Læknablaðið : fylgirit - 15.12.1994, Page 105

Læknablaðið : fylgirit - 15.12.1994, Page 105
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 27 95 Framleiðsla visnuveiru proteina. Björg Rafnar, Gregory J. Tobin, Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, Matthew A. Gonda. Laboratory of Cell and Molecular Structure, Frederick, MD, U.S.A. og Tilraunastöö Háskóla íslands í meinafræði, Keldum. Visnuveiran er lentiveira af flokki retroveira og er skyld HIV. í íslenskum kindum veldur veiran heilabólgu. Allar lentiveirur hafa svipaða skipan á erfðaefni. Þær hafa gen fyrir byggingarprótein, kjarnaprótein (gag) og hjúpprótein (env), fyrir hvata (pol) og stjórnprótein. Tilgangur þessa verkefnis var að klóna visnu byggingargenin, gag og env, framleiða og hreinsa afurðir þeirra. Sýkingarhæfur, klónaður og raðgreindur visnuveiru stofn KV1772 kv72/67 var notaður sem genagjafi. Til gena-tjáningar var notuð skordýraveiran baculoveira er vex og tjáir aðskota prótein í Sf-9 skordýrafrumum. Gag: Allt gag skráningarsvæði (coding region) KV 1772 kv 72/67 var margfaldað með PCR aðferð. Afurðin var klónuð inn í pBacPac 1 genaferju og búin til endurröðuð (recombinant) veira, B29, sem tjáir forstigs Gag prótein. Einnig var gerð önnur endurröðuð veira, B38, þar sem í stað 5 fyrstu aminosýranna í Gag próteini visnuveiru voru settar 5 fyrstu aminosýrur úr Gag proteini HIV. Á rafeindasmásjármyndum af frumum, sýktum með þessum endurröðuðu veirum, sáust knappskot V 31 (budding) agna, er líkjast veirum, af yfirborði frumanna út í ofanvökva og í umfrymið. Munur var á byggingu agna B29 og B38. Agnir voru grófhreinsaðar úr ofanvökvanum og notaöar sem væki í prótein þrykki (Western blot). Mótefni í sermi visnu sýktra kinda, einstofna mótefni og fjölklóna músa mótefni úr kviðarholsvökva gegn visnuveiru bundust sérhæft próteinum en munur var á afurðum veiranna tveggja. Á þrykki B29 sáust tvö bönd u.þ.b. 50 kD og eitt band u.þ.b. 35 kD að stærð. Á þrykki B38 var, auk 35 kD bandsins, aðeins eitt 50 kD band, sem virtist ekki af sömu stærð og gag-prótein B29. Env: A sama máta var gerð endurrööuð veira er tjáir Env forstigsprótein visnuveiru að því undanskildu að í stað forraðar (signalpeptide) visnu veiru var sett forröð músa gamma inteferons. Env próteinið var tjáð í frumuhimnu Sf-9 fruma sem sýktar voru með endurröðuðu veirunni. Mótefni í sermi visnu sýktra kinda bundust sérhæft 100 kD próteini í þessum frumuhimnum. Þessi prótein verða nýtt til að nánari rannsaka meingerð veirusýkingarinnar, til sjúkdóms- greiningar og þróunar bóluefnis. SAMEINDAERFÐAFRÆÐILEG GREINING Á SJALDGÆFUM RHESUS BLÓÐFLOKKI. V 32 Ólafur Jcnsson1 og Ben Carrit2 1 Erfðafræðideild Blóðbankans, Landspítalinn, Rcykjavík. 2Medical Research Council, Human Biochemical Genetics Unit, University College London. Gen nokkurra blóðflokka hafa verið einangruð á undanförnum árum og raðgreind. Meðal þeirra eru gen ABO og Rhesus blóðflokkakerfa sem skipa sérstakan sess í blóðflokkafræði vegna mikilvægis þeirra við lækningar. Með erfðatæknigreiningu fást mun nákvæmari upp- lýsingar um blóðflokkaarfgerð einstaklingsins og getur það haft mikla þýðingu við úrlausn ákveðinna vandamála þar sem blóðflokkar koma við sögu. Nýlegar framfarir í erfðatæknigreiningu Rhesusblóðflokka er lærdómsríkt Jæmi um gagnsemi þessarar tækni (1). I grein 1983 (2) var lýst tveim konum, sem greindust arfhreinar í óvenjulegum Rhesus blóðflokki, -D-/-D-. Það vantaði CcEe setið í genasamsteypuna D CcEe, sem erfist sem heild með örfáum undantekningum. Tök voru á að greina Rh blóðflokka hjá nokkrum ættmennum annarrar konunnar og jafnframt tókst að sýna fram á skyldleika foreldra hennar, sem voru þremenningar. Sýni úr konunni og tveimur börnum hennar voru send til London 1993 til sameindaerfðafræðilegrar greiningar á Rhesusarfgerðinni. Nidurstaðan var, að konuna skortir algerlega Rliesus CcEe gen og hálfur skammtur af DNA CcEe gens kemur fram í rafdráttarmynstri hjá börnum hennar. Þetta er því skýrt dæmi um útfellingu í Rh CcEe geni. Niðurstaðan er áhugaverð þar sem áþekkar svipgerðir Rhesusflokks frá Frakklandi, Þýskalandi og Englandi höfðu sýnt eðlileg Rh CcEe gen. Áhrif stjórnunargena eru líka talin geta valdið því að engin tjáning verður á Rh mótefnavökum. Menn eru flokkaðir Rh jákvæðir eða neikvæðir eftir því hvort próf ftnna hjá þeim Rh D mótefnavaka eða ekki. Rhesus blóðflokkakerfið er flókið og um 50 Rh mótefna- vakar þess, sem greinst hafa með mótefnum, endurspegla Rh svipgerðir eða Rh prótein í frumuhimnu, sem táknar í tveim Rh genum, D og CcEe, stýra myndun á (1). Nú er hægt að greina Rh blóðflokka tveggja mánaða fósturs með erfðatækni. Ná má legtotusýni til rannsóknar ef áhættusamt er talið að móðir gangi með, sem myndað hefur Rh mótefni gegn blóðkornum barns síns. Nota má sömu tækni til að auka upplýsingagildi Rhesuskerfisins í barnfaðernismálum (2) og réttarlæknisfræði. Tæknin er líka mjög gagnleg við rannsókn ýmissa sjaldgæfra Rh arfgerða í mannfræðilegri erfðafræði. 1. Mouro I, Colin Y, Chérif-Zahar B, Cartron J-P & Le Van Kim C. (1993) Molecular genetic basis of the human Rhesus blood group system. Nature Genetics 5:62-65. 2. Ólafsdóttir S, Jensson Ó, Thordarson G, & Sigurðardóttir S. (1983) An unusual Rhesus haplotype, -D-, in Iceland. Forensic Science International 22: 183- 187.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.