Sagnir - 01.06.2004, Blaðsíða 73
■ BRAGI BERGSSON
lingarnir sjálfir bruggi í geymslum og skúmaskotum með samþykki
foreldra. Söluverð eins lítra af öli sem þessu er u.þ.b. 1.000.- krónur
og ætla má að hægt sé að hafa góðar tekjur að iðju þessari.
Til að gefa gleggri mynd af ástandinu má nefna að á þriðjudags-
kvöldum sækja um 170-200 manns Fellahelli að jafnaði, en á föstu-
dagskvöldum aðeins um 80 manns. Kannanir hafa leitt í ljós að sá
hópur sem ekki kemur í Fellahelli á föstudagskvöldum er meira
eða minna ánetjaður áfengisbölinu.
Vegna sérstöðu okkar gagnvart unglingunum í hverfxnu teljum
við okkur ekki geta brugðist því trausti sem við höfum áunnið okk-
ur meðal þeirra með því að standa fyrir aðgerðum á opinberum
vettvangi. Vitaskuld höldum við áfram okkar starfi meðal ungling-
anna, með því markmiði að stemma stigu við böli þessu.43
ER HÆGT AÐ BYRGJA BRUNNINN EFTIR Á?
Dagana 21.-26. júní 1975 var haldin ráðstefna norrænna félags-
ráðgjafa í Reykjavík. Þar var kynnt skýrsla sem íslenskir félagsráð-
gjafar höfðu unnið um Breiðholt 3. Skýrslan var skrifuð á „skand-
inavísku" og virðist ekki hafa verið gefin út opinberlega. í skýrsl-
unni var fjallað um hvernig hverfið var byggt upp og þá þjónustu
sem átti að vera í hverfinu s.s. skóla, leiksvæði og heilsugæslu. Tal-
að var um það sem var komið í hverfið árið 1975 og hvað ætti eftir
að byggja og fullgera. Þriðjungur skýrslunnar fjallaði um þau fé-
lagsvandamál sem fyrirfyndust í hverfinu og hvernig þau myndu
aukast í framtíðinni: „de sociale problemer slik de opptrer idag i B.
III, og sannsynligvis vil utvikle seg i framtida.**44
Gagnrýnt var að félagsíbúðir Reykjavíkurborgar í Breiðholti 3
voru allar staðsettar í Fellahverfinu. Skólarnir í Breiðholti 3 voru
yfirfullir og fleiri nemendur voru í hverjum bekk en venjulega í
skólum borgarinnar. Félagsráðgjafarnir komust að því að í Fella-
skóla var fleiri nemendum beint til skólasálfræðings en í öðrum
skólum og áttu t.d. 22,4% nemenda í 1.-7. bekk við námsörðug-
leika að stríða og sóttu stuðningskennslu. í Breiðholtsskóla voru
nemendurnir sem þurftu á stuðningskennslu að halda 13,7% en í
Árbæjarskóla voru þeir aðeins 8%.45
Skýrslan sýndi fram á mikinn skort á
félagslegri þjónustu í Breiðholti 3 og
lýsti þeim vandamálum sem geta fylgt
í kjölfar of hraðrar uppbyggingar
hverfis.
Félagsráðgjafarnir töldu að í framtíðinni myndi verða meira um
félagsvandamál í Fellahverfinu heldur en venjulega ætti að búast
við í nýjum hverfum. Aðalástæður þess töldu þeir vera að aldur-
skúrfan í hverfinu væri ekki í jafnvægi því mikið væri af ungu fólki í
hverfinu og að í Fellahverfinu væri nær eingöngu gert ráð fyrir
fólki í láglaunastéttum. Tæplega 7% íbúa Breiðholts 3 voru eldri
en 65 ára og 54,8% íbúanna voru undir 22 ára aldri. „Denne unat-
urlige aldersfordelingen skaper ubalanse i befolkningen og leder til
brudt forbindelse mellom generasjonene."*
Ymsum athugasemdum var komið á framfæri í þessari skýrslu s.s.
að mun fleiri börn væru í hverfinu en gert væri ráð fyrir. Fjallað var
um þau vandamál sem myndu verða vegna þess í framtíðinni og þá
neikvæðu umfjöllun sem hverfið fékk, bæði af þeim sem þar bjuggu
og öðrum. Orsakir þess töldu félagsráðgjafarnir vera þann mikla
fjölda blokkaríbúða sem komið var fyrir á litlu landsvæði auk þess
sem Fellahverfið var í hugum fólks mikil mistök. Þeir töldu að í
Fellahverfinu væri lágur „lífsstandard" og fólk myndi flytja þaðan
um leið og því gæfist tækifæri til. Vegna þess hvemig Fellahverfið
var uppbyggt, með félagsíbúðum og verkamannaíbúðum, myndi
það einangrast frá öðrum hlutum Breiðholts 3 og hinum Breið-
holtshverfunum.47 Þeir sögðu að í Fellahverfinu væru skemmdar-
verk unglinga mun fleiri en í öðrum hverfum borgarinnar. Enn-
fremur væri mikil misnotkun á áfengi og pillum í hverfinu.48
Skýrslan sýndi fram á mikinn skort á félagslegri þjónustu í Breið-
holti 3 og lýsti þeim vandamálum sem geta fylgt í kjölfar of hraðrar
uppbyggingar hverfis. Sú óeðlilega aldursskipting sem var í hverf-
inu á fyrstu árum þess leiddi t.d. af sér mikið álag á barnaheimili og
--------------------------------------\
ÞJÓÐSKJALASAFN ÍSLANDS
LESTRARSALUR SAFNSINS ER OPINN
VIRKA DAGA FRÁ KL 10-18.
SÉRFRÆÐINGAR SAFNSINS VEITA
RÁÐGJÖF VEGNA RANNSÓKNA-
VERKEFANA Á SKRIFSTOFUTÍMA
VIRKA DAGA 10-16.
ÞJÓÐSKJALASFN ÍSLANDS
Laugavegi 162 REYKJAVÍK
S. 5903300
J
FELLAPAKK IÐ í GETTÓINU" Sagnir 24 árgangur 04 71