Sagnir - 01.06.2004, Blaðsíða 63

Sagnir - 01.06.2004, Blaðsíða 63
■ GUÐNÝ HALLGRÍMSDÓTTIR hennar flutti ekki með á nýja heimilið heldur fékk hún nýja ráðs- konu sér til aðstoðar, Guðrúnu Oddsdóttur, sem hafði alist upp í Hörgsdal. Ný og ókunn ráðskona hefur tæplega sýnt Arnbjörgu sama umburðarlyndi og ástúð sem systir hennar gerði. Viðskilnað- urinn við foreldra og systkini hefur líka sett sitt mark á lífsvilja hennar og getu til að takast á við nýtt umhverfi og nýjar venjur. Smátt og smátt hefur Arnbjörg þó aðlagað sig aðstæðum á nýja heimilinu, börnin vaxið úr grasi og ráðskonan gerst heimavön. Arið 1807 hafði Arnbjörg verið algjörlega blind í átta ár. Börnin hennar tvö voru á 10. og 11. aldursári og farin að geta annast sig að mestu leyti sjálf. Fermingarundirbúningurinn var hafinn og í árleg- um skýrslum sóknarprestsins sést að geta barnanna í lestri og skrift jókst með hverju árinu. Guðrún ráðskona hefur trúlega aðstoðað við að uppfræða börnin.14 ÁSTÆÐUR HJÓNASKILNAÐARINS Foreldrar Arnbjargar voru orðin háöldruð og hætt búskap. Jón sonur þeirra hafði tekið við búsforráðum á Morðtungu og hýsti nú gömlu hjónin. Algengt var að aldraðir foreldrar önnuðust smá- börnin á bænum sem voru of ung til að vinna en á Morðtungu voru sex börn á aldrinum fimm til ellefu ára. f Hörgsdal nutu Jón og Arnbjörg aftur á móti dyggrar aðstoðar ráðskonu sinnar sem hafði verið í vist hjá þeim í nokkur ár. Guðrún annaðist líklega flestar húsmóðurskyldur Arnbjargar á bænum og hafa þau hjón því vænt- anlega ekki viljað missa hana burt úr vistinni.25 A þessum tíma var nokkur vinnuafls skortur á landinu og góðar ráðskonur því eftir- sóttar í vinnu.26 Algengt var að aldraðir foreldrar önn- uðust smábörnin á bænum sem voru of ung til að vinna en á Morðtungu vom sex börn á aldrinum fimm til ell- efu ára. Aðstæður þeirra Jóns og Arnbjargar voru slíkar að erfitt hefði verið fyrir heimilið að komast af án ráðskonunnar. Því var nauð- synlegt, til að koma í veg fyrir upplausn fjölskyldunnar vegna veik- inda Arnbjargar, að tryggja ráðskonunni lagalega framtíðarfram- færslu. Jón bóndi ákvað því að sækja um skilnað við konu sína og leyfi til að giftast ráðskonunni. REYNT AÐ SÆTTA HJÓNIN Samkvæmt tilskipun frá kansellíinu, frá því um 1800, var stiftamt- mönnum og amtmönnum leyfilegt að gefa hjónum leyfi til skilnað- ar að borði og sæng „naar de ei ved mægling kunne bringes til For- lig, og at leve I Enighed með hinanden.'*27 Ákvörðun dönsku stjórn- arinnar var þá merki um breytt viðhorf yfirvalda til hjónabandsins þar sem fólki var í vaxandi mæli gert mögulegt að skilja án þess að þurfa að sanna hjúskaparbrot á maka sinn. Áður en yfirvöld gáfu hjónum leyfi til aðskilnaðar að borði og sæng þurftu sáttatilraunir að fara fram í umsjón sóknarprests. Jón og Arnbjörg urðu því fyrst að sækja sáttafundi hjá sóknarpresti sín- um, Bergi Jónssyni, áður en þau gátu fengið leyfi til aðskilnaðar að borði og sæng. Hjónin hafa þó varla haft ástæðu til að sækja slíka fundi enda ríkti fullkomin sátt þeirra á milli um ráðahaginn en meginástæða skilnaðarins var auðvitað að tryggja áframhaldandi sambúð þeirra. Sáttanefndir eða „forligelsescommisioner" voru innleiddar í Dan- mörku með tilskipun 1795 en hér álandi25. ágúst 1798® Allur gang- ur var á hvernig þær störfuðu um landið en árið 1806 gaf Frederik C. Trampe stiftamtmaður út allsherjarskipulagsskrá fyrir sáttanefndir í suðuramtinu sem skipaðar voru presti sóknarinnar ásamt hrepp- stjóra eða öðrum tiltækum embættismönnum á staðnum.25 ÖRLAGASAGA ÚR ÍSL Sáttanefndum bar að reyna að ná sáttum milli hjóna er óskuðu eftir skilnaði að borði og sæng. Þær skyldu síðan árlega senda amt- manni skriflega skýrslu um gang mála þar sem ástæður skilnaðarins voru tíundaðar ásamt aðstæðum hjónanna og hvort sátt hefði tekist milli þeirra eða hvort setja þyrfti málið í dóm.30 Sóknarprestur þeirra Jóns og Arnbjargar þekkti vel erfiðar aðstæður þeirra. Jón hafði unnið hjá Bergi áður en hann giftist Arnbjörgu en auk þess hafði presturinn tekið hús á þeim árlega, skírt og jarðsett börn þeirra og tekið þannig fullan þátt í sigrum þeirra og sorgum í lífinu. Magnús Stephensen SKÝRSLA SÓKNARPRESTS Árið 1807 var Trampe greifi starfandi stiftamtmaður á íslandi og til hans sendi sóknarpresturinn skýrslu um misheppnaðar sáttatil- raunir milli þeirra hjóna. f bréfinu ræddi hann óskir þeirra og sótti um leyfi til skilnaðar. Presturinn gerði heldur meira úr erfiðleikum fjölskyldunnar en efni stóðu til. í meðaumkun sinni með hjónunum hefur hann viljað hjálpa þeim við að hliðra til sannleikanum á sem heppilegastan máta fyrir umsóknina. í bréfinu segir presturinn hjónin hafa mætt fyrir sáttanefndina þar sem þau hafi sagst ekki treysta sér lengur til að búa saman í hjóna- bandi vegna fötlunar Arnbjargar. Hún hafi verið staurblind síðast- liðin átta ár og því ekki getað sinnt börnum þeirra þremur „hvoraf det ældste ednu ikke kan ernære sig selv.“ Staðreyndin var þó sú að að börnin voru aðeins tvö og það eldra var orðið tíu ára. í bréfinu sagði presturinn að búi þeirra yrði ekki lengur viðhaldið nema þau réðu til sín dugmikla og trygga ráðskonu sem væri ekki til neinnar staðfestu nema Jón Eiríksson myndi giftast henni. Presturinn gerði heldur meira úr erfið- leikum fjölskyldunnar en efni stóðu til. I meðaumkun sinni með hjónunum hefur hann viljað hjálpa þeim við að hliðra til sannleikanum á sem heppi- legastan máta fyrir umsóknina. Bæði Arnbjörg og faðir hennar samþykktu ráðahaginn enda var Arnbjörg algerlega háð aðstoð annarra vegna fötlunar sinnar. Und- ir skýrsluna skrifuðu Jón, Arnbjörg, Þórarinn og tveir vottar þ.á m. Bergur sóknarprestur. Undir nöfnum Arnbjargar og Þórarins stendur í sviga að hendi þeirra sé stýrt. Ellihrumleika Þórarins og blindu Arnbjargar var að sjálfsögðu þar um að kenna.” S V E I T SAGNIR 24 ARGANGUR 04 61
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.