Sagnir - 01.06.2004, Page 70

Sagnir - 01.06.2004, Page 70
.FELLAPAKKIÐ í GEITÓINU' Á þessari mynd sést vel hvernig byggingarkraninn gekk á teinum meðfram blokkunum. son fram tillögu í borgarstjórn, þar sem hann fór fram á að vegna mikils aðstreymis fólks í Breiðholtshverfin skyldi borgarverkfræð- ingi falið að gera áætlun, sem miðaði að því að flýta verklegum framkvæmdum og uppbyggingu þjónustu í hverfunum.:4 A þessum fjórum árum hafði þó ýmislegt verið gert, stofnuð var Breiðholts- nefnd og líka Framfarafélag Breiðholts 3 en þau voru bæði með það að markmiði að flýta fyrir og koma á ýmis konar þjónustu fyr- ir íbúa hverfisins. í apríl 1973 kom eftirfarandi fram í fréttabréfi Framfarafélagsins: Framfarafél. Breiðholts 3 er ungt félag með mörg óleyst verkefni framundan. Eitt af þeim er að hlúa sem bezt að börnum okkar og reyna að veita þeim aðhald og öryggi. Þarfir íbúa hverfisins og barna þeirra eru misjafnar, en öllum börnum er nauðsynlegt að geta notið útivistar og foreldrum þeirra að geta veitt þeim útivist. í okkar hverfi er þessum þörfum ekki fullnægt og ber okkur því brýn nauðsyn að benda ráðamönnum borgarinnar á það afleita ástand sem hér ríkir. Við höfum frétt, að úrbóta væri að vænta seinni hluta sumars í fyrsta lagi, en síðan höfum við haft spurnir af því, að þetta yrði kannski fyrr, en allar aðstæður í hverfinu hvetja okkur til að reyna að flýta þessu að mun. Byggingarframkvæmdir þær, sem eiga sér stað í Fellunum, við Vesturberg og í Hólahlutanum, skapa svo gífurlega umferð, að öllum stafar stórhætta af og þá ekki sízt smá- börnum. Undirskriftarsöfnun var því talin óumflýjanleg og var henni hrundið af stað.25 68 SAGNIR 24 ÁRGANGUR 04 UPPBYGGIN Við afhendingu undirskriftalistans, kvað borgarstjóri það rétt að hverfið hefði vaxið mun örar en gert var ráð fyrir í skipulagningu þess. Þróunarstofnun Reykjavíkurborgar gerði ekki ráð fyrir því að hverfið yrði fullbyggt fyrr en um 1980. f bréfi til borgarstjóra segir Framfarafélagið m.a. að: [Mjikill hugur (sé( í íbúum hverfisins varðandi félagslega aðstöðu fyrir börn og unglinga, sem því miður hafa, enn sem komið er, ekki í önnur hús að venda en götuna, byggingar og hin ágætu óskipu- lögðu svæði... Það er því ekki um óeðlilega kröfugerð að ræða frá 6500 íbúa hverfi (sem verður væntanlega ca. 10.000 íbúa nú í haust og ca. 15.000 íbúa haustið 1974) að fara fram á, að félagsleg að- staða fyrir a.m.k. börn og unglinga verði fyrir hendi.26 í kjölfar baráttu Framfarafélagsins var íþróttafélag Breiðholts 3 stofnað 17. maí 1973 sem sfðar varð íþróttafélagið Leiknir og fé- lagsmiðstöðin Fellahellir stofnsett í kjallara Fellaskóla árið 1974.27 GÓLANHÆÐIR OG GASASVÆÐIÐ! Margar greinar hafa verið skrifaðar um Breiðholtið og í mörgum þeirra er mikil neikvæðni í garð hverfisins. í blaðagreinum endur- speglast oft viðhorf fólks, en ýmislegt rýrir heimildagildi þeirra. Þar koma oft fram ýmsar fullyrðingar sem standast ekki, sleggju- dómar auk þess sem margt er sagt í hita leiksins. I gegnum tíðina hefur verið talað um Breiðholtið sem eina heild en ekki þrjú hverfi sem í bjuggu um 20. þúsund manns. Oftar en ekki var þá verið að G EFRA-BREIÐHOt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.