Læknablaðið : fylgirit - 15.12.1994, Síða 36
(flúoxetín)
árangursríkt íslenskt geðlyf
Seról (flúoxetín)
Framleiðandi: OMEGA FARMA hf. Kársnesbraut 108. 200 Kópavogur. Töflur; N 06 A B 03. Hver tafla
inniheldur: Fluoxetinum INN, klóríð, samsvarandi Fluoxetinum INN 10 mg. Hylki; N06AB03. Hvert hylki
inniheldur: Fluoxetinum INN, klóríð, samsvarandi Fluoxetinum INN 20 mg. Eiginleikar: Flúoxetln er geð-
deyfðarlyf, sem er talið verka þannig, aðþað blokkar upptöku serótóníns (5-HT) I taugaenda i heila. Lyfið hefur
lítil sem engin áhrif á noradrenalín eða önnur boðefni i heila. Flúoxetin minnkar matarlyst. Blóðþóttni lyfsins
nær hámarki u.þ.b. 6 klst. eftir inntöku. Helmingunartími flúoxetins I blóði er 2-3 dagar. Aðalumbrotsefni
flúoxetíns er norflúoxetín, sem er álíka virkt og flúoxetln og helmingunartímiþess er 7-9 dagar. Próteinbinding i
plasma er um 94%. Um 80% af gefnum skammti skiljast út íþvagi, að mestu sem umbrotsefni. Vegna langs
helmingunartíma lyfsins koma breytingará skammtastærðum ekki fram fyrren eftirnokkrar vikur. Ábending-
ar: Innlæg geðdeyfð (unipolar og bipolar). Alvarlegt, langvarandiþunglyndi, sem á sér ytri orsakir. Frábend-
ingar: Meðganga og brjóstagjöf. Sérstakrar varúðar ber að gæta við flogaveiki, alvarlega nýrnabilun, lifrar-
sjúkdóm, nýlegt hjartadrep og hjá öldruðum. Varúð: Við þunglyndi getur sjálfsmorðshætta aukist I byrjun
meðferðar. Flogaveikisjúklingar þurfa að vera undir mjög góðu eftirliti vegna aukinnar hættu á flogum.
Aukaverkanir: Ógleði, óróleiki, slappleiki, niðurgangur. höfuðverkur, skjálfti, kvíði, sljóleiki, munnþurkur og
aukin svitamyndun. Ofnæmi með útbrotum og liðverkjum. Milliverkanir: Lyfíð má ekki nota með MAO-
hemjandi lyfjum og þar sem lyfíð og umbrotsefni þess hverfa ekki úr llkamanum fyrr en mörgum vikum eftir að
töku þess er hætt, er ekki óhætt að nota MAO-hemjandi lyf fyrr en liðið hafa a. m.k. 5 vikur frá þvl töku flúexetlns
er hætt. Ekki ætti að nota trýptófan með þessu lyfi. Hækkun á litlumþóttni hefur sóst eftir samtlmis gjöf af
flúoxetíniog þarfþvlað fylgjast vel með litíummagni Iblóði. Skammtastærðir handa 1 ullorðnum: Venjulegur
upphafsskammtur er 20 mg, sem heppilegt er að taka að morgni. Verkun nær ekki hámarki fyrr en eftir 2-3
vikur. Fáist ekki fullnægjandi verkun má auka skammtinn smám saman, þó ekki I meira en 80 mg á dag. Við
mikið skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi og hjá öldruðum geturþurft að gefa lægri skammta en 20 mg á dag.
Lyfið er ekki ætlað börnum.
o
OMEGA FARMA
íslenskt almenningshlutafélag
um lyfjaframleiðslu, stofnaö 1990
Pakkningar:
Töflur 10 mg: 30 slk100 slk.
Hylki 20 mg: 30 stk.; 100 stk.