Einar Stefáns- son prófessor og Friðbert Jónas- son greindu í samtali við Lækna- blaðið frá þessu starfi sem geng- ur út á að fylgjast reglulega með sjúklingum sem greinast með sykursýki og hefja meðferð ef fram koma einkenni um augn- sjúkdóma. Segja þeir lykilatriði að geta hafið meðferðina á rétt- um tíma, þegar bestar líkur séu á lækningu. Einar segir að Þórir Helgason hafi árið 1976 byrjað forvarna- starf með tilliti til sykursýki og augnsjúkdóma en frá árinu 1980 hefur Friðbert haldið því áfram og aðrir augnlæknar einnig kom- ið við sögu. „Ein af meginorsökum hlindu í heiminum eru augnsjúkdómar sem tengdir eru sykursýki,” seg- ir Einar, „og á það við um Bandaríkin, Vestur-Evrópu og fleiri lönd og hún er algengasta orsök blindu fólks á aldrinum 24 til 65 ára. Þetta er því gríðarlegt heilbrigðisvandamál og því hef- ur verið brýnt að reyna að finna leiðir til að draga úr þessum skaða.” Friðbert og Einar segja að síð- ustu sex til átta árin hafi verið metinn árangur meðferðar meðal sykursjúkra hérlendis sem fengið hafa augnsjúkdóma. I ljós hafi komið að tekist hafi að draga mjög úr sjóndepru með því að fá þessa sjúklinga reglulega til skoðunar árlega eða annað hvert ár. „Það er kannski einkum þetta kerfi sem erlendum læknum þykir sérstakt,” segja þeir Frið- bert og Einar. „Hér hefur orðið margföld lækkun á algengi sjón- depru og blindu hjá sykursjúkunt vegna þess að þessi sjúklinga- hópur er sendur reglulega til augnlækna sem geta gripið inn í með viðeigandi meðferð, oftast leysimeðferð.” Augnlæknarnir segja að í þess- um efnum skipti höfuðmáli varð- andi árangur meðferðar að geta hafið hana á réttum tíma. Þegar ákveðin merki um breytingar í sjónhimnu sjáist sé mikilvægt að geta hafið meðferðina og því sé reglulegt eftirlit nauðsynlegt. Þar segja þeir Islendinga standa framar öðrum þjóðum, hér sé einfaldara að hvetja til forvarna af þessum toga og læknar sem meðhöndli sjúklinga með sykur- sýki bendi þeim á mikilvægi þess að fylgst sé með augnhag þeirra. Þeir segja náið samstarf milli lækna um þessi mál og því hafi tekist að koma upp og við- halda góðum forvörnum hér- lendis hvað þetta varði. Hætta á augnsjúkdómum helst í hendur við hversu lengi sjúklingar hafa haft sykursýki en aðrir þættir geta einnig haft áhrif, svo sem hár blóðþrýstingur, reykingar og sérstaklega er hár blóðsykur mikilvægur áhættuþáttur. Alls um 2.500 sjúklingar með sykursýki Talið er að um 86% sykur- sjúkra verði fyrir breytingum í augum af völdum sykursýki og þarf um 30-40% af þeim hópi að fara í leysimeðferð einhvern tím- ann. Segja þeir árangur meðferð- ar mjög góðan ef tekst að veita hana á réttum tíma. Hér á landi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.