Sagnir - 01.06.1997, Page 65
era gegndi þeirri stöðu sleitulaust næstu
16 árin þar til hann tapaði loks kosning-
urn árið 1948 þegar aðrir stjórnmála-
flokkar sameinuðust um það eitt að koma
Fianna Fáil frá völdum. Aö þremur árum
liðnum komst Fianna Fáil aftur til valda,
deValera var forsætisráðherra 1951-1954
og síðan aftur 1957—1959 en þá ákvað
hann að hætta beinum afskiptum af
stjórnmálum, enda orðinn fjörgamall og
blindur. Hann settist þó ekki i helgan
stein heldur var forseti Irlands til 1973 og
andaðist síðan árið 1975, þá 93 ára gam-
all.37
Hér er um undraverðan stjórnmálaferil
að ræða. Það sést best á þeirri staðreynd
að deValera var liðsforingi í Páskaupp-
reisninni 1916 og síðan forseti þegar Irar
minntust þessarar sömu uppreisnar með
pompi og prakt heilum fimmtíu árum
siðar. Þessi maður, og flokkur hans Fianna
Fáil, gnæfir yfir öllu stjórnmálalífi Irlands
a öldinni og þótt það sé kannski svolídð
kaldhæðnislegt að Eamon deValera og Fi-
anna Fáil skuli hafa náð yfirburðastöðu
eftir 1932, í ljósi þess að Michael Collins
°g flokkur hans hafði betur 1922, mætti
®tla að Irar litu á þennan stjórnmálarisa
sem hetju sína, sem stjórnmálaskörung
sem stæði fyrir allt það er gott væri i
írsku þjóðlífi.
Svo er þó ekki því Irar leggja nú allt
kapp á að glíma vofu deValeras í grasið.
Idand deValeras er ekki fagurt í minn-
mgu fólksins; það var afturhaldssamt,
gamaldags og völd kaþólsku kirkjunnar
fengu óáreitt að gnæfa yfir öllu. Stjórn-
völd reyndu að þvinga upp á Ira gelíska
tungu sem löngu var glötuð og ollu
þannig sálarkreppu hjá þjóðinni sem taldi
S1g sjá á eftir manndómnum um leið og
tungunni.3* Hugmyndafræði Fianna Fáil
var ávallt gegnsýrð þjóðerniskennd sem
orðið hefur harla óvinsæl á síðustu þijátíu
arum á Irlandi sökum þeirrar andstyggðar
sem margir hafa á ódæðisverkum er fram-
111 hafa verið i nafni þjóðernisstefnu á
Norður-írlandi síðan 1968.39
Sama ár og deValera hætti sem forseti,
arið 1973, gekk írland í Evrópusamband-
(þá kallað Efnahagsbandalag Evrópu)
°g hefur síðan gengið í gegnum dramat-
'skar þjóðfélagsbreytingar. Með aðildinni
losnaði það loks undan menningar- og
efnahagsfjötrum Bretaveldis sem írland
var ætíð hlekkjað í þótt fullveldi væri náð
I^^l. Sumir ganga svo langt að segja að
við inngönguna i EB hafi írland fyrst
fllotið sjálfstæði.40 Þessi skil við fortíðina
Urðu mest áberandi árið 1990 þegar Fi-
Hiim eini og sanni Michacl Collins. Frccgar eni sögiirnar af honum á reiðhjáliiiu sem liaim ferðaðisl á nm strœti
D)jliimar og skipli þá engu l>ótl varðlið breska hersins vœri á hverju götuhorni.
aitna Fáil inistókst í fyrsta sinn að konta
frambjóðanda sínum í sæti forseta írska
lýðveldisins. I staðinn kusu írar frjálslynd-
an lögmann með umdeildar skoðanir,
Mary Robinson, sem var kona í þokka-
bót. Með tímanum varð Robinson hold-
gervingur hins nýja Irlands sem er Evr-
ópusinnað, opið, sáttfúst og reiðubúið til
að takast á við þær gömlu beinagrindur
sem kunna að leynast í skápnum.41
Kannski er því skiljanlegt að Irland nú-
tímans kunni illa að meta arf de Valeras og
kannski snýst rnálið einfaldlega um það
að de Valera gnæfði of lengi yfir öllum
stjórnmálum. Minningin um fölskvalausa
og fallna hetju, Michael Collins, varpar
því skugga á stjórnmálaskörunginn de
Valera um þessar mundir en ekki er ólík-
legt að de Valera verði, þegar fram líða
stundir, sjálfur endurmetinn og endur-
skoðaður af sagnfræðingum.42 Má jafnvel
segja að slikt endurmat gerist nú bráð-
nauðsynlegt eftir þá útreið sem hann fær í
Micliael Collins,43
SAGNIR 63