Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1929, Page 73
Stefnir]
Frá Alþingi 1929.
263
oooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooeotooooooooooooooocooooooo
Hvert stelnirP
Allir uilja betri og fallegri uör-
ur og fylgjast með timanum, með
öðrum orðum beint til
o o
o o
o o
ooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooo
laganna. í þessari grein eru fald-
ar heimildir til stjórnarinnar og eru
útgjöld þau, sem þar eru heimiluð,
ekki talin með í jafnaðarupphæð-
inni. Nú eru t. d. þessir smá-molar
á 23. gr.:
Til þess að reisa skrif-
stofuhús . . . . . kr. 225 000
Til þess að kaupa jarð-
ir í Ölfusi .... — 100 000
Til þess að kaupa prent-
smiðju.................— 155 000
Samtals kr. 480 000
Eða rétt að segja xh miljón í
þessa þrjá liði, og fer fram úr
þeirri upphæð i reyndinni. Allar
þessar heimildir notar stjórnin.
Hvers vegna er ekki höfð við
þetta sú sjálfsagða aðferð, að veita
fé til þessara aðgerða og láta það
koma fram hreint og skýrt á fjár-
lögunum? Það er háskalegt að vera
að blekkja sjálfa sig og aðra með
því, að kalla það »heimild«, sem
ákveðið er að eyða og fá svo
skakkaföllin á landsreikningi siðar.
En auk þessa er einn af þessum
liðum þannig vaxinn, að ekki er
hægt að ganga fram hjá honum
þegjandi. Það er liðurinn um prent-
smiðjukaupin. Hann er ákaflega
glöggt dæmi upp á það, hvernig
sum mál eru rekin af þessari stjórn.