Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Blaðsíða 39

Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Blaðsíða 39
MILLILIÐUR ALLRA MILLILIÐA 183 Ég hefi talað um þetta þriðja hlutverk peninganna eins og það horfir við hverjum einstakling. En síðasta athugasemdin í því sambandi gefur tilefm til nánari athugun- ar á viðhorfinu milli þessa „samnefnara verðmætanna" og þjóðarheildannnar. Eg ætla nú að fara fram á nokkra andlega áreynslu af lesendum mínum. Ég ætla að biðja ykkur að hugsa ykkur mjög annar- legt þjóðfélag, þar sem skattamálunum væri einkennilega komið fynr. Ég er ekki guðfræðingur og ætla því ekki að tala um Paradís, þar sem mér er sagt af kunnug- um, að engir skattar séu á menn lagðir, en þetta hugarfóstur mitt er þjóðfélag, þar sem skattarnir hvíla jafnt á öllum atvinnu- greinum, engir framleiðslu- eða neytenda- styrkir eru veittir, engin mnflutnings- eða útflutmngshöft, enginn bátagjaldeyrir, en á hinn bóginn er þar gjaldeyrir, sem fyrir- varalaust má fá skipt í hvaða erlendan gjaldeyri sem er. í þessu einkennilega þjóðfélagi, sem ég var að lýsa, myndu peningarnir sem sam- nefnari verðmætanna segja nákvæmlega til um það, hvermg hafa mætti mestan ver- aldarauð upp úr vinnu þjóðarinnar á hverj- um tíma. Ég sagði ,,nákvæmlega“, en það er náttúrlega ekki alveg rétt, því að óviss- an um afla og afrakstur á annan bóginn og um markaði á hinn væri ekki horfin. Ég hefði átt að segja ,,eins nákvæmlega og orðið getur“. Við fengjum þarna greinilega leiðbemingu um það, hvermg verkaskipt- mg okkar við aðrar þjóðir ætti að vera, þannig að báðir aðiljar hefðu hag af henni, og innanlands myndum við framleiða það til eigin þarfa, sem ódýrara væri að fram- leiða hér en að kaupa frá öðrum löndum. Ég er ekki að gera áróður fynr þessu undarlega landi, sem ég hefi venð að lýsa. Ég er aðeins að benda á, að með fullkom- lega frjálsum viðskiptum sýnir verðmæl- írinn, peningarnir, okkur, hvermg við eig- um að koma fram hinni fullkomnustu verkaskiptingu innávið og útávið, hvermg við fáum nýtt starfsorkuna bezt, ef ekki er haft annað í huga en fjárhags-sjónar- miðin, Hitt er mér vitanlega ljóst, að margt fleira getur konuð til greina. Menn- íngarleg sjónarmið geta valdið því, að æski- legt sé að styrkja einn atvinnuveg á ann- ars kostnað. Einng getur nokkuð verið leggjandi í sölurnar, til þess að gera at- vinnulífið fjölbreyttara og vera betur sjálf- bjarga, ef umheimurinn gengur af göfl- unum einu sinm enn. Þótt rannsókn leiddi í ljós — en það tel ég alls engar líkur til þess að hún gerði — að með frjálsri verkaskipt- ingu við aðrar þjóðir borgaði sig ekki að reka neinn atvinnuveg á íslandi annan en fiskiðnað, ættum við vissulega ekki allir að hverfa að þeirn atvinnugrein og hætta bú- skap og iðnaði. En hitt ættum við að gera okkur ljóst, að með því að styrkja einn atvinnuveg á annars kostnað öðlast þjóðin í heild minni veraldarauð, þjóðartekjurnar verða minm, það kemur minna til skipta. Og þá er að meta, hvort það er vegið upp með auknu öryggi andlegu og efnalegu, því að vissulega væri mikið öryggisleysi því samfara að stunda aðeins eina atvinnu- grein. Hér á landi höfum við á undanförnum árum verið að fikta við verðmælinn, þang- að til hann er hættur að sýna það, sem hon- um er ætlað frá sjónarmiði þjóðarheildar- mnar. Ef um innlenda framleiðslu til inn- anlandsneyzlu er að ræða, er ekki lengur að því spurt, hvort hún fái staðizt í sam-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.