Sagnir - 01.06.1997, Qupperneq 49
Flest bendir til að íslenska verslunarfél-
agið hafi verið eitt mikilvægasta fyrirtæki
sinnar tegundar í ríkinu, allt fram til ársins
1662 þegar styijöld við Svía lék það grátt.
Konungur fékk snemma að njóta ávaxta
verslunargróðans þegar kaupmannastétt
borgarinnar fjármagnaði stóran hluta af
stríðsútgjöldum ríkisins á miðri sautjándu
öld. Velgengni þess byggðist einkum á
hagstæðum samningum við kaupmenn í
„Á sautjándu öld þótti vel-
ferö utanríkisverslunar best
borgið með því að kaup-
menn mynduðu sterk versl-
unarfélög undir verndar-
væng ríkisvaldsins."
Hamborg, því ekki reyndist unnt að
koma helstu útflutningsafurð Islendinga,
skreið, til markaðssvæða í Mið-Evrópu án
milligöngu þeirra.4
Arið 1684 var umdæmaverslun inn-
leidd á Islandi, einstakar hafnir voru
leigðar hæstbjóðanda. Þá glataðist sú sam-
vinna sem Islenska verslunarfélagið hafði
náð við þýska kaupmenn og verðstýring-
ar einstakra Islandskaupmanna báru ekki
árangur.5
Útgjöld úr
Herbergissjóði þann
29. mars 1696.
Zepsen listmálara 60 ríkisdali
fyrir altaristöflu - Steenvinchel
yfírsmið 40 ríkisdali fyrir tvær
styttur úr fílabeini og róðukross -
umsjónarmanni baðstofunnar 15
ríkisdali fyrir baðvatn hirðkvenn-
anna árin 1695 og 96 - umhirða
fyrir hest konungsins í Rungsted
1 4 ár: 10 ríkisdalir — einum Is-
landskaupmanni 50 ríkisdali fyrir
horn úr einhyrningi sem sett var
á listasafiiið.
Konutigur hrjur uerið ad greiða andvirði cins kúgildisfyrir
Inð nieinta liorn úr einhyrningnum en f)’Ua niátti baðkör-
nt í rínnlega scx ár fyrir sötnu upphcvð.
Heimild: Kongelige Kainmerregnskabcrfra Frcdcrik llls
°& Christiatt VsTid (Kaupmannahöfn,1918), 483.
Lánts Gottrítp lögmaðttr ífaðmifjölskylduimar. Það kom í Itlut Gottníps að fara með bœnaskrá Islendinga á
fiind komings. Tillögur lians gengu aðallcga út á að afnema utndœniai'ersliinina. — Þjóðininjasafn Islands.
Sænsk fallstykki áttu ekki eingöngu
heiðurinn af því að Islenska verslunarfél-
agið leið undir lok. Arið 1660 var ein-
veldi komið á í Danmörku, aðallinn
missti gömul forréttindi en borgarar og
sérstaklega kaupmenn færðu sig upp á
skaftið. Margt bendir til þess að umdæm-
averslun hafi verið komið á til að þóknast
þessum nýju bandamönnum krúnunnar.
Á árunum 1662 til
1683 ríkti nokkurs
konar millibilsástand
í Islandsversluninni
þar sem höfnunum
var skipt á milli fjög-
urra af stærstu kaup-
sýslumönnum Kaup-
mannahafnar. Fleiri
kaupmenn vildu
komast að og þeir
hafa ennfremur séð tækifæri í umdæma-
versluninni til að rétta hlut sinn gagnvart
íslendingum. Það kom á daginn, borgara-
legir embættismenn á hjálendunni að-
höföust lítið á rneðan leigutakar skömmt-
uðu sér lög og rétt í skjóli einveldisins.1’
Danska kaupmannastéttin var ekki ein
um að hagnast af umdæmaskiptingunni.
Lengi hefur verið talið að Islandsverslunin
hafi skipað sérstakan sess á meðal tekju-
auðlinda Danakonunga. Afgjöld afversl-
unarleigunni eiga að hafa runnið, ásamt
Eyrarsundstollinum, beint inn í Kammer-
regning eða „Herbergissjóð" konungs,
eigið framkvæmdafé hans sem notað var
til að (jármagna frillulífi og annan íburð
krúnunnar.7 A skýringarmynd á bls. 48
sem sýnir Islandsverslunina eftir kenn-
ingum kaupskaparstefnunnar má sjá
hvernig hagstjórn á sautjándu öld stefndi
að því að auka tekjur konungs samtimis
því að koma upp
öflugri kaupmanna-
stétt. Þetta var tími
kaupskaparstefn-
unnar en hún ein-
kenndist meðal
annars af eflingu
iðngreina og hand-
verks - einkum
áberandi í Dan-
mörku í tíð Kristj-
áns fjórða á árunum 1620—1630."
Slikt átak bar á góma í umræðunni urn
viðreisn Islands á átjándu öld en þær hug-
myndir dagaði uppi og því fór lítið fyrir
fjármagnsflæði í þann geira atvinnulífsins.
Það samræmdist ekki kaupskaparstefn-
unni að efla framleiðslu í landbúnaðar-
geiranum en Islandsverslunin byggðist al-
gjörlega á henni. Danakonungur hafði
takmarkaða möguleika á að auka tekjur
sínar af landinu með því að skattpína Is-
lendinga. Afgjöld í Jarðabókarsjóð voru í
„... borgaralegir embættis-
menn á hjálendunni að-
höfðust lítið á meðan leigu-
takar skömmtuðu sér lög og
rétt í skjóli einveldisins."
SAGNIR 47