Læknablaðið - 15.06.1999, Page 33
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
529
formi (teymisvinnu). Staðsetning deildar sem
veitir meðferð (taugalækninga-, lyflækninga-,
öldrunarlækninga- eða endurhæfingardeilda)
hefur ekki áhrif á árangur meðferðar. Árangur
heilaslagdeilda er bestur þegar meðferð er veitt á
staðbundinni deild og betri en þegar nýtt er
hreyfanlegt teymi sérfræðinga.
Kostnaður vegna bráðasjúkrahúslegu/-end-
urhæfingar á heilaslagdeild eykst sennilega ekki
þar sem sjúkrahús-/endurhæfingardvöl hefur
reynst sú sama eða örlítið styttri en við hefð-
bundna meðferð. Langtímakostnaður er minni
þar sem færri sjúklingar þurfa á langtímavistun
að halda.
Inngangur
Þar sem ekkert eitt gott íslenskt orð er til yfir
enska orðið stroke, legg ég til að orðið heila-
slag verði notað. Hérlendis er málvenja að nota
heilablóðfall sem samheiti yfir heiladrep og
heilablæðingar. Heilablóðfall hefur óljósa merk-
ingu meðal almennings, vísar fremur til heila-
blæðinga en dreps (heilablóðþurrðar) og veldur
því notkun þess ruglingi hvað orsök heilaskaða
varðar. Heilaslag (stroke) felur í sér bæði heila-
blóðfall (80% heilaslaga) og heilablæðingu
(20%), en oft er ekki hægt að greina þessa tvo
sjúkdóma í sundur, út frá sögu og skoðun.
Heilaslag er þriðja algengasta dánarorsök á
Vesturlöndum, á eftir hjartasjúkdómum og
krabbameini. Tíðni heilaslags á íslandi er ekki
þekkt, en í flestum vestrænum ríkjum er árlegt
nýgengi heilaslaga yfir 200 á 100.000 íbúa (1),
fyrir Island þýddi það yfir 540 miðað við
270.000 íbúa. Sænsk rannsókn frá 1978 (Umeá)
fann að árlegt nýgengi heilaslaga væri 250-300
í samfélagi með 110.000 íbúa (2). í danskri
rannsókn, frá Bispebjerg og Fredriksberg frá
árinu 1995, var gefið upp að árlega legðust inn
um 3,6 einstaklingar með heilaslag af hverjum
1000 íbúum (3). Þessar niðurstöður gætu bent
til þess að 540-970 einstaklingar fái heilaslag
árlega á Islandi, en sé meðaltal frá Norðurlönd-
um notað nær 770. Sú tala verður notuð við
áætlun þarfa fyrir meðferð á íslandi.
Dánartíðni eftir heilaslag er urn 16% eftir 30
daga og 23% eftir 18 mánuði frá upphafi ein-
kenna (4,5). Af þeim sem lifa af heilaslag ná
10% fullum bata, 48% hafa helftarlömun og
22% geta ekki gengið. Þriðjungur til fjórðung-
ur er háður öðrum um aðstoð og þriðjungur
sjúklinga á við þunglyndi að stríða (6). Fjöldi
sjúklinga sem er með fötlun vegna heilaslags á
hverjum tíma er áætlaður um og yfir sex á 1000
íbúa, eða rúmlega 1600 sjúklingar á Islandi (7).
Þar til fyrir nokkrum árum hafði ekki verið
sýnt fram á neina góða bráðameðferð sem
drægi úr örorku eftir heilaslag og enn var
umdeilt hvort betra skiplag meðferðar skilaði
betri árangri. Þetta leiddi til efasemda um gildi
meðferðarúrræða og stefnuleysis í meðferð,
allt frá uppgjöf (sjúklingur látinn ná bata eða
deyja í heimahúsi) til gjörgæslumeðferðar á
sérhæfðum heilaslagdeildum (8). Árið 1995
voru hins vegar birtar niðurstöður stórrar amer-
ískrar rannsóknar sem sýndi að sjúklingar með
heilablóðþurrð sem fengu tissue plasminogen
activator (t-PA) í bláæð innan þriggja klukku-
stunda frá upphafi einkenna höfðu betri færni
þremur mánuðum eftir áfallið en sjúklingar
sem ekki fengu slíka meðferð (9). Það var ekki
fyrr en árið 1992 að sýnt var fram á að skipu-
lögð meðferð á heilaslögum skilaði sér í betri
fæmi og fækkun dauðsfalla heilaslagsjúklinga.
Hugsanlegar skýringar á þessu eru: 1. að marg-
ar fyrri rannsóknir voru ekki nægilega vel hann-
aðar eða of smáar til að gefa áreiðanleg svör og
2. að ekkert skipulegt mat (fjölrannsóknargrein-
ing, meta-analysis) rannsókna var til (10,11).
Heilaslagdeildir
Ýmis form skipulagðrar meðferðar heila-
slaga (heilaslagdeild) hafa verið reynd á síð-
ustu 30 árum. Skilgreining á heilaslagdeild
hefur verið mismunandi, það er að segja: 1.
hreyfanlegt teymi sérfræðinga sem gefa leið-
beiningar varðandi mat og meðferð heilaslag-
sjúklinga víðsvegar um sjúkrahús, 2. ákveðinn
staður innan sjúkrahúsa þar sem heilaslag- og
aðrir sjúklingar eru meðhöndlaðir af teymi sér-
fræðinga og 3. ákveðinn staður sem sér einung-
is um þá sjúklinga sem hafa einkenni heila-
slaga, er þurfa á endurhæfingu og annarri sér-
fræðilegri þjónustu að halda. Rannsóknir síðari
ára hafa aðallega beinst að síðastnefnda fyrir-
komulaginu (10).
Teymisvinna á heilaslagdeildum byggist á
skipulagðri meðferð er miðar að vanda og þörf-
um hvers sjúklings. Helstu þættir heilaslag-
meðferðar eru: 1. ítarlegt mat á veikindum og
örorku sérhvers sjúklings, 2. náin samvinna
einstakra starfsstétta, 3. að skilgreina hvers
konar endurhæfingu sjúklingar þarfnast og
hvaða markmiði stefnt skal að og 4. þátttaka í
fræðslu og rannsóknum er varða heilaslög (10).
Meðferðaraðilar heilaslagdeilda eru: 1.