Læknablaðið - 15.04.1998, Side 70
334
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Um skottulækningar
Árni Björnsson
„Skalat maðr rúnir rista
nema ráða vel kunni“
Erindið er helgað fyrsta íslendingnum sem
vitað er að hafi andmælt skottulækningum.
Þeir sem þekkja Egils sögu (1)
þekkja að sjálfsögðu söguna um
Verrnalandsferð hans en þá ferð
fór hann til að innheimta skatt
fyrir Hákon Aðalsteinsfóstra
Noregskonung. Egill valdist til
fararinnar vegna orðstírs síns
sem hetja og kappi. En bændur á
Vermalandi höfðun legið á því
lúalagi að láta skattheimtumenn
konungs hverfa og því heimtust
skattar þaðan illa. Svo var Há-
koni konungi ekki sérstök eftir-
sjá að Agli, því hann og ættmenn
hans höfðu stundum reynst kon-
ungum Noregs óþægur ljár í
þúfu. Oþarft er að orðlengja það
að Egill vann í ferð þessari mörg
frægðarverk. Hann felldi þar
einn 11 fyrirsátarmenn bænda.
Spjó uppí gestgjafa sinn Amóð
skegg, eftir skyrát og ótæpilega
öldrykkju, og krækti svo úr hon-
um auga að skilnaði, en skilaði
skattinum að lokum með skilum
í hendur konungs.
Eitt frægðarverk hans í þessari
ferð stingur þó nokkuð í stúf við
hin.
A heimleiðinni koma þeir fé-
lagar á bæ og biðjast gistingar, er
hún fúslega heimil og þeim veitt-
ur góður beini. Félagamir taka
eftir því að heimilisfólkið á bæn-
Fyrirlestur fluttur á vegum
Hollvinafélags læknadeildar
Háskóla íslands.
um er óglatt í bragði og komast
að raun um að það stafar af sjúk-
leika heimasætunnar, sem liggur
rúmföst og virðist sárþjáð. Egill
spyr “hvárt nokkurs hafi verið
leitað til um lækningar”. Honum
er sagt að bóndasonur af næsta
bæ, sem reyndar hefur litið
meyna hýru auga, hafi rist henni
rúnir á tálkn (hvalskíði?) sem
hún nú liggi á, en við það hafi
líðan hennar versnað. Egill
gengur til meyjarinnar, fer um
hana höndum og dregur undan
henni tálkn með rúnaristum.
Hann skefur rúnimar í eld og
kastar þar í tálkninu ásamt sæng-
urfötum meyjarinnar. Að því
búnu ristir hann rúnir á nýtt
tálkn, kemur því fyrir undir
meynni og henni batnar snar-
lega. Svo kveður hann vísu.
Skalat maðr rúnir rista
nema ráða vel kunni
það verðr mörgum manni
er of myrkvan staf villist.
Sá ek á telgdu tálkni
tíu luunstafi ristna
það hefur lauka lindi
langs oftrega fengið.
Ekki veit ég hvort fræðimenn
um Egils sögu hafa velt því fyrir
sér hvaðan þessi frásögn er kom-
in inn í hetjusögu eins og Eglu,
því hvergi annars staðar er þess
getið að Egill hafi verið læknis-
fróður eða stundað lækningar.
Gæti verið að höfundur sögunnar
hafi þurft að finna vísunni stað?
Hinsvegar er boðskapur hennar
sígildur, svo nú sem á dögum
Egils. Það getur verið varasamt
að fikta við hluti sem maður
kann ekki alltof vel.
Skilgreining hugtaka
Hvað eru skottulækningar?
Orðið á ekkert skylt við orðið
skott, heldur mun átt við eitthvað
sem er stutt eða skammt, saman-
ber skottutúr og Sveinn skotti,
líklega er orðið skylt enska orð-
inu sliort. Ekki er vitað hvers
vegna lækningar sem ekki eru
byggðar á fræðilegum grunni
fengu þetta nafn. Hugsanlega
vegna þess að þekkingargrunn-
urinn er stuttur, hugsanlega
vegna þess að áhrif þeirra entust
skammt. Til eru önnur orð yfir
skottulækningar, svo sem kukl
eða kvakl, en það er þýðing á