Sagnir - 01.06.2004, Page 86

Sagnir - 01.06.2004, Page 86
,JEG ER FÆDD (CANADA OG ÞVÍ CANADÍSK AÐ ÆH... Stefanía Elínþóra Þórðardóttir Stefanía var búin með sína lágmarks skólagöngu 16 ára og hún hafði engan áhuga á að fara að heiman og vinna: „Ég hef ekki farið í vinnu að heiman en þá, meg lángar ekkert til að fara að heiman ég held ég sje nú sampt nóu gömul til þess, því ég verð 16 ára ef ég lifi 18. Júlí.“13 Næstu árin var Stefanía því heima hjá foreldrum sínum og hjálpaði þar til við heimilishaldið ásamt því að lifa lífinu eins og aðrar ungar kanadískar stúlkur. Hjá Ragnheiði var þessu öðruvísi farið enda var hún eldri og bar ábyrgð á sjálfri sér. Hún virðist þó hafa lifað fremur fjölbreyttu lífi. Hún vann við hin ýmsu störf sem í boði voru fyrir ungar konur á þessum tíma og eru mörg dæmi í bréfunum um þau störf sem Ránka gegndi. Má þar nefna afgreiðslustörf, aðhlynningu eða þjónustu í heimahúsum. Árið 1928 giftist Ragnheiður enskum manni þá 32 ára gömul. Eftir það vann hún úti nær eingöngu á sumrin en var heimavinn- andi á veturna. Hjónin unnu öll sumur á einhvers konar heimili fyrir fátæk börn og mæður þeirra.14 Eftir að Ránka gifti sig virðist hún hafa tekið að sér hið hefðbundna kvenhlutverk sem húsmóðir. Hún var heima að hugsa um heimilið á meðan maðurinn vann þó svo að þau væru aðeins tvö á heimilinu: „Okkur líður vel og mað- urin minn hefur altaf vinnu.“15 Ástandið virðist þó versna í Winnipeg á árunum 1930-1931 og hafði hann þá litla eða enga vinnu en þá bar líka svo við að Ránka var í vinnu þannig að hún virtist fara að vinna þegar nauðsyn var.16 Slæmt atvinnuástand kom þó ekki endilega illa niður á þeim því þau höfðu alltaf vinn- una í Campinum en það kallaði hún heimilið þar sem þau unnu á sumrin. Það er því nokkuð ljóst að störfin sem í boði voru fyrir ungar konur í Kanada á fyrstu áratugum 20. aldar voru nokkuð fjölbreytt. Líklega hafa þær þó tekið öll þau störf sem þeim buðust. Þær höfðu að öllum líkindum lítil efni á að velja úr eða velja sér ein- hvern sérstakan starfsframa. Til þess hefði auðvitað þurft að rnennta sig en það var einmitt það sem sumar gerðu. Þær völdu að vera sjálfstæðar. Stefanía var ein þeirra og hún tilkynnti Soffíu í bréfi frá 10. október 1923 að hún ætlaði sér að fara aftur í skóla og í öðru bréfi sagði hún að stefnan væri að verða hjúkrunarkona.17 Soffía fékk að fylgjast með hjúkrunarnámi Stefaníu frá upphafi. Stefanía hélt áfram að skrifa henni þó að bréfunum fækkaði í u.þ.b. 1-2 á ári þau ár sem hún var í námi. Bréfin bárust þó reglulega þannig að þær héldu alltaf sambandi. í nóvember 1925 skrifaði Stefanía að hún hefði þurft að taka próf eftir að hún var búin að vera í þrjá mánuði við sjúkrahúsið, launalaust. Þær sem náðu því prófi fengu að halda áfram í næsta áfanga, sem hún fékk og þá fór hún að fá laun, 14 dollara á mánuði.18 í lokaprófunum vorið 1928 var hún svo „næst hæðst í mínum klassa.“19 Þegar hún hafði lokið prófi og orðin fullgild hjúkrunarkona sem hafði „nokkurs konar leyfi til að nursa hvar sem er í Manitoba“20 tóku við alls kyns lýsingar á hjúkrunarstörfum hennar. Fyrst var hún að vinna á spítölum en líklega fannst henni það of bindandi og erfitt að skreppa heim því fljótlega fór hún að stunda heimahjúkr- un. Það starf gerði að verkum að hún var á sífelldum flækingi og það átti nú ekki mjög vel við hana því hún var mjög heimakær: „ég er svo sjaldan heima og á svo miklum flækjing að vera hjúkrunar kona er ekki svo gott embætti eftir alt. Þú ert á eintómum flækjing frá einum stað í annan, frá einum sjúkling til annars að maður hefir varla tíma til að skrifa...“21 f september árið 1934 hrundi veröld Stefaníu þegar Ragnheiður systir hennar lést aðeins átta dögum eftir að hún hafði eignast aðra dóttur sína. Hún dó úr blóðtappa á fertugasta afmælisdeginum sín- um og brúðkaupsdegi, þann 17. september. Stefanía sat yfir henni þegar hún dó. Fyrir utan áfallið að takast á við skyndilegan dauða systur sinnar var hún nú með tvær litlar móðurlausar telpur sem hún þurfti að hugsa um. Alís, sú eldri sem var fædd í mars árið 1933 var þó að mestu hjá föður sxnum en þá nýfæddu, Bettý Joan, tók Stefanía að sér og ól upp.22 Eftir að Stefanía tók litlu stúlkuna að sér var ekki mikill tími til að stökkva í burtu til að sinna hjúkrunarstörfum. Þó hún byggi heima hjá móður sinni og bræðrum, en faðir hennar dó árið 1933, þá var móðir hennar orðin of gömul til að Stefanía gæti skilið barn- ið eftir í hennar höndum, eða réttara sagt vildi hún ekki leggja það á móður sína.23 Niðurstaðan varð því sú að hún var heima hjá barninu. Eitthvað var hún þó að fara burtu í stuttan tíma í senn. Guðrún, elsta systir hennar, dó eftir langvinna baráttu við krabba- mein árið 1937. Stefanía hafði hjúkrað henni meira og minna frá árinu 1935, ýmist heima við eða farið með henni til Winnipeg á sjúkrahús, og hafði hún þá alltaf Bettý litlu með sér. Það má því segja að fjórði áratugurinn hafi verið sá erfiðasti í lífi Stefaníu. Faðir hennar og báðar systur dóu og hjúkrunarstarfið vék fyrir uppeldi og umönnun litlu systurdóttur hennar. Þessi störf systranna, eins og ég hef lýst þeim, falla vel að þeirri mynd sem við höfum nú þegar af störfum vestur-íslenskra kvenna. Þær sem höfðu enga menntun, fyrir utan barnaskólamenntun, sinntu hinum ýmsu þjónustu- og verslunarstörfum.24 Ef um frekari menntun hjá konum eða ungum stúlkum var að ræða var líklegast að kennarastarfið yrði fyrir valinu. Það var kannski vegna þess að það þótti virðingarvert starf og ekki þurfti langa og tímafreka menntun til þess að verða kennari eins og kemur fram í sjálfsævi- sögu landnemadótturinnar Lauru Goodman Salverson: „Ég [asdfljþurfti bara að ljúka við níunda bekk, bæta við mig einu ári í kennaradeild (sem var hægt í þá daga) og afla mér svo frægðar og frama við kennslu...“25 Þannig að ekki er ótrúlegt að mörgum ung- um stúlkum hafi þótt þetta fýsilegur kostur. í bókinni Bréf Vestur- Það má því segja að fjórði áratugurinn hafi verið sá erfiðasti í lífi Stefaníu. Faðir hennar og báðar systur dóu og hjúkrunarstarfið vék fyrir uppeldi og umönnun litlu systurdóttur hennar. íslendinga II má sjá í mörgum bréfum hvers kyns störf og nám ungar konur lögðu fyrir sig. Má þar nefna saumastörf, kjólasaums- nám og tónlistarnám fyrir utan þau störf sem hér hafa þegar verið nefnd.26 TILFINNINGALÍFIÐ OG SORGIN Við lestur bréfanna varð ég vitni að tilfinningalegum þroska tveggja ungra stúlkna. í fyrstu bréfunum var greinilega um óreynd- ar unglingsstúlkur að ræða en þær þroskuðust og urðu að fullorðn- um konum mótuðum af reynslu lífsins. Fyrstu árin einkenndust 84 SAGNIR 24 ÁRGANGUR 04 UPPBYGGING E F R A B R E Ð H O L T
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.