Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.1999, Síða 44

Læknablaðið - 15.06.1999, Síða 44
540 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 Good treatment of risk factors | STROKE/TIA STROKE/TIA WORK UPIN ER: - History and physical examination - CT scan of the head - Bloodvvork - Carotid ultrasound I Have symptoms resolved? TIA STROKE AMBULATORY ADMIT - Further work up - ? T-PA - Treatment - Further work up - Treatment AMBULATORY RF.HAItlLITATION INPATIENT REHABILITATION IN A STROKE UNIT CONTINUED CARE - Management of risk factors - Monitoring of drug treatment - Other therapies Fig. 7. Overview of treatments for strokeíTlA. fasa, eða hvort innlögn er bráð (innan átta daga) eða síðbúin (eftir sjö daga). Ekki skiptir heldur máli hvaða deild sér um endurhæfingu. í Bandaríkunum eru sjúklingar með heilaslag lagðir inn á sjúkrahús þar sem uppvinnsla og bráðameðferð fer fram en síðar fluttir yfir á endurhæfingarstofnanir þegar aðstæður leyfa. Rök fyrir þessu fyrirkomulagi eru að endur- hæfing á sjúkrahúsum sé dýrari en á endurhæf- ingardeildum. í Skandinavíu hefur oft verið valin sú leið að hafa ferlið samfellt (það er meðferð bráðafasa og eftir bráðafasa). Kostur við slikt fyrirkomulag er samfelldari meðferð sem hefur í för með sér minna rask fyrir sjúk- linga og ættingja þar sem ekki þarf að skipta um umhverfi. Þegar meðferð á heilaslagdeildum lýkur, er nauðsynlegt að taugasérfræðingur fylgi sjúk- lingum náið eftir bæði til að fylgja eftir gangi meðferðar, kanna og meðhöndla áhættuþætti auk þess að koma auga á og meðhöndla fylgi- kvilla er upp kunna að koma. Samantekt Heilaslög eru algeng og þeim fylgir há tíðni dauðsfalla og örorku. Á íslandi má búast við að árlega fái 770 einstaklingar heilaslag. Með- ferðartregða og stefnuleysi hefur einkennt meðferð heilaslagsjúklinga á síðustu áratugum. Árið 1995 var hins vegar sýnt fram á að sega- leysandi meðferð (t-PA) bætir starfsgetu hjá sjúklingum með heilablóðfall ef gefið innan þriggja tíma frá upphafi einkenna. Það er fyrst á síðustu árum að sýnt hefur verið fram á að skipuleg meðferð heilaslagsjúklinga á sérhæfð- um deildum (heilaslagdeildum) fækkar dauðs- föllum og dregur úr varanlegri fötlun þannig að fleiri sjúklingar lifa af slagið og fleiri útskrifast heim. Allir heilaslagsjúklingar hafa gagn af slíkri meðferð án tillits til kyns, aldurs eða upp- hafsfötlunar. Besti árangur fæst ef meðferð stendur í nokkrar vikur. Árangur slíkra deilda er bestur þegar meðferð er veitt á einum stað á spítalanum. Tilurð sérhæfðra heilaslagdeilda getur lækkað skammtímakostnað því fjöldi legudaga eykst ekki og minnkar jafnvel. Heila- slagdeildir draga einnig úr langtímakostnaði því þörf á langtímastofnanavistun er minni. HEIMILDIR 1. Sudlow CLM, Warlow CP. Comparing stroke incidence world wide; What makes studies comparable? Stroke 1996; 27: 550-8. 2. Strand T, Asplund K. Eriksson S, Hiigg E, Lithner F, Wester PO. A Non-Intensive Stroke Unit Reduces Functional Dis- ability and The Need for Long-term Hospitalization. Stroke 1985: 16:29-34. 3. Jprgensen HS, Nakayama H, Raaschou HO, Larsen K, Hiibbe P, Olsen TS. Thc Effect of a Stroke Unit: Reduction in Mortality, Discharge Rate to Nursing Home, Length of Hospital Stay, and Cost. A Community- Based Study. Stroke 1995; 26: 1178-82. 4. Karlsdóttir G, Valdimarsson EM, Jakobsson F. Afdrif heila- blóðfallssjúklinga á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 1996 [ágrip]. Læknablaðið 1998; 84/Fylgirit 36: 53-4. 5. Sveinbjörnsdóttir S, Einarsson G, Magnúsdóttir S, Guð- mundsson G, Jónsson JE. Skráning sjúklinga með heila- blóðföll og tímabundna blóðþurrð í heila hjá sjúklingum á Landspítalanum á árinu 1997 [ágrip]. Læknablaðið 1998; 84/Fylgirit 36: 54. 6. U.S. Department of Heath and Human Services 1995. 7. Langton HR. Rehabilitation after stroke. Q J Med 1990; 76: 659-74.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.