Sagnir - 01.06.1997, Page 34
Börkur Gunnarsson
Jón Axel og tilvistarstefnan
Tilvistarstefnan (existentialism) er heimspekistefna sem á
rœtur sínar að rekja til Friedrichs Nietzsche (1844—1900)
og Sörens Kierkegaards (1813—1855) en varð skipulegri og
hlaut nafn sitt á 20. öldinni í meðförum Martins Heideggers,
Carls Jaspers,Jeans Pauls Sartre, Alberts Camus, Maurice
Merlaus Pontys, Simone de Beouvoirs ogfleiri. Hér verður
fallað um verk myndlistarmannsins Jóns Axels Björnssonar
útfrá sjónarhóli tilvistarstefnunnar.
Fyrir Plató var heimspekin leitin að reynd
og má segja að hin vestræna heimspeki
hafi verið undir ægivaldi hans og Aristót-
elesar allt fram á síðustu öld. Leit heim-
spekinnar að einhverju sameiginlegu,
reyndinni bakvið sýndina í þessum heimi
er þungamiðjan í vestrænni heimspeki
fram að Kierkegaard. Hver heimspeking-
urinn á fætur öðrum setur fram sína
kenningu um kerfi hluta og manna, kerfi
sem Kierkegaard gat ekki staðsett sjálfan
sig í. Eða einsog hann orðaði það: „One
might say that I am the moment of indi-
viduality, but I refuse to be a paragraph in
a system."1 Hann vildi meina að vegna
uppsafnaðrar þekkingar hjá mennta-
mönnum hefðu þeir gleymt mikilvægri
spurningu, sem er sú, hvað það er að
vera? Spurning sem er af sömu rótum
runnin og vangaveltur Heideggers um
hluti einsog hantar sem við tökum til
notkunar áður en við veltum því fyrir
okkur hvað hamar sé?2
Auðvitað mætti færa góð rök fyrir því
að rætur tilvistarstefnunnar sé að finna
miklu fyrr, t.d. hjá Kant sem sýndi að
ekki væri hægt að aðskilja eðli frá tilvist,
eða jafnvel allt til heilags Agústínusar sem
færði heimspeki hreinnar hugsunar nær
manninum sem einstaklingi,3 en í þessari
örstuttu og yfirborðslegu kynningu á til-
vistarstefnunni verður ekki farið út í slík-
ar vangaveltur.
Eins ólíkir og heimspekingar tilvistar-
stefnunnar eru þá eiga þeir það sameigin-
legt að telja að tilvist (existcnce) komi á
undan eðli (essence). Flestir þeirra trúðu
ekki á guð en það var engan veginn al-
gilt. Þeim bar saman um að hvort sem
guð er til eða ekki þá er í það minnsta ör-
An lilils, 1996 (mynd 1). Við fyrsln sýn cr það cinmanakctmd sem Jón Axcl virðisl vcra að lúlka í þessari mynd, en við nánari skoðun cr sá eittmanalciki ekki algjör. Þrír
diskar á sveimi vísa til nálcvgðar mannvera.
32 SAGNIR