Sagnir - 01.06.1994, Qupperneq 23

Sagnir - 01.06.1994, Qupperneq 23
Jóti Jóiisson Aðils. ekki mikla rækt við námsbækurnar og vildi frekar grúska í hinu og þessu sem honum fannst áhugavert. Hann þótti skemmtilegur viðræðu og söngmaður mikill og var því tíður gestur í sam- kvæmum sem ennfremur dró hann frá náminu. Arið 1889 hélt Jón til háskólanáms í Kaupntannahöfn. Ætlaði hann að nema læknisfræði, en hvarf frá því eftir tvo vet- ur og hóf að leggja stund á sagnfræði. Líkt og í stúdentsnáminu lagði hann litla aherslu á námið sjálft, enda fór svo að hann lauk aldrei embættisprófi. Hins vegar sat hann öllum stundum á bóka- °g skjalasöfnum þar sem hann rannsakaði sögu Norðurlanda og þá einkum Islands. I ríkisskjalasafni Dana kynntist Jón dönskum sagnfræðingi að nafni A. D. Jorgensen, sem þá var forstöðumaður safnsins. Hann hafði veitt Jóni athygli og tókst með þeim góður kunningsskapur. Jörgensen var einn mest metni sagnfræð- 'ngur Dana á þessum tíma, og varð Jón afar hrifinn af ritum hans, sögumeðferð °g framsetningu og tók hann sér til fýrir- myndar." Því er ekki úr vegi að varpa nánara ljósi á Jörgensen og söguritun hans. Þekktasta verk Jorgensens er án efa Fyrretyve Fortœllinger af Fœdrclandets Flist- orie, sem naut mikilla vinsælda og seldist í tugþúsundum eintaka. Það fjallar að mestu um sögu Suður-Jótlands og var hugsað sem innlegg í baráttuna um Slés- vík, en Jorgensen var fæddur þar og rakti þangað ættir langt aftur í aldir. Bókin er öll hin læsilegasta, Jorgensen dregur upp hveija svipmyndina á fætur annarri sem þó eru samhangandi og sýna söguþróun- ina allt frá 700 e. Kr. fram til annars suð- uijóska stríðsins 1864 sem Danir töpuðu. Þjóðernishyggjan er rauði þráðurinn í söguskoðun Jorgensens og bókinni án efa ætlað að stappa stáli í danska ættjarð- arvini. Auk ritstarfa hélt Jorgensen fjölda fyrirlestra, m.a. í lýðháskólum og meðal stúdenta. A fýrirlestrum sínum talaði hann óvenju lágt, en á bak við stílhrein orðin bjó mikill kraftur.12 Alþýðuskólar Dana, lýðháskólarnir, höfðu einnig áhrif á Jón á námsárum hans í Danmörku og stefna sú er kennd var við Grundtvig. Þegar heim kom bar Jón lofsorð á skólana og kennsluaðferðir þeirra. Danskir lýðháskólamenn byggðu ntikið á líflegum fýrirlestrum. I erindum þeirra og ritsmíðum var gjarnan lögð rík áhersla á mælsku og myndgnótt.13 I riti sínu Islenskt þjóðemi telur Jón lýðháskóla- hreyfinguna vera einhverja hina „stærstu og þýðingannestu hreyfmgu í lífi Norð- urlandabúa á síðari tímum“ og henni mætti þakka að bændastéttin í Dan- mörku væri „að mörgu leyti búin að fá á sig nýtt menningarsnið".14 Arið 1897 var Jóni veittur þingstyrkur til sagnaritunar og naut hann styrksins í tvö ár. Hélt hann þá heim til Islands og sinnti ýmsum störfum. A þingi 1901 fékk hann síðan aftur styrk, en sá böggull fýlgdi skammrifi að honum bæri að flytja fýrirlestra um söguleg efni fýrir alntenn- ing í Reykjavík. Það gerði Jón með myndarbrag. Nutu fýrirlestrar hans mik- illa vinsælda og var ráðist í að gefa þá út á prenti. Þannig urðu til bækurnar Islenskt þjóðerni; Cullöld Islendinga og Dagrenning sem byggðar eru á alþýðufýrirlestrum Jóns. Fyrirlestrarnir voru haldnir og ritin gefin út þegar sjálfstæðisbaráttan var í al- gleymingi milli heimastjómar og full- veldis. Ritin eru nokkuð ólík að upp- byggingu. Islenskt þjóðerni er mikið hvatningarrit á meðan Gullöld Islcndinga er meira í ætt við sagnfræðirit. Dagrenn- ing er síðan nokkurs konar lofræða um þá einstaklinga átjándu og nítjándu aldar sem Jón taldi eiga heiður skilinn fýrir framlag þeirra til sjálfstæðis- og framfara- baráttu Islendinga. Rómantísk þjóðernishyggja í erindum Jóns Aðils Þjóðernishyggja var mikilvægur þáttur í rómantískum viðhorfum. A Islandi var þjóðernishyggjan oft samtvinnuð róman- tík og þá einkum í alþýðufýrirlestrum Jóns Aðils. Raunar má draga þá ályktun af skrifum Jóns, að rómantíska stefnan hafi vakið upp þjóðernishyggjuna og það sé hennar helsta afrek: Með 19. öldinni hófst ný stefna í bók- mentum og listum Norðurálfuþjóð- anna, hin svo nefnda „rómantíska“ stefna, sem í afleiðingum sínum var þýðingarmeiri í lífi þjóðanna en nokk- ur önnur stefna fýr eða síðar. Þessi rómantíska stefna var í flestum grein- SAGNIR 21
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.