Sagnir - 01.06.1997, Blaðsíða 74
hátt fæðingarhlutfall. Þrátt fyrir að giftar
konur væru minnihlutahópur, var fæð-
ingarhlutfallið engu minna en á Norður-
löndunum. Bent hefur verið á í því sam-
bandi að hjónabandið hafði „í för með
sér nánast því gernýtingu á líffræðilegri
getu hennar til barnsburðar ,..“27 Erlend-
ar rannsóknir hafa einnig sýnt fram á að
heilsu kvenna er stefnt í voða þegar stutt
bil er á milli fæðinga. Konan verður ekki
fær um að gefa brjóst eða sinna tveimur
smábörnum samtímis, afleiðingin verður
venjulega sú, að annaðhvort barnið deyr.:“
Tíðar fæðingar, mikill barnamissir, sjúk-
dómar og fátækt voru fýlgifiskar konunn-
„Mæðrum, útslitnum and-
lega og líkamlega, var lögð
á herðar sú mikla ábyrgð
að dæma um eigin hæfni
og getu til brjóstagjafar."
ar. Ljóst er að á átjándu öld var ekki að-
eins um líffræðilega gjörnýtingu konunn-
ar að ræða, heldur einnig andlega.
Hnípin kona í vanda
Að öllu framansögðu er ljóst að brjósta-
gjöf á átjándu öld hefur verið miklum
annmörkum háð.Yfir konur gengu sóttir
aldarinnar jafnt og aðra, þær voru einnig
hrjáðar af landlægum hörgulsjúkdómum
af völdum vannæringar og ofan á allt eru
allar líkur til þess að þær hafi verið mjög
hijáðar af kvensjúkdómum hvers konar.
Vannæringin gat verið margvíslegur
orsakavaldur.Til hennar má rekja líkur á
Barnslík í kistu snemma á öldintii. Niðurstöður frœðimanna, á þá leið að mœður liaft uanrœkt hlutverk sitt og
ekki stst að mœður Itafi vanrœkt eldi barna sinna til að takmarka lífslíkur þeirra er áfellisdómur yftr konum fyrri
alda. — Þjóðminjasafn Islands.
ófullburða og ófullkomnum börnum, sem
áttu sér minni lífslíkur.Vannæring móður
gat valdið því að mjólkurmyndun var
ekki næg til að fullnægja fæðueftirspurn
barnsins og rök hafa verið færð fyrir úr-
ræðum mæðranna.
Hinn hái giftingaraldur hefur einnig
haft áhrif á heilbrigði og lífslíkur barn-
anna.Allt eru þetta þættir sem hugleiða
þarf þegar við ræðum um ungbarnadauða
á átjándu öld.
Mæðrum, útslitnum andlega og líkam-
lega, var lögð á herðar sú mikla ábyrgð að
dæma urn eigin hæfni og getu til btjósta-
gjafar. Auðvelt er að skilja að lítið þurfti
til að þær sannfærðust um ófullkomleika
sinn og teldu kúamjólkina bestu lausnina.
Niðurstöður fræðimanna, á þá leið að
mæður hafi vanrækt hlutverk sitt og ekki
síst að mæður hafi vanrækt eldi barna
sinna til að takmarka lífslíkur þeirra er
áfellisdómur yfir konum fyrri alda. Dóm-
ur sem ekki getur talist réttnrætur.
Tilvísanir
1 Gísli Gunnarsson, Upp cr boðið Isaland. Einokunarverslun og (slenskt satnfélag
1602-1787 (Reykjavík, 1987), bls. 23.
2 Loftur Guttormsson, „Barnaeldi, ungbarnadauði og viðkoma á Islandi
1759-1860.“ Athöfn og orð. Aftncelisrit helgað MattlnasiJónassyni áttræðum. Ritstjóri
Sigutjón Björnsson (Reykjavík, 1983), bls. 153.
3 Sama rit, bls. 154.
4 Sama rit, bls. 154.
5 Eggert Olafsson, Fcrðabók Eggcrts Olafssonar og Bjarna Pálssonar utn fcrðir þcirra á Islandi
árin 1752-1757 I. íslenzkar) hefur Steindór Steindórsson (Reykjavík, 1943), bls. 313.
6 Gísli Gunnarsson, The Scx Ratio, the Infant Mortality and Adjoining Societal Rcsponsc
in Pretransitional Iccland (Lundi, 1983), bls. 4.
7 Arni Björnsson, Merkisdagar á tnannsœvinni. Gamlar venjur siðarcghtr og sagnir (Reykjavík,
1982), bls. 46. - Helgi Þorláksson, „Óvelkomin börn?“ Saga XXIV (1986), bls. 88.
8 Eggert Ólafsson, Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar II, bls. 49-50.
9 Schleisner, Peter Anton, Island undersögt fra et lægevidenskapcligt synspunkt (Kaup-
mannahöfn, 1849), bls. 166.
lOJónas Jónassen, Lækningabók handa alþýðu á íslattdi (Reykjavík, 1884), bls. 326.
11 Sama rit, bls. 326-327.
12 Sama rit, bls. 70-72.
13 Sama rit, bls. 70-71.
14 Loftur Guttormsson, „Barnaeldi, ungbarnadauði og viðkoma á íslandi
1759-1860“, bls. 155.
15 Eggert Ólafsson, Fcrðabók Eggcrts Ólafssonar og Bjartta Pálssonar I, bls. 229.
16 Sama rit, bls. 229-230.
17 Árni Björnsson, Merkisdagar á tnatinsævinni, bls. 42.
18 Gísli Gunnarsson, The Sex Ratio, bls. 9.
19 Björn Halldórsson, „Atli eður ráðagjörðir yngismanns um búnað sinn helst um
jarðar- og kvikfjárrækt aðferð og ágóða með andsvari gamals bónda. Samanskrifað
fyrir fatækis frumbýlinga, einkanlega þá sem reisa bú á eyðijörðu." Rit Björns Hall-
dórssonar ( Sauðlauksdal. Gísli Kristiánsson og Björn Sigfússon bjuggu til prentunar
(Reykjavík, 1983), bls. 174.
20 Helgi Þorláksson, „Óvelkomin börn?“,bls. 103.
21 Árni Björnsson, Mcrkisdagar á mannsævinni, bls. 43.
22Jónas Jónassen, Lækningabók Itanda alþýðu, bls. 323-324, 326.
23 Dagný Heiðdal, „„Þeir sem guðirnir elska deyja ungir“. Um ungbarnadauða og
ungbarnaeldi á 18. og 19. öld.“ Sagnir9 (1988), bls. 67.
24 Hastrup, Kirsten, „A question of reason. Breast-feeding patterns in seventeenth-
and eighteenth-century Iceland.“ Thc Anthropology ofBreast- feeding. Natural Law or
Social Constmct.Vanessa Maher ritstýrði (Oxford, 1992), bls. 98-99.
25 Helgi Þorláksson, „Óvelkomin börnVj bls. 88.
26 Eggert Ólafsson, Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar I, bls. 229.
27 Loftur Guttormsson, „Barnaeldi“, bls. 155.
28 Hér er átt við „Maternal depletion syndrome“ í rannsóknum á vanþróuðum lönd-
um.Vanessa Maher, „Breast-Feeding and Maternal Depletion.“ The Anthropology of
Brcast-feeding. Natural Law or Social Constmct.Vanessa Maher ritstýrði (Oxford,
1992), bls. 157.
72 SAGNIR