Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1929, Side 57

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1929, Side 57
Stefnir] Friðarmálin. 247 alskt fjármagn heldur Albaníu uppi, en sjálfir bjarga ítalir sér með lán- tökum í Bandaríkjunum. Póllandi var bjargað frá gjaldþroti 1927 með aðstoð stórbanka í New York. í kauphöllinni í New York er m. a. skrá yfir þessa »viðskiftamenn«: Austurríki, Belgíu, Tjekkóslóvakíu, Danmörk, Finnland, Frakkland, Þýzkaland, Stórabretland, Ung- verjaland, írland, Ítalíu, Holland, Noreg, Pólland og Júgóslafíu. Fjár- magnið spyr ekki um neitt nema tryggingar. Það styður með glöðu geði sósíalistana í Vínarborg til þess að starfrækja þjóðnýtt fyrir- tæki. Þetta fjármálanet, sem spennt er um öll lönd, er afskaplega flókið og margþætt. Er gaman að taka eitthvert fjármálablað og líta á ein- staka þætti í þessum kóngulóar- vef. Tökum t. d. Vossische Zeitung, 29. ágúst 1928. Innan um óteljandi önnur mál er þar grein um grammó- fón-iðnaðinn. Lindström-Columbía- félagið hefir gengið í samband við Polyphone-Brunswick félagið. Til þess að auka þýzk áhrif í Colum- bía-félaginu hefir það eignast þýzk félög, ekki stór, en gömul og vel metin. Þá hefir enskt fjármagn und- ir forustu Duophone félagsins náð i félagið Vox-Schallplatten und Sprechmaschinen í Berlín. Ame- ríska Victor Talking Machine fé- lagið hefir gengið í félag við Elec- trola félagið í Berlín. Þjóðverjar færa líka út kvíarnar. Þeir hafa náð meiri hluta fjármagns í Nippo- phone-félaginu í Japan og hafa styrkt þar aðstöðu sína með því að eignast ýms fyrirtæki í þessari grein í Japan. Með öllu þessu kom- ast þessi félög, sem spenna yfir allan heim, hjá því að lamast af verndartollum og öðru því, sem stjórnir landanna eru að reyna að koma upp til þess að stía sér hver frá öðrum. Úr því að grammófóna-fyrir- tækin eru orðin svona víðtæk, má nærri geta, hvérnig það muni vera i ýmsum öðrum greinum. Hvað er nú orðið úr öllum hávaðanum um það, að kaupa ekkert og nota ekkert, sem komið sé frá andstæðingunum í ófriðnum mikla? Hvernig á að greina þýzkt frá ensku, franskt frá japönsku? Hvað mundu þessi fyrir- tæki, sem eiga miljónir í fyrirtækjum í öllum löndum, segja um það, að þjóðirnar færi að berjast um sneið af Butsolandi eða útdauðan eldgíg í miðju Kyrrahafinu? Svo er það félagsskapurinn milli peningastofnananna, sem alltaf er að verða viðtækari og viðtækari. í

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.