Sagnir - 01.06.2004, Blaðsíða 84

Sagnir - 01.06.2004, Blaðsíða 84
Einsögurannsókn á lífi tveggja vestur-íslenskra kvenna Jeg er fœdd í Canada og því CANADÍSK að œtt... Hér er um að rœða einsögulega rannsókn á lífi tveggja vestur-íslenskra landnemadœtra. Heim- ildir þœr sem ég het um þessar systur er bréfasafn en þœr skrifuðu báðar „heim“ til íslands sömu frœnkunni á Hesteyri í Sléttuhreppi. Bréfin fundust á Hesteyri árið 1972 og hafa síðan þá verið varð- veitt á Héraðsskjalasafninu á ísafirði en frœnkan fluttist til Reykjavíkur árið 1950 og Sléttuhreppur hafði verið íeyði frá árinu 1952.' í bréfasafninu eru samtals 104 bréf frá systrunum, það elsta skrifað árið 1913 og það yngsta árið 1947. Systurnar skrifuðu frænku sinni áratugum saman en hittu hana aldrei þar sem þær komu aldrei til fslands. Ég kem til með að segja örlítinn hluta af lífssögu þessara systra, bera saman val þeirra í lífinu og athuga hvernig sömu aðstæður geta skap- að mismunandi lífsferil vegna ólíkra viðhorfa og valfrelsis einstaklingsins. Einnig ætla ég að reyna að varpa ljósi á sjálfsmynd þeirra sem landnemadætra, tilfinningavera, ís- lendinga og sem Kanadabúa. Út frá hugmyndum um sjálfsmynd systranna ætla ég svo að fjalla nánar um kenningar um þjóðernið. Ég ætla að reyna að komast að því hvert þeirra raunverulega þjóðerni var. Voru þær íslenskar af því að þær áttu íslenska for- eldra og kunnu að tala og skrifa íslensku? Eða var kannski eitthvað annað sem skapaði þeirra þjóðerni? Sagnfræðingurinn Sigurður G. Magnússon telur að þeir sem ætla sér að nálgast sög- una út frá reynslu einstaklingsins hafi oftast um tvennt að velja. Annar kosturinn er sá að taka út hóp ótengdra persóna í svipuðum aðstæðum og tefla þessum persónum svo saman með einhverjar ákveðnar forsendur eða spurningar í huga. Þannig sé hægt að draga fram reynslu hóps einstaklinga sem hægt er að setja í samband við ákveðna þætti samfélagsins út frá almennri félagssögu. Síðari kosturinn „þegar huglæg reynsla fólks er dregin fram í dagsljósið, er að einbeita sér að einum einstaklingi eða nokkrum nátengdum manneskjum og fara nákvæmlega ofan í einstaka þætti í lífi þeirra...“2 Það er einmitt síðari leiðin sem ég valdi í þessari grein. Hvert er þá heimildagildi bréfanna sem ég hef undir höndum? Hvaða vissu hef ég fyr- ir því að bréfin séu þess eðlis að hægt sé að nota þau í sagnfræðilega rannsókn? Sigurð- ur G. Magnússon, sem er frumkvöðull í einsögurannsóknum á íslandi, telur það vera grundvallaratriði að leggja mat á samband bréfritarans og viðtakandans: „Samband þessara tveggja persóna getur ráðið því hvort bréf sé metið einhvers virði til rann- sókna, við úrlausn hvaða vandamála hægt sé að nota þau...“3 Það þarf að kanna að- stæður beggja aðila og einnig þarf að leggja mat á tilgang bréfaskriftanna.4 Sigurður telur að samband bréfritara og móttakanda geti skipt miklu máli þegar trúverðugleiki bréfanna er metinn. í þeim tilfellum sem miklar fjarlægðir eru á milli þessara tveggja og um er að ræða reglulegar bréfaskriftir yfir löng tímabil „þá er eins og meðvitund bréfritara um viðtakanda og umhverfið dofni. Þá er líklegt að bréfritari slaki aðeins á þeim kröfum sem hann myndi annars gera þegar hann settist við bréfaskriftir vegna þess að hann hefði minna að fela.“5 Þetta má heimfæra upp á bréfin sem ég nota sem aðalheimild hér. Yngri systirin var aðeins 13 ára þegar fyrsta bréfið í safninu frá henni var skrifað og hún var orðin tæplega fimmtug þegar síðasta bréf hennar var dagsett. Þær frænkur voru á svipuðum aldri og höfðu gagnkvæman áhuga á að halda þessu fjarsambandi á milli sín, þessum tengslum á milli þeirra ættingja sem fóru til Vesturheims og þeirra sem eft- ir sátu heima. Þær hittust aldrei á þeim tíma sem bréfin voru skrifuð og þekktust ekkert nema í gegnum bréfaskriftirnar. Bréfin gefa engu að síður til kynna að þær séu ná- tengdar. Það má geta sér þess til að þær hafi einmitt náð að tengjast svo náið vegna þess Fædd áríð 1973. Hún útskrifaöist meö BA próf í sagnfræðí og íslensku veturinn 2003 82 SAGNIR 24 ÁRGANGU R 04 EINSÖGURANNSOKN T V E G G J A V E S T U R ISLENSKRA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.