Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.1999, Side 92

Læknablaðið - 15.12.1999, Side 92
1016 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 Félagsfundur Svæfinga- og giörgæslu- læknafélags Islands Félagsfundur verður haldinn miðvikudaginn 8. desember í húsakynnum læknafélaganna að Hlíðasmára 8. Fundurinn byrjar klukkan 17:00. Fundarefni: • Merki félagsins. • Innheimtuform félagsgjalda. • Svæfingar á landsbyggðinni. • Frítökumálið o.fl. Kaffiveitingar. Ný stjórn Aðalfundur Félags íslenskra heimilislækna var haldinn 16. október síðastliðinn. Þar var félaginu kosin ný stjórn og er hún þannig skip- uð: Þórir B. Kolbcinsson formaður, Haukur Valdimarsson varaformaður, Omar Ragnars- son gjaldkeri, Gísli Þórörn Júlíusson ritari og Guðrún Gunnarsdóttir meðstjórnandi. Vara- stjórn skipa: Valþór Stefánsson ritstjóri frétta- bréfs FÍH, Katrín Fjelsted, Hafsteinn Skúla- son og Jón Steinar Jónsson. Öldungadeild Lí Félagar og aðrir öldungar! Jólafagnaðurinn verður 15. desember í Kornhlöðunni, Bankastræti 2. Húsið opnað klukkan 18:30. Tilkynnið þátttöku í síma LÍ, 564 4100. Stjórnin íslenski brjóstakrabbameinshópurinn íslenski brjóstakrabbameinshópurinn (Ice- landic Breast Cancer Group, IBCG) var stofn- aður 24. október 1999. Þetta er samstarfshópur lækna sem sinna greiningu og meðferð brjósta- krabbameins. Sú vinna fer fram á mörgum stofnunum og koma að verki læknar úr mörg- um sérgreinum. Full þörf er á samræmingu þessarar vinnu. Tilgangur hópsins er margþættur en nefna má: 1) semja, gefa út og hafa til stöðugrar endur- skoðunar lágmarksstaðla um greiningu og meðferð brjóstakrabbameins, 2) hafa eftirlit með framkvæmd staðlanna, meðal annars með reglulegum samráðsfund- um og vinna þannig að virku gæðaeftirliti, 3) stofna og reka upplýsingabanka með heilsu- farsupplýsingum sjúklinga með brjósta- krabbamein í því skyni meðal annars að a) efla klínískar vísindarannsóknir á brjósta- krabbameini, b) stuðla að samstarfi við lækna og aðra fræði- menn sem vinna við grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini, og c) stuðla að samstarfi við sambærilega hópa erlendis og tryggja aðild íslands að fjöl- þjóðlegum samtökum sem að þessum mál- um vinna. Fyrir hönd stjómar IB, Þorvaldur Jónsson, formaður Stjórn íslenska brjóstakrabbameinshópsins skipa: Anna Björg Halldórsdóttir, röntgendeild leit- arsviðs Krabbameinsfélags Islands. Netfang: annab@krabb.is Helgi Sigurðsson, krabbameinslækningadeild Landspítalans. Netfang: helgisi@rsp.is Jón Gunnlaugur Jónasson, Rannsóknastofu Háskólans í meinafræði. Netfang: jongj @rsp.is Páll H. Möller, handlækningadeild Landspít- alans. Netfang: pallm@rsp.is Sigurður Björnsson, blóðsjúkdóma- og krabba- meinslækningadeild Sjúkrahúss Reykjavík- ur. Netfang: sbjonc@shr.is Þorvaldur Jónsson, skurðlækningadeild Sjúkra- húss Reykjavíkur. Netfang: thorvjo@shr.is (Fréttatilkynn ing)

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.