Læknablaðið - 15.06.1999, Page 76
568
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Hér situr Arngerður Jónsdóttir við nýtt tcvki sem nefnist frumuflœðisjá.
vinnslu og meðhöndlun blóð-
frumna. Hlutverk okkar verð-
ur fólgið í því að vinna stofn-
frumur úr blóði sjúklinga með
frumuskilju. Við sinnum gæða-
eftirliti bæði meðan þessi
frumuskiljun fer fram og eftir
hana, ræktum stofnfrumur og
teljum þær, snöggfrystum þær
til geymslu, förum síðan með
þær á deildina þar sem sjúk-
lingurinn liggur og þíðum þær
rétt fyrir gjöf.
Þetta er mjög spennandi
samstarfsverkefni fjölmargra
sérgreina sem á eflaust eftir að
verða iyftistöng fyrir þær
deildir sem að því vinna. Þess
ber þó að geta að íslenskir
læknar veita nú þegar hluta af
þessari þjónustu hér á landi
svo reynslan og þekkingin er
til staðar. En þetta mun styrkja
starfsemi Blóðbankans vegna
þess að stofnfrumuræktunin
fellur vel að þeirri þjónustu
sem við veitum og grunnrann-
sóknum sem við höfum verið
að byggja upp og felast í
HLA-vefjaflokkunum og
vinnslu á blóðflögum.
Þetta hefur í för með sér að
starfsmönnum mun strax fjölga
um þrjá en hér starfa nú 40
manns. Eg á von á því að þessi
aukna starfsemi ásamt öðru
sem mun bætast við verði til
þess að hér starfi um 50
manns ef ekki fleiri áður en
langt um líður.“
Þrengslin setja okkur
skorður
Blaðamaður getur ekki ann-
að en undrast hvar Sveinn ætl-
ar að koma þessu nýja starfs-
fólki fyrir. Aður en viðtalið
hófst hafði hann leitt blaða-
mann um húsakynnin þar sem
augljósle^a er setinn Svarfað-
ardalur. A einum vegg var bú-
ið að hengja upp teikningar af
viðbyggingu við Templara-
höllina sem stendur við sömu
gatnamót Barónsstígs og Ei-
ríksgötu.
„Við búum við mikil
þrengsli á þessum 600 fer-
metrum sem við höfum í húsi
sem fellur ekki nema að litlu
Ieyti að starfsemi okkar eins
og hún er núna. Það er brýnt
að bæta úr þessu og við vænt-
um þess að það verði gert hið
bráðasta. Við horfum yfir göt-
una í átt að endurbyggðri
Templarahöll sem Ríkisspítal-
arnir ætla að leigja en það
kemur líka til greina að
byggja við Blóðbankann.
Það er fyrst og fremst nauð-
synlegt að stækka húsnæðið
til þess að bæta aðstöðu blóð-
gjafa en einnig er þetta orðið
mjög brýnt til þess að við get-
um uppfyllt alþjóðleg skilyrði
sem gilda um slíka starfsemi.
Ymislegt sem við erum að
gera, svo sem vinnsla á blóð-
vökva og frumum úr beinmerg,
nálgast skilgreiningu lyfja-
framleiðslu og um hana gilda
ákveðnir gæða- og öryggis-
staðlar sem við náum ekki að
uppfylla í núverandi húsnæði.
Við vinnum samkvæmt