Læknablaðið - 15.06.1999, Qupperneq 48
542
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Umræða og fréttir
Formannsspjall
Betra er heilt en vel gróið
Frá örófi alda hefur hugs-
unin um forvarnir gegn sjúk-
dómum verið ofarlega í hug-
um lækna. Hlutverk læknisins
er og hefur verið að lækna,
líkna og fræða um eðli sjúk-
dóma og varnir gegn þeim.
Með hugtakinu forvarnir er í
raun átt við með hvaða hætti
hægt er að nýta sér þekkingu
og reynslu manna til að koma
í veg fyrir sjúkdóma. Hug-
myndafræðin er reyndar ekki
ný af nálinni því sjálfum föður
læknisfræðinnar Hippókratesi
varð tíðrætt um efnið.
Jónas Kristjánsson læknir
og forvígismaður náttúru-
lækningahreyfingarinnar á Is-
landi var maður langt á undan
sinni samtíð. I byrjun þessarar
aldar þótti Jónas hafa mjög
skeleggar skoðanir á heilsu-
vernd og af mörgum nota
nokkuð sérstakar aðferðir við
framkvæmd þeirra. Þannig
átti hann í harðvítugum deil-
um við kollega samtímans
sem jafnvel kölluðu boðskap
hans kreddufullan. Boðskapur
hans var einfaldur, með heil-
brigðu lífemi, líkamshreyfmgu,
hollu mataræði og slökun
mætti koma í veg fyrir sjúk-
dóma. Til gamans má geta
þess að þetta var á þeim tíma
þegar tóbak var auglýst í
Læknablaðinu. í dag lesum
við orð Jónasar Kristjánssonar
læknis í stefnu Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar um
heilbrigði fyrir alla árið 2000.
A seinni árum hafa verið
gerðar margar vandaðar far-
aldsfræðilegar rannsóknir víða
um heim sem allar benda ótví-
rætt til þess að með heilbrigð-
um lifnðarháttum getum við
komið í veg fyrir sjúkdóma,
ótímabæran dauða og aukið
lífsgæði. Vinna læknasamtak-
anna í forgagnsröðun í heil-
brigðisþjónustu hefur beint
sjónum okkar að gildi for-
varna. Þar eru forvarnir með
sannað gildi ofarlega á blaði.
Framsýnar og einstakar rann-
sóknir Hjartaverndar á Islend-
ingum eru talandi dæmi um
rannsóknarstarf á gildi for-
varna. Mjög merkt og þakklátt
brautryðjendastarf hefur verið
unnið af áhugasamtökum á Is-
landi um vímuvarnir og nægir
þar að nefna SÁÁ, þótt fjöldi
annarra samtaka eigi mikinn
heiður skilið. I samskiptum
lækna og sjúklinga skiptir
miklu máli frumkvæði lækn-
isins að umræðu um forvarnir
í sérhverju viðtali. Af hálfu
hins opinbera hefur vaxandi
skilningur verið á gildi for-
varna þótt lengi vel hafi sá
skilningur verið meiri í orði en
á borði. Frú Ingibjörg Pálma-
dóttir hefur í embætti heil-
brigðisráðherra unnið ötullega
að því að stuðla að forvarnar-
starfi. Miklar vonir eru bundn-
ar við starf Slysavamarráðs og
nýskipaðs Áfengis- og vímu-
varnarráðs. Það ber að þakka
það sem vel er gert.
Af hálfu hins opinbera hef-
ur þungi í tóbaksvamarstarf-
inu verið á tóbaksvarnarnefnd.
Tóbaksvarnarstarf er senni-
lega einn mikilvægasti mála-
flokkurinn í heilsuvernd. Ár-
angurinn þyrfti að vera betri.
Starf tóbaksvamamefndar er
hins vegar ekki öfundsvert því
það er hugsun hins opinbera
að nefndin eigi að sjá um
tóbaksvarnir af sinni hálfu og
hefur með því móti keypt sér
syndakvittun í þeim mála-
flokki. Þessu verður að breyta,
tóbaksvarnir verða að lúta
sömu lögmálum og önnur
markaðsstarfsemi, þar sem
samkeppni og eðlilegt eftirlit
stuðlar væntanlega að bættum
árangri.
Einn ötulasti talsmaður tób-
aksvarna í læknastétt hefur
verið Þorsteinn Blöndal, hans
mikla og óeigingjarna starf í
því sambandi verður seint full-
þakkað. Það er skoðun Lækna-
félags íslands að í þessum
málaflokki megi gera enn bet-
ur og lýsir félagið sig reiðubú-
ið til samstarfs við heilbrigð-
isyfirvöld á þeim vettvangi.
Stjórn Læknafélags Islands
hefur ákveðið að framvegis
skuli árlega aðallega vera unn-
ið að einu verkefni í heilsu-
vernd. Á þessu ári verður
áhersla lögð á tóbaksvarnir,
með ósk um samstarf við heil-
brigðisyfirvöld, tóbaksvarnar-
nefnd og félagsskapinn Lækn-
ar gegn tóbaki sem Pétur
Heimisson læknir á Egilsstöð-
'um hefur stýrt. Mikið skortir
enn á að kennslu læknanema
og fræðslu til lækna um for-
varnir sé nægjanlegur gaumur
gefinn. Það á að vera náms-
efni í læknadeild með hvaða
Framhald á nœstu síðu.