Læknablaðið - 15.06.1999, Qupperneq 50
544
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
einungis umsagnarrétt en eng-
an ákvörðunarrétt og má segja
að áhrif lækna verði aðeins
gegnum stjórnir heilbrigðis-
stofnana. Vart er að treysta því
að sú leið tryggi læknum telj-
andi vægi þar sem áhrif lækna
í stjórnun heilbrigðisstofnana
hafa farið þverrandi undanfar-
in ár en ítök pólitískra fulltrúa
aukist.
Framundan er útfærsla
gagnagrunnsins ef fram fer
sem horfir. Mörgum spurning-
um er enn ósvarað svo sem í
hvað þessi feikna kostnaður
fari, sem I.E. hefur talað um
og verður sú spurning áleitn-
ari nú þegar nýr aðili, sem
hefur sótt um rekstarleyfið,
áætlar mun minni kostnað.
Reyndar er óskiljanlegt,
hvernig unnt er að áætla slík-
an kostnað þegar ekki hefur
verið ákveðið hvaða upplýs-
ingar eiga að flytjast í fyrir-
hugaðan gagnagrunn. Heil-
brigðisyfirvöld hafa enn ekki
tilgreint, hvað á að fara í
grunninn, aðeins hefur verið
talað um tölulegar upplýsing-
ar. Verður farið langt aftur í
tímann og hver tekur upplýs-
ingarnar saman? Hvernig
verður öryggi nákvæmlega
háttað? Þessar spurningar og
margar fleiri bíða svara sem
ekki virðast fást fyrr en kemur
að samningum við heilbrigð-
isstofnanir. Auk þessa áréttar
stjórn LI fyrri afstöðu sína um
að hún telur sérleyfi til rekst-
urs miðlægs gagnagrunns
óásættanlegt.
Stjórn LÍ hefur gagnrýnt að
svo mörg og mikilvæg atriði
skuli ekki hafa verið ljósari
fyrr. Siðfræðiráð Læknafélags
íslands hefur ráðlagt læknum
að reiða ekki fram upplýsing-
ar um sjúklinga sína nema
með upplýstu samþykki
þeirra. Sé ekki unnt að fá slíkt
samþykki er það ófrávíkjan-
leg krafa stjórnar LI að ekki
verði unnið með heilsufars-
gögn íslensku þjóðarinnar í
fyrirhuguðum gagnagrunni
nema til komi samþykki og
eftirlit vísindasiðanefndar og
tölvunefndar. Fyrr mun stjórn
LI ekki mæla með því við fé-
lagsmenn að þeir afliendi
þriðja aðila trúnaðarupplýs-
ingar um sjúklinga sína.
Með kveðju
Fyrir hönd stjórnar
Læknafélags Islands
Guðmundur Björnsson
formaður
Formannaráðstefna og málþing
um rannsóknir í læknisfræði
Frummœlendur á málþingi um rannsóknir í lœknisfrœði, talið frá
vinstri: Hákon, Magnús og Vilhjálmur.
Formannaráðstefna LÍ var
haldin föstudaginn 14. maí
síðastliðinn í húsakynnum fé-
lagsins í Hlíðasmára 8. Þar
fluttu formenn félaga og ann-
arra deilda skýrslur um störfin
á síðasta ári en að því loknu
var fjallað um ýmis mál sem
snerta lækna, svo sem ímynd
Læknafélags Islands, lækna-
vefinn, trúnaðarmannakerfi
LÍ, samræmdar leiðbeiningar í
læknisfræði, byggingu lækn-
ingaminjasafns, útgáfumál og
Læknatal.
í tengslum við ráðstefnuna
var haldið málþing laugar-
dagsmorguninn 15. maí undir
heitinu Rannsóknir í læknis-
fræði: vísindi eða viðskipti?
Um þetta efni fjölluðu þeir
Hákon Hákonarson læknir,
Magnús Jóhannsson prófessor
og Vilhjálmur Rafnsson rit-
stjóri Læknablaðsins.
Skemmst er frá því að segja
að erindi þremenninganna
voru ákaflega fróðleg og upp-
lýsandi og að þeim loknum
urðu líflegar umræður. Hins
vegar voru þátttakendur æði
fáir. Um það ríkti hins vegar
eining að viðfangsefni fundar-
ins eigi erindi við alla lækna.
Því fór Læknablaðið þess á
leit við frummælendur að fá
erindi þeirra til birtingar í
blaðinu.