Læknablaðið : fylgirit - 15.12.1994, Side 101

Læknablaðið : fylgirit - 15.12.1994, Side 101
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 27 91 agðan cryptocotyle lingua fundin I DÝRUM VIÐ ÍSLAND. Matthías Eydal, Brynja Gunnlaugsdóttir, Karl Skírnisson. Tilraunastöð Háskóla Islands í meina- Læði að Keldum. Nýlega fannst agðan Cryptocotyle lingua (Digenea) í fyrsta sinn hér á landi þegar fullorðins- stlg sníkjudýrsins greindist í villtum refum (1). Þetta var óvæntur fundur þar eð ekki hafði orðið vart við lirfustig tegundarinnar (móðurlirfur, halalirfur, hjúplirfur) í millihýslum (sniglum, fiskum) hér við land. I lífsferli ögðunnar eru fjörusniglar fyrstu millihýslar, sjávarfiskar næstu_ millihýslar og oftast eru fuglar (máfar) lokahýslar. Útbreiðsla ögðunnar í N-Atlantshafi hefur verið talin takmarkast við útbreiðslu fjörusnigilsins Littorina littorea, en hann finnst ekki við ísland. Árið 1993 var hafin leit að lirfustigum ögðunnar í íslenskum fjörusniglum (tveim Littorina tegund- um) og í fiskum (níu tegundum) af grunnsævi. í roði fiska myndast alláberandi svartir blettir um hjúp- lirfur. Ennfremur var athugað hvort máfar hýstu fullorðinsstig sníkjudýrsins. Móðurlirfur og halalirfur C. lingua fundust í fjörusniglinum Littorina obtusata (þangdoppa). Sýkingartíðni var lág (2%) en mikili lirfufjöldi var í hverjum sýktum snigli. Hjúplirfur (umluktar svörtum blettum) hafa fundist í nokkrum fisktegundum veiddum í fjörum; marhnút (Myoxocephalus scorpius), sandkola (Limanda limanda), ufsa (Poitachius virens) og bleikju (Saiveiinus alpinus). Tíðni sníkjudýrsins í þessum fiskum var á bilinu 10% til 36% en sýkingar voru litlar. Hjúplirfur hafa enn ekki fundist í fiskum veiddum á meira dýpi. Fullorðnar ögður hafa fundist í meltingarvegi fimm máfategunda; svartbaki (Larus marinus) 71 % sýkingartíðni, silfurmáfi (L. argentatus) 67%, hvítmáfi (L hyperboreus) 36%, bjartmáfi (L. giaucoides) 25% og sílamáfi (L. fuscus) 10%. Sýkingarhæfni C. lingua halalirfa úr íslenskum þangdoppum var athuguð með því að útsetja hornsíli (Gasterosteus aculeatus) fyrir lirfusmiti. Lirfurnar tóku sér bólfestu í uggum og roði sílanna og mynduðu dæmigerðar hjúplirfur. Sú ályktun er dregin af þessum niðurstöðum að agðan C. lingua Ijúki lífsferli sínum hér við land og sé því útbreiddari í N-Atlantshafi en áður var talið. Einnig að agðan sé ekki eingöngu bundin við útbreiðslu snigilsins L. littorea. Rannsóknin er styrkt af Rannsóknasjóði H.í. 1. K. Skírnisson, M. Eydal, E. Gunnarsson and P. Hersteinsson. Parasites of the arctic fox (Alopex lagopus) in lceland. Journal of Wildlife Diseases 1993; 29: 440-446. beiting erfðatækni til endurbóta á framleiðslu bóluefnis og mótefna- SERMIS GEGN BETA EITURPRÓTEINI CLOSTRIDIUM PERFRINGENS. Valgerður Steinþórsdóttir, Vala Friðriksdóttir, Olafur S. Andrésson, Mirja Raitio, Matti Sarvas, Eggert Gunnarsson. Tilraunastöð H.í. í meinafræði að Keldum og KTL, Helsinki. Clostridium perfringens sýklar framleiða mörg mismunandi eiturprótein sem valda sjúkdómseinkennum í mönnum og dýrum og geta sum þeirra verið banvæn. Á Tilraunastööinni að Keldum hafa í mörg ár verið framleidd bóluefni og mótefnasermi gegn C. perfringens sýkingum í sauðfé og nýlega var hafinn útflutningur á mótefna- sermi til Danmerkur. Megintilgangur þessarar rannsóknar var að beita erfðafræðilegum aðferðum til að bæta framleiðslu á mótefnasermi og bóluefni og staðla mótefnamælingar. Gen beta eiturpróteinsins úr C. perfringens týpu C var einangrað og raðgreint og flutt í gena- ferju í E. coli. í þessari ferju er genið tjáð sem samrunaprótein sem auðvelt er að einangra frá öðrum próteinum bakteríunnar. Lífvirkni samruna- Próteinsins var prófuð í músum án nokkurra sýnilegra áhrifa. Fjölstofna mótefni gegn samruna- Próteininu voru framleidd í kanínum, og reyndust bæði næm og sérvirk í "Western blotti" á floti af C. perfringens. Mótefnasermið hindrar virkni beta eiturpróteinsins þegar serminu er blandað við banvænan skammt af eitrinu áður en því er sprautað í mýs. Beta samrunapróteinið sem framleitt var í E. coli hefur ekki eiturvirkni og kemur því ekki að gagni við athuganir á lífvirkni próteinsins. Auk þess er það framleitt í of litlu magni til að nýtast beint í bóluefni eða til mótefnaframleiðslu. Af þessum ástæðum var gen beta eiturpróteinsins ferjað inn í Bacillus subtilis í ferju sem stýrir seytingu próteinsins í utanfrumuvökvann. Fyrstu niðurstöður sýna að villigerð próteinsins er ekki framleidd með þessum hætti en stökkbreytt afbrigði er framleitt og flutt út í flotið. I þessu verkefni hefur tekist að framleiða beta eiturprótein aðskilið frá öðrum próteinum C. perfringens og einnig hafa verið framleidd sérvirk kanínumótefni gegn því. Hvort tveggja er mikil- vægt við stöðlun framleiðslu bóluefna og mótefna- serma og gerir kleift að mæla sérstaklega styrk beta eiturpróteins og mótefna gegn því. Vitað er að þessi mótefni eru mikilvægur hluti af verndandi mótefnasvari. Sérvirk mótefni eru auk þess gagn- leg tæki við frekari rannsóknir á beta eiturprótein- inu. Stökkbreytt afbrigði beta eiturpróteinsins hefur verið framleitt í B. subtilis og gæti nýst í framtíðinni við framleiðslu bóluefnis og mótefnasermis.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.