Sagnir - 01.04.1985, Side 18

Sagnir - 01.04.1985, Side 18
BJARNABORG um. Á þriöja áratugnum tók fólkinu að fækka en ekki verulega fyrr en eftir 1930.10 íbúunum fækkaði þá um helming miðað við það sem mest hafði verið. Hreyfingin sem kom á íbúa Bjarnaborgar á þessum tíma var af ýmsum sökum. Börnin giftu sig, framboð á íbúðarhúsnæði jókst og efnahagur batnaði. Þegar fólk fór að hafa meira fé á milli hand- anna ýtti bærinn undir að það fyndi sér annað húsnæði. Systurnar ásamt fjölskyldu sinni fluttu út þegar þau höfðu efni á að borga hærri leigu. Þegar sem þrengst var búið í Bjarnaborg, var mikil húsnæðisekla í Reykjavík. Gróskutíma húsbygg- inga á fyrsta áratug 20. aldarinnar var lokið. Á sama tíma og ekkert var byggt fjölgaði bæjarbúum um á fjórða þúsund manns. Afleiðingarn- ar voru háar húsaleigur og að víða var búið í lélegu og heilsuspillandi húsnæði. Árið 1919 hafði Indriði Einarsson (1851-1939), hagfræð- ingur og leikskáld, eftir læknum bæjarins, að um 4000 manns byggju í raun í óíbúðarhæfum vist- arverum.11 Magdalena og Margrét mundu vel eftir húsnæðisvandan- um á uppvaxtarárum sínum. Það var hreinlega búið í hverju skúma- skoti. Við Hverfisgötuna bjó fólk víða í skúrum og kjöllurum sem oft voru neðanjarðar að öllu leyti. Vistin í Bjarnaborg var því mun betri en í mörgum öðrum húsum í Reykjavík á þessum tíma. Þótt þröngt væri búið var hátt til lofts á hæðunum og risið ágætt. Amman, mamman, börnin og búskapurinn Heimilin í Bjarnaborg voru af ýms- um stærðum og gerðum og fá sem gætu flokkast undir vísitölufjöl- skylduna. Af manntölum má ráða margt um íbúa hússins. Nokkrar fjölskyldur voru mjög stórar með fjölda barna og vandamanna, aðrar voru minni. Auk þess bjó þarna námsfólk, gamalmenni og lausa- fólk, út af fyrir sig eða inni á heimil- um. Nokkur breyting varð á sam- setningu íbúanna í heild, eftir að bærinn tók við húsinu. Konum fjölg- aði hlutfallslega, og voru margar þeirra einstæðar mæður. Gífurlegur barnafjöldi varð annað einkenni. Ár- ið 1915 voru krakkar undir 14 ára rúmur þriðjungur íbúanna, en fimm árum seinna voru þeir orðnir um helmingur þeirra. Þá voru þeir sam- tals 75 og settu sterkan svip á lífið í húsinu; eins og þar væri stöðugt barnaafmæli. íbúar Bjarnaborgar unnu flestir fyrir sér. Fáir voru á styrk eða voru óvinnufærir. Flestir karlmannanna voru verkamenn og unnu meðal annars við gatnagerð, grjóthögg og ýmsa daglaunavinnu auk þess sem sumir voru á sjónum. Einnig bjuggu þarna nokkrir iðnaðarmenn; prent- ari, snikkari, söðlasmiður, sauma- kona, steinsmiður og ýmsir fleiri. Giftu konurnar voru flestar heima- vinnandi húsmæður, en nokkrar þeirra skutust í stakkstæðisvinnu á sumrin. Fiskvinnan og ýmis þjónusta voru helstu störf kvennanna. En þarna bjuggu líka tvær kennslukonur, spákona og miðill. Á þessum árum tíðkaðist ekki að giftar konur ynnu utan heimilisins ef þær komust af án þess. Ekkjur og einstæðar konur unnu hinsvegar utan heimilisins og voru þá stór hluti framfærenda í Bjarnaborg. í öllum tilvikum hjálp- uðu börnin til eftir því sem þau gátu. Heimili systranna Magdalenu og Margrétar er nokkuð lýsandi um hvernig fjölskylda í Bjarnaborg fór að því að láta endana ná saman. Eflaust er hún líka dæmigerð fyrir hið daglega brauðstrit einstæðrar móður á þessum tíma. Guðrún mamma systranna var aðalfyrir- vinnan, amman sá um heimilis- haldið og aðrir fjölskyldumeðlimir reyndu sem best þeir gátu að draga björg í bú. Guðrún vann úti fullan vinnudag. Hún tók að sér hreingerningar, þvotta og matargerð víðsvegar um bæinn, auk saltfiskbreiðslu af og til. Hálfsmánaðarlega fékk hún vinnu við að hreinsa dönsku skipin sem komu hingað til lands. Það var mikil og erfið vinna, en vel borguð. Vinnudegi Guðrúnar var ekki lokið þegar hún kom heim. Hún sá að öllu leyti um plöggin af heimilisfólkinu, saumaði, prjónaði, þvoði og bætti. Barist fyrir tilverunni Þaö var venja að senda krakkana til aö kaupa mjólk og skyr. Eitt sinn sem oftarþegar Magdalena varsend upp á Laugaveg íþessum erindagjörðum, sat fyrir henni liö stráka, á Vitastígnum. Einn þeirra réöist aö henni svo hún missti mjólkurkönnuna og braut hana. Margrét, sem var ansi herská, kom aö íþví og varö svo yfir sig vond aö hún sparkaöi í strákinn, sem tók til fótanna þóttstærri væri. Hún elti hann heim en þegar hann æddi inn í eldhúsiö datt hann á þröskuldinn. Hún settist ofan á hann og lamdi hann þangað til hún haföi svalaö reiöi sinni. Pabbi hans sat viö eldhúsborðið, en mamma hans var aö hræra í potti á eldavélinni. Kerlingin tók sleifina upp úr pottinum, veifaöi henni i kring um sig og sagöi: ,,Vaidimar, Valdimar, ætlaröu aö láta stelpuna berja strákinn?", því hann sat bara og glotti. Þá sagöi hann ósköp rólega: „Ég ætla ekki aö skipta mér af þessu. Hún má útkljá sitt mál. Hann hefur örugg- lega unniö fyrir þessu.“ Eftir þetta gengu þær í friöi um Vitastíginn. (6874. Þjóðháttadeild Þjóöminjasafns) 16 SAGNIR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.