Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Blaðsíða 13
ÞÝÐING ÚR FAUST
157
°g þegar náð er þrítugsaldri,
þá er maður sama og nár.
Bezt væri, ykkur a£ í tíma að taka.
Mefistófeles
Nú trúi ég fjandmn dragi sig til baka.
Baccalaureus:
E£ svo ég vil, þá enginn fjandi finnst.
Adefistófeles
til hliðar:
Þú færð þeim pdti síðar betur kynnzt.
Baccalaureus:
Þá æðstu köllun æskan fann!
Enginn heimur var, unz skúp ég hann,
engin sól unz hóf ég hana úr mar,
af hveli mánans fyr ei Ijóma bar.
Þá dagur skin sitt breiddi á brautir mínar
þá blómum jörðin vafði grundir sínar
og allar stjörnur brostu blítt og rótt
við bending mína á fyrstu nótt.
Hver, nema eg, af yður fjötra sprengdi
er oddborgarahugsun sárast þrengdi?
En ég er frjáls, sem andinn innblæs mér,
og eftir mínu hugarblysi fer,
og skunda glaður, allra manna maki
á móti sól, en rökkrið læt að baki.
Fer.
Adefistofeles:
Þú frumleikshetja, far í þinni dýrð.
Þér fellur víst sú staðreynd dla,
að hér finnst engin vizka eða vdla
sem var ei áður þekkt og skýrð.
þó stendur oss ei hætta nein af honum,
því hann að vörmu spori gætir sín.
Þótt ungur lögur ólgi og gjósi að vonum
á endanum fæst bezta vín.
Til hinna yngri áhorfenda, sem ekki klappa.
Þér klappið lof í lófa ei,
ég læt þar gera börn sem vdja.
En munið: Kölski er gamalt grey,
því gömul verðið, hann að skdja.