Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.1999, Side 82

Læknablaðið - 15.12.1999, Side 82
1008 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 XIV. þing Félags íslenskra lyflækna Þing Félags íslenskra lyflækna, hið XIV. í röð- inni verður haldið á Egilsstöðum dagana 9.-11. júní næstkomandi. Á þinginu verður að venju frjáls erindaflutningur og kynning á veggspjöldum auk þess sem vænta má gestafyrirlesara. Skilafrestur fyrir ágrip erinda og veggspjalda er 15. apríl. Höfundar taki strax fram: • Hvort þeir óska eftir að flytja erindi eða birta veggspjald • Hvaða útbúnað þeir óska eftir að nota við flutning erindis og hvort þeir hafi útbúnað með- ferðis, svo sem fistölvur, og þá hvaða Frágangur ágripa verði eftirfarandi: titill, nöfn höfunda, nafn flytjanda feitletrað, vinnustaðir með tilvísun til höfunda, inngangur, efniviður og aðferðir, niðurstöður, ályktanir. Semja þarf sérstaklega um birtingu mynda og grafa. Hámarkslengd ágrips er 1800 letureiningar (characters). Ágrip skal senda í tölvupósti sem viðhengi til framkvæmdastjóra þingsins Birnu Þórðar- dóttur: birna@icemed.is Ágrip sem ekki er unnt að senda rafrænt sendist á disklingi með útprenti til Birnu Þórðar- dóttur, Læknablaðinu, Hlíðasmára 8, 200 Kópavogi. Þau ágrip erinda og veggspjalda sem stjórn Félags íslenskra lyflækna samþykkir verða birt í Fylgiriti Læknablaðsins sem kemur út í byrjun júní. Tilhögun þingsins, skráning og pantanir verða auglýstar nánar síðar. Ráðstefna Samtaka um krabbameins- rannsóknir á íslandi (SKÍ) verður haldin í Reykjavík föstudag og laugardag 21. og 22. janúar árið 2000. Ráðstefnan mun fara fram í þingsölum Hótels Loftleiða og í húsi Krabbameinsfélags íslands við Skóg- arhlíð. Á ráðstefnunni verða fluttir tveir gestafyrirlestrar og framlög verða frá báðum íslensku líf- tæknifyrirtækjunum, íslenskri erfðagreiningu og Urði, Verðandi, Skuld. Auk þessa verður kynnt innsent efni með erindum og veggspjöldum Ráðstefnan er opin öllum áhugamönnum um krabbameinsrannsóknir. Samtök um krabba- meinsrannsóknir á íslandi (SKÍ) voru stofnuð árið 1995 og eru félagsmenn nú um 120. Þetta er þriðja ráðstefnan sem samtökin standa fyrir. Félagsgjald er ekkert og er hægt að skrá sig í samtökin hjá ritara (laufey@decode.is) Úrdrættir erinda og veggspjalda óskast sendir fyrir 10. desember 1999 á heimilisfang- ið: Samtök um Krabbameinsrannsóknir á íslandi, c/o Krabbameinsfélag íslands, Pósthólf 5420, 125 Reykjavík. Bréfsími 562 1417 eóa á netfangið: laufey@decode.is Fyrir hönd ráðstefnunefndar SKÍ Laufey Þóra Ámundadóttir íslenskri erfðagreiningu Helga M. Ögmundsdóttir Krabbameinsfélagi íslands Vilhelmína Haraldsdóttir Sjúkrahúsi Reykjavíkur Frekari upplýsingar veitir: Laufey Ámundadóttir, íslenskri erfðagreiningu, s. 570 1900, netfang: laufey@decode.is FELAG ÍSLENSKRA LYLLÆKNA

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.