Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Blaðsíða 22

Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Blaðsíða 22
166 NÝTT HELGAFELL myrkri og vöntun á mótorvélum. Einu sinni raðaði hann ljáum á milli Fells og Reyni- valla og lét eggjarnar snúa skáhallt upp og að Felli, til þess að óvættirnar kæmust ekki austur að Reynivöllum, og þuldi yfir. Og þetta var engu vitlausara hjá Eyjólfi gamla en krossar og signingar kirkjunnar gegn óhreinum öndum. Þegar maður horfði frá Hala á suðurenda Fellsfjalls, gein við manni dimm gjá, sem byrjaði neðst í klettunum og náði langt upp eftir þeim lóðrétt, og sýndist ganga djúpt inn í fjallið. Það var líkast því sem fremsti hluti þess væri klofinn frá aðalfjallinu. Það hvarflaði lengi vel aldrei að mér að gera mér grein fyrir, hvernig þessu væri varið. Fellsfjall var listaverk og þessi gjá var nauðsynlegt atriði í listaverkinu, sem maður átti að hafa augnagaman af, en ekki að reyna að skilja. Svo vildi mér til happs, sem ég hafði alltaf trúað, að væri það óhugsanlegasta í heiminum fyrir algerðan öreiga eins og mig. Ég eignaðist stórt kort úr enskum togara, sem strandaði. Það var kort af íslandi og hafinu kringum landið. Þá gerðist eitthvað innan í mér, sem ég myndi hafa kallað endurfæðingu, ef ég hefði þá vitað, að slík gerbreyting væri til. Ég reif mig á fætur snemma á morgnana til að skoða þennan dýrgrip, og ég sat hálfa og heila dagana niðursokkinn í að stúdera hann. Það var meiri unaðurinn. Þe’tta var ekki aðeins stórkostlega fræðandi. Útlit kortsins var líka heillandi og göfgandi. Þarna sá ég dýptina á sjónum kringum allt landið og langt út frá landinu, merkta með fögrum tölustöfum, grunnin, djúpin, bankana, álana, boðana, skerin, og landið sjálft mpð ótal fjörðum, víkum, vogum, nesjum, skögum, töngum, fjöllum, fljótum, stöðuvötnum, bæjum, eyjum, hólmum og nokkrum jöklum og flóum. Þetta var eitthvað annað en litla Islandskortið í. Alþýðubók- inni, sem ég hafði orðið að bjargast við allt að þessu. Og þarna sá ég í fyrsta sinni mis- vísninguna á kompásnum. Ég vissi þá ekki, að þetta væri misvísning. Ég hélt, að svona ættu áttirnar að vera, eins og þær voru sýndar á kompásunum á kortinu, norðrið og suðrið á þeim væru rétt norður og rétt suður, norðrið og suðrið í Suðursveit væri gömul vitleysa, og þá líka austrið og vestrið og allar áttir þarna á milli, allt ein hringa- vitleysa, allar klukkur og öll eyktamörk ein regindella, klukkan orðin rúmlega eitt, þegar sólin var yfir vestra rennuhúsinu á Breiðabólsstað, í staðinn fyrir að manni hafði alltaf verið sagt, að þá væri hún tólf, mið- aftanstaður ekki framarlega á Fellsfjalli, heldur góðan kipp fyrir framan það, allur sjóndeildarhringurinn hrokkinn upp af standinum eins og kvörnin á Hala, þegar henni var malað hranalega. Djöfull er nú búið að Ijúga að manni um áttirnar. Og ætli það sé ekki sona með fleira. Þessi skyndilega bilun á sjóndeildar- hringnum var engin smáræðis yfirhelling fyrir ungling, sem eftir mikil heilabrot og hlægilegagerandi miðanir og mælingar, þóttist hafa hrundið af sér fávitahættinum með því að hafa fyrstur manna í þessu blessaða byggðarlagi fundið réttar áttir. Og allt hrundi í rúst um leið og hann leit á kompásana á trollarakortinu. En lærðu mælingameistararnir hljóta að hafa rétt fyrir sér, og ég verð að gera mér að góðu, að mannorð mitt verði að engu fyrir stað- reyndum, þekkingunni, sannleikanum. Þessi óvænta þekking leiddi mig út í nýtt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.