Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1929, Page 55

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1929, Page 55
Stefnir] Friðarmálin. 245 ekki hamlað hér á móti, enda var ýmislegt, sem dró þessar tvær stéttir hvora nær annari en eðli- legt hefði verið, t. d. sósialisminn, sem báðir óttuðust. Júnkarinn fékk því að sitja að völdum sínum í friði. Og júnkarinn var herskár. Ef litið er til Frakklands, er það ekki heldur rétt, sem margir hafa haldið, að stjórnarbyltingin mikla hafi gengið milli bols og höfuðs á stóreigna-aðlinum. Aðlinum var að visu dreift í svip, en fjöldinn allur komst aftur að eignum sínum á Bourbonnatímanum, og margar stór- ar lendur, sem aðalsmenn voru flæmdir frá, lentu i höndunum á nýjum stóreignamönnum í stað þess að skiftast upp í smá bændabýli. Árið 1911 var talið, að 55,9 af frönsku þjóðinni hafi búið í sveit, og að til væri 134,000 stórir herra- garðar. Þessir stóreignamenn voru áhrifamenn í embættum, stjórnmál- um og hernum, og engan veginn friðsamari en þýzki júnkarinn. Hvort sem mönnum þykir það vel eða illa farið, þá er það víst, að þessi stétt manna hefir borið mjög skarðan hlut frá borði eftir ófriðinn mikla og byltingarnar í Evrópu, sem fóru í kjölíar hans. í Rússlandi er þessi stétt undir lok liðin, og hvort sem bolsjevikka- stjórnin Iifir skammt eða lengi, þá eru engar horfur á því, að þessi stóreignamannastétt verði framar leidd til síns gamla sætis. Aðals- stéttin í Austurríki er ekki heldur nema svipur hjá sjón. Þeir flögra um eins og fölvar vofur og komast það næst umheiminum, að gefa út minningar sínar. í Prússlandi tókst júnkurunum að halda eignunum, en staða þeirra er öll önnur en áður. Herinn er farinn og stjórnmála- áhrif þeirra eru litil. Það er fjár- magnið, sem sezt er að völdunum. Og þó að afturkippur kæmi, væri þá nokkrar líkur til þess', að hann yrði til þess að bönkum yrði lokað, verksmiður lagðar niður eða verzl- unarhús stöðvuð? Nei, fjármagnið er sezt þar í tryggt sæti. En, segja þeir vantrúuðu, höfum við ekki losnað við júnkarann, að- alsmanninn og herragarðseigandann til þess eins, að fá annan enn her- skárri gest á heitnilið, fjármagnið, auðvaldið, sem sífelt er á ferð leit- andi að þeim sem það geti gleypt? Það er alls ekki hægt að vísa svona spurning á bug. Fjármagnið getur beitt sér að ófriðarstarfi, og reynslan hefir fyrir löngu kveðið niður spádóm þeirra manna, sem I I

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.