Læknablaðið - 15.10.1999, Síða 81
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
837
Olafur Sigurðsson
Fæddur 4. ágúst 1915 - Dáinn 13. ágúst 1999
Kveðja frá Félagi íslenskra lyflækna
í júní 1998 var 13. þing Fé-
lags íslenskra lyflækna haldið
á Akureyri. Eyjafjörðurinn
skartaði sínu fegursta og
Vaðlaheiðin speglaðist í Poll-
inum.
A þessu þingi voru tveir
læknar kjömir heiðursfélagar,
hinir fyrstu í sögu félagsins.
Annar þeirra var Olafur Sig-
urðsson.
Eins og kunnugt er var Ól-
afur Sigurðsson um áratuga
skeið ótvíræður forystumaður
og brautryðjandi í lyflækning-
um norðan heiða. Ófáir eru
þeir læknar, sem á náms- og
þroskabrautinni hafa notið
styrkrar handleiðslu hans. Ól-
afur var hreint ótrúlega vel að
sér í fræðigrein sinni og þrátt
fyrir mikið annríki hafði hann
alltaf tíma til þess að miðla
þekkingu til yngra fólksins á
sinn rólega og hæverska hátt.
Sjúklingamir voru ekki bara
„sjúkratilfelli" heldur persón-
ur með sál. Hann var fágæt-
lega ættfróður og vissi oft
meira um uppmna og umhverfi
sjúklinganna en þeir sjálfir.
Þórarinn Björnsson, heit-
inn, skólameistari Mennta-
skólans á Akureyri, sagði eitt
sinn í ræðu: „Læknarnir þurfa
ekki aðeins alla þekkinguna,
þeir verða lfka að eiga listina,
kunnáttuna að fara með fólk-
ið. Návist þeirra þarf að vera
eins og smyrsl - færa frið og
líkn og gefa kraft um leið.
Þeir þurfa í senn styrk og
mýkt, nærfærinn kraft. Anda
göfugrar þjónustu, þar sem
færni og hjartahlýja fara sam-
an.“ Þannig læknir var Ólafur
Sigurðsson.
Félag íslenskra lyflækna
vottar látnum heiðursfélaga
þökk og virðingu og sendir
eiginkonu, börnum og öðrum
ástvinum hlýjar samúðar-
kveðjur.
Astráður B. Hreiðarsson
formaður
Félags íslenskra lyflækna
Fræðsluvikan hefurfengið nafn
LÆKNADAGAR
verða 17.-21. janúar árið 2000
Fræðslustofnun lækna