Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Blaðsíða 66

Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Blaðsíða 66
MYNDLIST Afmælissýning Þorvalds Skúlasonar Það er vafalaust mikill sannleiki í þeim fullyrðingum, að mörg hinna beztu lista- verka heimsins séu ekki sérlega frumleg, í þrengstu merkingu orðsins. Þó fáum dyljist hlutdeild viss frumleiks í allri góðri list, virðist það ekki vera lífsnauðsynlegur eigin- leiki listaverks, að það hafi gagngerð ný- mæli að flytja heiminum. Óhjákvæmilega kemur þó að því fyrr eða síðar, að ekki er hægt að fá fólk til að hlýða lengur á ákveðn- ar kenningar, nema nýr háttur á málflutningi komi til, eða jafnvel að sjálf kenningin hafi misst áhrifamátt sinn, sjálft temað orðið svo útþvælt að fleiri tilbrigði um það hljóti að verða innantómt orðagjálfur, kjarninn orð- inn svo útþynntur. Á sýningum Þorvalds Skúlasonar hættir mér alltaf við vangavelt- um af þessu tagi, og það fremur af tveim ástæðum en einni. Áhrif þeirra meginstefna í listum, sem fara um löndin hverju sinni með miklu ofbeldi oft og tíðum, speglast mjög áberandi í list málarans á hinum ýmsu tímum, en þó alltaf með þeim hætti, að það sem einkennir list Þorvalds öðru fremur er einmitt frumleikinn. Þetta kunna að þykja nokkuð mótsagnakendar hugleiðingar, en engu síður arfleifð langrar samfylgdar við listamanninn og verk hans. Hinar fjölþættu gáfur Þorvalds, skörp dómgreind hans og hárnæmur smekkur varna honum þeirrar freistingar að sjá hlutina með annarra aug- um eða skynjun, en þó er hann svo við- kvæmur fyrir veðrabrigðum, að hver nýr andblær að sunnan fer eldi um sál hans og taugar. Og Þorvaldur er svo nátengdur samtíð sinni, almennu lífsstríði hennar engu síður en andlegum hræringum, að streng- irnir á hörpu hans eru eins og opin kvika. Þessi yfirlitssýning staðfestir talsvert áber- andi þá skoðun að list Þorvalds sé fljótt á litið ósamfelld, og stundum dálítið á reiki. Einstaka myndir eru svo glampandi að frumleik og heillandi ástríðu, að þær ryðja bókstaflega öllu um koll í hugarrúmi áhorf- andans, en aðrar hvetja til rólegrar yfirveg- unar sakir markvissrar nostursemi og kunn- áttusamlegs handbragðs, en í þeim virðist minna af þeim lífskrafti og ferskleika, sem verulega orkar til þess að vekja hástemdan fögnuð og sælutilfinningu með áhorfendum. Enn aðrar virðast dálítið kaldhamraðar fingraæfingar. Þessi fjölbreytta sýning, sem Félag ísl. myndlistarmanna mun hafa efnt til í því skyni að heiðra listamanninn á fimmtugsaf- mæli hans, markar að einu leyti tímamót í kynningu á verkum hans: Öllum má vera ljóst er skoðað hafa sýninguna opnum huga að Þorvaldur er að nálgast hin miklu vega- mót lífs síns, er honum tekst að fullu að sameina í einu verki sína sterku og heil- brigðu passjón og frumlega skynjun, sinni þjálfuðu sjón og hárfína smekk. R.J.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.