Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.1999, Page 90

Læknablaðið - 15.11.1999, Page 90
930 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 Faraldsfræði krabbameina á íslandi Fræðslufundur SKÍ og HÍF Samtök um krabbameinsrannsóknir á íslandi (SKÍ) og Hið íslenska faraldsfræðifélag (HÍF) boða til fræðslufundar fimmtudaginn 25. nóvember 1999 kl. 16:00 í húsi Krabbameinsfé- lags íslands, Skógarhlíð 8. Á fundinum verður meðal annars kynnt ný bók sem gefin er út af alþjóðastofnun um krabbameinsrannsóknir, IARC, um lífshorfur krabbameinssjúklinga í Evrópu. Dagskrá: 16:00-16:30 Hvað er faraldsfræði? Hrafn Tulinius 16:30-16:50 Kaffiveitingar 16:50-17:20 Nýgengi krabbameina og breytingar síðustu áratugi. Vilhjálmur Rafnsson 17:20-17:50 Lífshorfur ísienskra krabbameinssjúklinga og samanburður við önnur Evrópulönd. Laufey Tryggvadóttir Rannsóknarstyrkur úr Minningarsjóði Bergþóru Magnúsdóttur og Jakobs J. Bjarnasonar Ákveðió hefur verið að auglýsa til umsóknar styrki úr ofangreindum sjóði. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins er tilgangur hans: 1. Að styrkja kaup á lækninga- og rannsóknartækjum til sjúkrastofnana. 2. Að veita vísindamönnum í læknisfræði styrki til framhaldsnáms eða sjálfstæðra vís- indaiðkana. Rannsóknir á krabbameinssjúkdómum sitja að jafnaði fyrir um styrkveitingar. Umsóknum ásamt ítarlegum greinargerðum skal skila til landlæknisembættisins, Lauga- vegi 116, 150 Reykjavík, fyrir 1. febrúar 2000. Sjóðstjórn Vísindasjóður Félags íslenskra heimilislækna Umsóknir um vísindastyrki fyrir haustúthlutun 1999 þurfa að berast sjóðnum fyrir 1. desem- ber. Umsóknir þurfa að skilast á þar til gerðum eyðublöðum ásamt rannsóknar- og fjárhagsáætl- un sem fást hjá ritara í heimilislæknisfræði, læknadeild Háskóla íslands í Sóltúni, sími 525 4956, bréfsími 562 2013. Fyrir hönd stjórnar Vísindasjóðs FÍH Katrín Fjeldsted formaður Sjá lög um Vísindasjóð FÍH sem birt eru á bls. 936.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.