Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.06.1999, Side 89

Læknablaðið - 15.06.1999, Side 89
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 577 Iðorðasafn lækna 112 Flekkblæðing Aðalsteinn Jens Loftsson, lyfjafræðingur, sendi tölvu- póst fyrr í vetur og var þá að fást við þýðingu úr dönsku. Þar kom fyrir ekkymose sem er dregið af gríska heitinu ecchymosis. í læknisfræði- orðabókum Stedmans og Wil- eys kemur fram að ecchymos- is tákni litarbreytingu í húð, fjólubláan blett sem stafi af blóðleka úr œðum og sé stærri en depilblœðing, petechia. Ecchymosis er samsett úr þremur hlutum, forskeytinu ek (út), nafnorðinu chymos (vökvi, safi) og viðskeytinu - osis (ástand, sjúklegt fyrir- bæri). Iðorðasafn lækna til- greinir tvö íslensk heiti: 1. flekkblœðing, 2. blóðhlaup. íslensk læknisfræðiheiti Guð- mundar Hannessonar útskýra blóðhlaup þannig: blœðingar án áverka í og undir skinni, slímhúð eða úrhimnu, er líkj- ast marblettum. Urhimna er gamalt heiti á tunica serosa, sem nú nefnist hála eða hál- hjúpur. Lækningabók Jónas- sens frá 1884 gerir hins vegar ráð fyrir því að blóðhlaup komi úr rifnum æðum við „röskun líkamsparta" af völd- um ytri áverka. Meiðslið, sem þá kemur fram, er nefnt mar. Jónassen notar ekki orðið blæð- ing í lýsingum sínum, en það orð kemur fyrir í bókinni Hjúkrun sjúkra eftir Steingrím Matthíasson sem er frá 1923. Blæðingar í tilefni af þessari beiðni voru leituð uppi ýmis læknis- fræðileg heiti sem notuð hafa verið um blæðingar. Fyrst má nefna að íslenska samheita- orðabókin tilgreinir samheit- in: blœðing, blóðlát, blóð- missir, blóðrás, blóðrennsli. Rétt er að vekja athygli á því að frá fornu fari var blóðrás notað um blóðmissi eða blóð- rennsli úr líkamanum, þó að nú sé það orð nær eingöngu notað um hringrás blóðsins. Heitið blóðfall hefur einnig verið notað um blæðingu, fyrst og fremst innri blæðingu, en þó sérstaklega heilablæðingu. í íðorðasafni lækna má finna erlendu heitin angio- staxis (fossblæði), apoplexy (blóðfall, innblæðing), con- tusio (mar), diapedesis (rauð- kornaútstreymi), ecchymosis (flekkblæðing, blóðhlaup), extravasation (utanæðablæð- ing, utanæðablóð), hemato- cele (blóðgúll), hematoma (margúll), hematorrhea (foss- blæðing), hemorrhagia (blæð- ing), hemorrhea (blóðlituð útferð) og petechia (dílablæð- ing). í íslenskum læknisfræði- heitum Guðmundar Hannes- sonar fundust að auki suffusio (stór blæðingarblettur undir húð, án greinilegra takmarka; marblettur) og sugillatio (mar- blettur, minni en suffusio). Úr öðrum íslenskum orða- bókum voru tínd saman ýmis vel þekkt heiti á staðgreindum blæðingum: blóðfall, blóð- gangur, blóðhnútur, blóð- hósti, blóðhráki, blóðhrækj- ur, blóðliður, blóðmiga, blóð- nasir, blóðspýja, blóðspýt- ing, blóðspýtingur, blóð- sveppur, blóðuppgangur og blóðþvag. Gaman væri að heyra af öðrum orðum sem læknar nota. Work-up Sigurður Þ. Guðmunds- son, læknir, bar fram beiðni um íslenskun á sam- setningunni work-up. Iðorða- safn lækna tilgreinir work-up sem nafnorð, þaulskoðun, og work up sem sagnorð þaul- skoða. Hvort tveggja er mikið notað í enskum læknisfræði- textum til að tákna skoðun og rannsókn á tilteknum sjúk- lingi. Sigurður sagðist ekki fella sig við að nota nafnorðið uppvinnslu eða sögnina að vinna upp. Hann óskaði því eftir betri tillögum. Genbrigðalyf Asmundur Brekkan hringdi og var að leita að þægilegu yfirheiti til að nota um þau lyf sem ætluð væru gegn sjúk- dómsbreytingum er rekja mætti til gallaðra gena. Hon- um fannst lítið til þess koma að nefna þau genalyf. Eftir talsverðar umræður og um- hugsun varð niðurstaðan sú að heitið genbrigðalyf kæmi vel til greina. íslensk orðabók Máls og menningar tilgreinir sögnina að brigða, breyta, rjúfa, svíkja, og nafnorðin brigð og brigði, svik, rof, slit og stökkbreyting. Flæðistjóri Með tölvupósti var spurt hvort perfusionist mætti nefn- ast flæðistjóri. Spurningunni er hér með komið á framfæri. Jóhann Heiðar Jóhannsson (netfang: johannhj@rsp.is)
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.