Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.11.1999, Qupperneq 66

Læknablaðið - 15.11.1999, Qupperneq 66
DIOVAN & NOVARTIS VALUE (Valsartan Antihypertensive Long-Term Use Evaluation Trial). 14.400 sjúklingar í 6 ár. VAL-HEFT (Valsartan Heart Failure Trial). 4.800 sjúklingar í 3 ár. VALIANT (Valsartan in Acute Myocardial Infarction Trial). j 14.500 sjúklingar í 4 ár. ABCD-2V (Appropriate Blood Pressure Control in Diabetes Trial - Part 2 With Valsartan). 800 sjúklingar í 5 ár. Nýtt: Nú einnig Diovan 160 mg. Diovan (Novartis, 960135). Hylki; A 04 A D 01. Hver hylki inniheldur: Valsartanum INN, 80 mg eða 160 mg. Eiginleikar: Virka hormónið i renin-angíótensin-aldósterón kerfinu er angíótensín II, sem myndast úr angíótenslni I vegna áhrifa hvata (ACE = angiotensin converting enzyme). Angíótensín II binst sérhæfðum viðtökum sem eru staðsettir í frumuhimnum í ýmsum vefjum. Það hefur mjög víðtæk lífeðlisfræðileg áhrif, þar með talið bæði bein og óbein áhrif á stjórnun blóðþrýstings. Vegna sterkra æðaþrengjandi áhrifa hefur angíótensin II bein áhrif á blóðþrýsting og stuðlar að auki að minnkun natríum útskilnaðar og örvun á aldósterón seytlngu. Diovan er sterkur og sérhæfður angíótensín II viðtaka blokkari sem er virkur við inntöku. Valsartan frásogast hratt eftir inntöku en meðal aðgengi er 23%. Hjá flestum sjúklingum, eftir gjöf eins skammts, koma áhrif á blóðþrýsting fram á innan við 2 klukkustundum og hámarkslækkun blóðþrýstings næst innan 4-6 klukkustunda. Áhrifin vara i meira en 24 klukkustundir eftir inntöku. Við endurtekna lyfjagjöf næst hámarkslækkun blóðþrýstings, með hvaða skammti sem er, yfirleitt innan 2-4 vikna og er viðhaldið með langtímameðferð. Ef Diovan er gefið samhliða hýdróklórtíazíði fæst marktæk umframlækkun (blóðþrýstingi. Próteinbinding valsartans I blóði er mikil (94-97%), aðallega við albúmln. Dreifirúmmál er um 17 I. Klerans er tiltölulega lágur (um 2 l/klst.) samanborið við lifrarblóðflæði (um 30 l/klst.). Eftir inntöku er 83% skilið út með saur og 13% í þvagi, að mestu sem óbreytt efni. Ábendingar: Hækkaður blóðþrýstingur. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverjum af innihaldsefnum lyfsins. Meðganga. Alvarleg lifrarbilun, skorpulifur og gallteppa. Alvarlega skert nýrnastarfsemi (kreatlnlnklerans < 10 ml/mln) og sjúklingar I blóðskilun. Meðganga og brjóstagjöf: Jafnvel þó ekki sé reynsla af notkun Diovan hjá barnshafandi konum, geta ACE hemlar valdið fósturskaða og fósturdauða hjá konum á öðrum og þriðja þriðjungi meðgöngu. Því, eins og fyrir önnur lyf sem hafa áhrif á renin-angíótensín-aldósterón kerfið, ætti ekki að nota Diovan á meðgöngu. Ef þungun verður á meðan á meðferð stendur skal hætta Diovan meðferð eins fljótt og hægt er. Ekki er vitað hvort valsartan skilst út I brjóstamjólk. Valsartan fannst I mjólk hjá mjólkandi rottum. Því er ekki ráðlagt að konur með barn á brjósti noti Diovan. Varúð: Natríumskort og/eða minnkað blóðrúmmál á að leiðrétta áður en meðferð er hafin með Diovan t.d. með því að minnka skammta af þvagræsilyfjum. Gæta skal varúðar við gjöf lyfsins hjá sjúklingum með nýrnaslagæðarþröng báðu megin eða með þrengingar til annars nýrans, ósæðar- eða míturlokuþrengsli eða hjartavöðvakvilla með þrengingu, alvarlega hjartabilun eða vægt til I meðallagi skerta lifrarstarfsemi án gallteppu. Ekki ætti að meðhöndla sjúklinga með aldósterónheilkenni með Diovan þar sem sjúkdómurinn hefur áhrif á renín- angíótensin kerfið. Aukaverkanir: Eftirfarandi aukaverkanir hafa komið fram i samanburðarrannsóknum þar sem lyfleysa var notuð og sjúklingar meðhöndlaðir með Diovan. Tíðni aukaverkana var sambærileg við það sem fram kom með lyfleysu. Algengar (>1%): Höfuðverkur, svimi, veirusýkingar, sýkingar I efri öndunarvegi, hósti, niðurgangur, þreyta, nefslímubólga, skútabólga, bakverkir, kviðverkir, ógleði, kokbólga, liðverkir, hlutleysiskyrningafæð (neutropenia). Sjaldgæfar (<1%): Liðbólgur, þróttleysi (asthenia), tárubólga, blóðnasir, þunglyndi, maga- og garnabólga, krampar I fótum, vöðvakrampar, vöðvaþrautir, taugahvot (neuralgia), svefnleysi, svimi. Mjög sjaldgæfar: Lækkun á hemóglóbíni og hematókrít og hækkun á lifrargildum. Lýst hefur verið einu tilfelli af ofsabjúg (angioedema). Milliverkanir: Samtimis notkun kalíumuppbótar, kalíumsparandi þvagræsilyfja, saltuppbótar sem inniheldur kalium eða annarra lyfja sem geta aukið kaliumþéttni (heparín o.s.fv.) ætti að nota með mikilli varúð og með tiðum mælingum á kalíum. Auka má áhrifin á háþrýsting með því að gefa önnur háþrýstingslyf samtímis. Við samtimis notkun Diovan og litiumsalta er ráðlagt að mæla styrk litiums í blóði. Ofskömmtun: Enn er engin reynsla komin á ofskömmtun af Diovan. Helsta einkenni ofskömmtunar gæti verið áberandi lágþrýstingur með svima. Meðhöndlun fer eftir tima frá inntöku og tegund og alvarleika einkenna, þar sem mikilvægast er að gera ástand blóðrásar stöðugt. Ef að sjúklingurinn hefur nýlega tekið skammtinn, ætti að framkalla uppköst. Ef einhver tími hefur liðið frá inntöku ætti að gefa sjúklingunum nægjanlegt magn af lyfjakolum. Ef lágþrýstingur kemur fram, skal sjúklingi komið fyrir liggjandi á bakinu og salt og rúmmálsaukandi meðferð hafin hratt. Ekki er hægt að skilja valsartan úr blóðrás með blóðskilun vegna sterkrar próteinbindingar þess. Skammtastærðir handa fullorðnum: Ráðlagður skammtur af Diovan er 80 mg einu sinni á dag. Auka má skammtinn í 160 mg einu sinni á dag. Diovan á að taka með vökva, en má taka óháð máltiðum. Diovan má einnig gefa með öðrum blóðþrýstingslyfjum. Samtímis gjöf þvagræsilyfja, svo sem hýdróklórtiazíðs mun lækka blóðþrýsting enn meira hjá þessum sjúklingum. Ekki þarf að aðlaga skammta sérstaklega fyrir sjúklinga með skerta nýrnarstarfsemi (kreatininklerans > 10 ml/mín). Hjá sjúklingum með vægt til i meðallagi skerta lifrarstarfsemi án gallteppu ætti skammtur af valsartan ekki að fara yfir 80 mg. Skammtastærðir handa börnum: Ekki hefur verið sýnt fram á öryggi og verkun Diovan hjá börnum. Verð: Hylki 80 mg: 28 stk. -1846 kr, 98 stk. -6220 kr. Hylki 160 mg: 28stk, -2215 kr, 98 stk. 7463. Umboðsaðili: Thorarensen-Lyf, Vatnagörðum 18, simi: 530 7100. Júni 1999.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.