Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 79

Læknablaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 79
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 343 frá grunni. Slík þróun er yfir- gripsmikið verk og krefst þátt- töku margra, enda einnig dýrt og tímafrekt. Islenskir læknar ættu frekar að einbeita sér að því að staðfæra og aðlaga þær verklags- reglur, sem til eru meðal ná- grannaþjóðanna eftir því sem hentar. Hafa ber í huga að verk- lagsreglur um sama efni geta verið mismunandi milli einstakra hópa lækna og ekki alltaf hægt eða æskilegt að ná um slíka hluti fullt samráð. Einnig ber að und- irstrika að góð dómgreind lækn- is og einstaklingsmiðuð meðferð sjúklinga mun alltaf eiga rétt á sér. Þá er oft um að ræða sér að- stæður, þar sem þarf að fara út fyrir verklagsreglur. HEIMILDIR 1. Marvick J, Grol R, Borgiel A. Quality Assurance for Family Doctors. Report of the Qualitv Assurance Working Party World Organisation of Family Doctors, 1992. 2. Grol R, Larvrence M. Quality Iinprovement by Peer Revicvv. Oxford University Press, 1995. 3. Grol R, Wcnsing M, Jacobs A, Baker R. Quality Assurance in General Practice. Thc Statc of the Art in Europe, WONCA European Working Party on Qu- ality in Family Practice (EQuiP), Dutch College of General Pract- ice (NHG), 1993. 4. The Development and Implem- entation of Clinical Guidelines. Royal College of General Practit- ioners. Report from General Practice 26, 1995. Enn og aftur Reykingar á sjúkrahúsum Ég hef í seinni tíð haft vaxandi mætur á Ólafi Ólafssyni land- lækni. Lítilmagna þjóðfélagsins ver hann með oddi og egg og ekki skirrist hann við að senda stjórn- völdum tóninn þegar svo ber und- ir. Nú hefur landlæknir fundið sér nýja skjólstæðinga sem sé volaða tóbaksfíkla sem oft eru litnir hornauga og af sumum taldir óalandi og óferjandi. Að mati Ólafs hafa hinir nýju vinir hans fullan rétt á því að svæla sitt tó- bak inni á sjúkrastofnunum og ekki nóg með það heldur ... „ber yfirmönnum sjúkrahúsa að koma upp reykingaafkima fyrir þá sem í vanda eru staddir vegna þessa“. Landlæknir blæs á aukaatriði svo sem það að hvergi fyrirfinnst lagabókstafur um þessa skyldu yfirmanna sjúkra- stofnana. Auðvitað varð ég jafn undrandi og aðrir á þessum skoð- unum sem birtust í marshefti Læknablaðsins sem dreifibréf landlæknis. Aðalröksemd Ólafs virðist sú að allir eigi að hafa rétt á þeirri bestu heilbrigðsþjónustu sem völ er á. Auk þess að vera óskiljanleg felur röksemdin í sér öfugmæli því varla verður reykskonsa kennileiti þeirrar „bestu heil- brigðisþjónustu sem völ er á.“ Auðvitað dettur engum í hug að úthýsa nikótínistum þegar hægt er að hjálpa þeim með úrræðum nútíma læknisþjónustu. Undirritaður hefur lengi barist fyrir afnámi reykinga á sjúkra- stofnunum svo sem með erinda- flutningi á leiðbeinendanám- skeiðum Heilbrigðisráðuneytisins víða um landið. Engar óyfirstíg- anlegar hindranir standa í vegi þess að gera sjúkrastofnanir reyklausar. A meðan reykinga- mönnum fækkar, fjölgar úrræð- um þeim til hjálpar. Hörðustu tó- baksmenn fá nú fíkn sinni svalað á auðveldan hátt með nikótínlyíj- um auk þess sem vel menntað starfsfólk sjúkrahúsa hjálpar mörgum með fræðslu og ráðlegg- ingum. A Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað, mínum núverandi vinnustað, hefur síðastliðna átta mánuði verið algert reykbann meðal sjúklinga og enn lengur meðal starfsfólks. Reykingamenn eru að sjálfsögðu velkomnir hing- að eins og aðrir sem á okkar hjálp þurfa að halda enda eiga allir sama rétt á lækningu. Hins vegar eru reykingar bannaðar á sjúkra- húsinu rétt eins og áfengisneysla enda er hér hvorki reykkompa né vínstúka. Þeir skjólstæðingar okkar sem reykja fá hins vegar fræðslu og nikótínlyf eftir þörfum enda taka þeir reykbanninu vel og þess hefur ekki orðið vart að þeim hafi fundist á rétt sinn gengið. Að fenginni reynslu hvarflar ekki að starfsmönnum FSN að snúa til fortíðar með því að útbúa afdrep fyrir reykingamenn enda höfum við ekki húsnæði fremur en aðrir til að bruðla með. Sú skoðun landlæknis að áfram skuli opnar reykkompur á sjúkra- stofnunum er tímaskekkja sem vonandi dregur ekki kjarkinn úr þeim sem senda vilja skilaboð til almennings um skaðsemi reyk- inga. Björn Magnússon yfirlæknir Fjórðungs- sjúkrahússins í Neskaupstað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.