Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1929, Qupperneq 63
Stefnir]
Stalín.
253
einn aí 5 höfuðleiðtogum byltinga-
manna, Hinir voru Lenin, Trotzky,
Kameneff og Zinovieff. Stóðu þeir
fyrir byltingunni gegn Kerensky í
október það sama ár.
Stalín var annars aldrei í þeim
embættum, sem mestu þóttu varða.
Og hann naut hvorki álits né vin-
sælda í flokknum.
Hvernig náði hann þá þeim voða-
tökum, sem raun er á? Kunnugir
menn hafa svarað því þannig:
Stalín nær tökum vegna þess,
hve lítið álit samflokksmenn hans
höfðu á gáfum hans og hæfileik-
um. Það er Lenin, sem fyrst glæp-
ist á honum og síðan þeir Kamen-
eff og Zinovieff.
Þegar Lenín fann að heilsa hans
var að bila, lagði hann alla áherzlu
á, að treysta skipulag flokksins sem
allra mest. Hann dró aðal völdin úr
höndum flokksþingsins og lagði þau
í hendur Miðnefndarinnar og Lög-
reglustofunnar. Þannig er það enn
þann dag í dag. En Lenín sá það
í hendi sér, að sá maður, sem fengi
í hendur ritarastörf Miðnefndarinn-
ar, fengi greipileg völd, bæði vegna
þesS, að hann kæmist að öllum
flokksleyndarmálum, og gæti haft
á sinu bandi alla ritara flokksnefnd-
anna niður úr. í þessa stöðu þurfti
því að fá mann, sem ekki væri of
"vel viti borinn, en gerði það sem
honum væri sagt, og til þessa starfs
valdi hann Stalín. Það var því langt
frá, að það væri neitt' hól um Sta-
lín, að hann fékk þessa stöðu. Öll
þessi dæmalausa vinnuvél flokks-
ins átti að vera skipuð svona mönn-
um, flónum, sem hægt væri að
treysta að hlýddi skipunum.
En Lenín sá brátt, að honum
hafði yfirsést, er hann valdi Stalín
i þessa stöðp. Og eitt það síðasta,
sem hann ritaði, var skipun um að
víkja Stalín úr þessari stöðu. »Hanns
gerir okkur að öðrum kosti stór-
tjón. Hann er ekki sannur kommún-
isti og hann er fullur haturs til
Trotzkí. Það verður að fást við
hann strax og það duglega, annars
mun verra af hljótast.«
En Kameneff og Zinovieff höfðu
nú hrifsað völdin meðan Lenín lá
banaleguna. Og af því að þeir höfðu
i nógu öðru að snúast, létu þeir
Stalín eiga sig. Þeir voru ekki
hræddir við hann, bjánann þann.
27. maí 1924 létu þeir æðstu íram-
kvæmdanefnd flokksins skipa Stalín
i ritarastöðu Miðnefndarinnar.
Stalín beitir sér.
Lenín var dauður og hinir höfðu
nóg að gera. Enginn hafði eftirlit
með aðgerðum Stalíns. Og nú fór
hann að beita þessu ógurlega verk-
færi, sem hann réði yfir, skip-