Sagnir - 01.06.1994, Síða 55

Sagnir - 01.06.1994, Síða 55
með að hafa í för með sér óánægju á jað- arsvæðum, eitthvað í líkingu við það sem kemur fram í togstreitu höfuðborgar og landsbyggðar á Islandi. III Fullveldishugtakið hefur þó sjaldnast verið hugsað út frá einstaklingunum í þjóðríkjum nútímans af því að í raun er tilfinningin um þjóðina sem lífræna heild bein arfleifð frá einyeldum fortíðarinnar. Sem dæmi má nefiia að þegar franska þjóðin setti sér stjórnarskrá í fyrsta sinn árið 1791 var þar skýrt tekið fram að full- veldið væri „eitt, ódeilanlegt, yrði ekki afhent öðrum, og ekki af mönnum tek- ið. Það tilheyrir þjóðinni; hvorki hluti þegnanna, né nokkur einstaklingur, get- ur yfirtekið það . . ,“9 Stjórnarskráin endurómaði í þessum orðum kenningar heimspekingsins Jean-Jacques Rousseaus, senr leit á fullveldið sem sameiginlega eign þegnanna,10 þótt hann setti ekki fram neina endanlega afmörkun á því hvaða hópur þegna ætti fullveldið í sam- einingu. 1 raun gerðist hér ekkert annað en það að franska þjóðin yfirtók fullveldi búrbónanna, en samkvæmt kenningum lögfræðingsins og stjórnspekingsins Jean Bodins, sem lagði grunninn að stjórnlög- um einveldisins við lok 16. aldar, skyldi fullveldið hvíla eitt og ódeilanlegt í höndunt konungsins." Hugtökin frelsi og fullveldi hafa því tvenns konar inntak í nútímasamfélögum. I annan stað er einstaklingsbundið full- veldi, þar sem áherslan er lögð á réttindi þegnanna frekar en ríkisfang og þjóðemi. Hins vegar er talað um fuUveldi þjóða, en samkvæmt þeint skilningi er réttur þjóða til að ráða sér sjálfar aUt að því heilagur og eilífur. Þjóðríki Vesturlanda eru flest reist á báðum þessum ltugtökum samtímis, þ.e.a.s. um leið og réttur þjóða til fúU- veldis hefur verið viðurkenndur hafa ríkin tryggt sjálfsákvörðunarrétt þegnanna. Stjómmálaþróun 19. aldar, sem náði há- punkti við Versalasamningana árið 1919, styrkti ríkjaskipun þjóðríkjanna í sessi. Við lok fýrri heimsstyrjaldar var sjálfsákvörð- unarréttur þjóðanna viðurkennd regla í alþjóðasamskiptum, þótt hnefaréttur stór- velda hafi áfram skipt mestu máli á vett- vangi alþjóðastjómmálanna. Hildarleikur síðari heimsstyijaldar færði framámönnum Evrópu hins vegar heim sanninn um að leitað öryggis í stofnunum sem veita henni tilfinningu fýrir því að hún tilheyri ákveðnu og skýrt afmörkuðu samfélagi, og þjóðin virðist vera ein mikilvægasta stofnunin af slíku tæi nú um stundir. Hins vegar byggir þessi þróun á rót- grónum ruglingi tengdum hugtakinu fullveldi. Eitt einkenni lýðræðisríkja er að þar byggir fullveldið á réttindum ein- staklinganna, þ.e.a.s. það eru í raun og veru einstaklingarnir sem mynda þjóð- trnar sem eru fullvalda en ekki þjóðirnar sem slíkar. I þessu felst annars vegar að fullveldið tryggir einstaklingunum ákveðin réttindi sem verða ekki af þeim tekin - þau teljast náttúmréttur þeirra - og hins vegar í því að allir þegnar samfé- lagsins eiga jafnan hlut í lagasetningu og njóta þar með jafnréttis gagnvart lögun- um. Hvað fullveldi einstaklinganna varð- ar skiptir því ekki máli hvaða samfélagi þeir tilheyra, svo frenri senr þessi réttindi þeirra eru tryggð — ég á fullveldi mitt ekki undir því að ég er íslenskur ríkis- borgari, lieldur því að ég er þegn ríkis sent virðir og tryggir réttindi mín. Af þessu leiðir einnig að Islendingar þurfa alls ekki að glata fullveldi sínu með því að ganga inn i stærri ríkisheildir, hvort sem þeir taka upp nýtt ríkisfang sem ein- staklingar eða þjóðin gerist sem ein heild aðili að nýju ríki. Skilyrði fýrir slíku er auðvitað að hún gerist ekki einhvers konar viðhengi annars ríkis þar sem önn- ur þjóð ræður öllu, heldur verði þegn- arnir fullgildir þátttakendur í stjórn og lagasetningu þess ríkis sem þeir yrðu að- iljar að. Annað skilyrði er að menning allra þegnanna verði virt, þótt sjálfsagt komi fjarlægð frá valdamiðju ávallt til SAGNIR 53
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.